Freyr - 15.03.1972, Síða 7
EINAR HANNESSON:
VE8ÐIMÁL
I örum vexti
Ánœgjulegt er hvað veiðimál hér á landi eru í góðu horfi. Lax-
veiði hefur aukizt jafnt og þétt. MeðferS og nýting silungsveiði
hefur batnað og verðmœti veiðinnar í heild aukizt. Er sýnt að
veiðimálin hafa góðan byr þessi árin og er fyllsta ástœða til
bjartsýni um framtíðina í þessum efnum.
Einar Hannesson.
Með grein þessari er ætlunin að gera
þessi mál að umtalsefni. Er fyrst vikið al-
mennt að veiðimálum og ástandi þeirra.
Því næst er rætt sérstaklega um þau sem
þátt ferðamála. Að lokum er veiðimálum
í Vesturlandskjördæmi gerð sérstök skil.
Svipaða úttekt og framkvæmd er á nefndu
kjördæmi er unnt að gera við önnur kjör-
dæmi landsins og verður líklega gert síðar.
Auðvitað er hægt að heimfæra margt af
því, sem fram kemur, á aðra landshluta,
einstakt hérað, sýslu eða heilt kjördæmi.
INNGANGUR
Hið hagstæða ástand í veiðimálum ríkir
hér á sama tíma sem aðrar laxveiðiþjóðir
eiga við margvísleg vandamál að stríða,
svo sem minnkandi laxveiði í heimaánum
vegna aukinna úthafsveiði á laxi, rafvæð-
ingar og mengunar í ám og vötnum. En
mengunin hefur sums staðar eytt fiski með
öllu úr mörgum veiðivötnum og stórspillt
veiði annars staðar. Sem betur fer, eru
afleiðingar slíkrar mengunar nær óþekktar
hér á landi. Hins vegar ber að hafa hugfast
að mengunarhættan vex með ári hverju.
Okkur er því skylt að vera vel á verði í
þessum efnum. Verður að ætla og vona
að íslendingar muni ná því marki að sigla
fram hjá þeim skerjum, sem aðrar þjóðir
hafa svo mjög steytt á, sem fyrr segir.
Þessi von styðzt við það m. a., að skiln-
ingur almennings hérlendis á nauðsyn
góðrar umhverfis- og náttúruverndar hefur
á síðari árum orðið meiri en áður og fer
vaxandi. Þá er aukins aðhalds að vænta
frá hendi opinberra aðila, m. a. vegna
nýrrar löggjafar um mengunarvarnir, sem
nú eru í undirbúningi. Kemur slík löggjöf
væntanlega til framkvæmda á næstu miss-
erum.
ísland í sérflokki.
Staða íslands í lax- og silungsveiðimálum
er því sterk í samanburði við önnur lax-
veiðilönd, eins og fyrr segir, og er óhætt
að fullyrða að ísland sé í algjörum sér-
flokki. Aukning á laxveiði á fimmtán ára
F R E Y R
95