Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.2000, Blaðsíða 10

Freyr - 01.07.2000, Blaðsíða 10
þegar hún fer í gegnum girðingar hjá bændum þá byrjar hún á að troða snjáldrinu inn í möskvanna en þegar rassinn er kominn í gegn get- ur hvaða kind sem er labbað þar inn á eftir. „Það er nóg af þeim hér“, sögðu bömin. „Já, ég veit það, eftir að ég kom hingað“, sagði ég. Rauða, stóra kengúran er í útrýmingar- hættu, sögðu bömin þá, en við er- um ekkert að veiða hana, hún er friðuð. Já, en það er líka fullt af hvölum hjá okkur, sem við emm að veiða, við eram ekki að veiða hvali sem eru í útrýmingarhættu. Þegar ég gat sett málið upp úr frá sjónarhomi þeirra þá gátum við farið að ræða um hinar ýmsu hvala- tegundir og hverjar væru í útrým- ingarhættu, því að það er líka til fjöldi tegunda af kengúmm. Þetta vil ég segja að sé vandamál okkar bænda í sambandi við land- græðslu. Það koma menn með full- yrðingar en þekking almennings á uppgræðslu, landgræðslu, og land- notum er það takmörkuð að þessir menn hafa mikil áhrif, en þekking og reynsla bænda heyrist næstum ekki. Ég óttast það að þessir menn ráði ferðinni um lokun afrétta við útfærslu á gæðastýringu í sauðfjár- samningnum. Kjami málsins er sá að þar sem náttúruleg skilyrði til uppgræðslu em ekki fyrir hendi, þar verður ekk- ert grætt upp. Gæðastýringarkafli sauðfjársamningsins tekur gildi eft- ir þrjú ár og innan þess tíma þarf að setja nánari reglur þar um og taka út býlin og sá sem fær ekki vottun um að standast gæðastýringu hann lifir ekki af sauðfjárrækt eftir það. Þá verður líka búið að taka stærsta peninginn út úr uppkaupun- um, þessi kr. 22 þúsund á ærgildi gilda bara fyrsta árið. Ef svo kemur á daginn eftir þrjú ár að bóndi fær ekki viðurkennt að hann standist gæðastýringu þá er búið að gera honum ókleift að búa við sauðfé. Það átti að gera þennan gæðastýr- ingarkafla í rólegheitum yfir næsta samningstímabil, við áttum að fá að Ásdís Hulda hjá ánni Kelu. (Freysmynd). hagræða sjálf núna, við vitum að stéttin er að eldast og menn vilja fá að stækka búin upp í þessa fjöl- skylduvænu einingar og menn hefðu hagrætt sjálfviljugir. Við hefðum átt að vinna að því að þessi vistvæna vottun, sem var í gangi, gæfi hærri beingreiðslur og hvetja menn þannig til að taka þátt í henni. Síðan átti að fullmóta gæðastýring- arþáttinn og leggja hann þannig fram svo að menn vissu um hvað þeir væm að semja. Hvernig finnst þér haldið á spöð- unum í markaðsmálum kindakjöts? Meðan sláturhúsin græddu meira á því að hafa kjötið inni á frysti heldur en að selja það, þá var eng- inn hvati hjá þeim í markaðsfærsl- unni. Þessi vaxta- og geymslu- kostnaður er enn að hrjá okkur og verður áfram í næsta samningi. Þegar sláturleyfishafi neitar að selja öðmm sláturleyfishafa kjöt á eðli- legu verði þegar hann vantar kjöt, þá vantar einhvern aðila frá stjóm- völdum og bændum til að skera úr um hvað er eðlilegt verð og ef hinir vilja ekki selja þá verður að taka vaxta- og geymslugjaldið af þeim sem vilja ekki selja. Þetta hefur gerst þar sem Sláturfélag Suður- lands hefur vantað kindakjöt en hinir segja að SS vilji kaupa á 20% lægra verði en kostnaðarverði þeirra. A þessu stendur, fullyrðing á móti fullyrðingu, en enginn hefur vald til að högga á þennan hnút. I nýja sauðfjársamningnum er vaxta- og geymslugjald inni í greiðslum til bænda þannig að mér finnst að bændur verði að hafa tök á því að dreifing kjötsins sé með eðli- legum hætti. Fyrir h’eimur árum var farið að bjóða upp á okkar gömlu góðu kjöt- súpu á viðkomustöðum ferða- manna, það var framför. Já, ég held að útlendingar ekki síður en Islendingar kunni vel að meta þetta og með vaxandi ferða- mennsku tel ég það stóra landkynn- ingu að fólk fái hér íslenskan mat. Þegar við ferðumst til útlanda þá viljum við ekki bara borða ham- borgara og franskar hjá Mac Don- alds. Mér skilst að flutningabflstjórar og aðrir sem stunda mikið akstur séu afar fegnir að fá almennilegan mat hér á Hvolsvelli, eins og þeir orða það. Við sauðfjárbændur eigum hins vegar afar erfítt um vik í markaðs- setningunni því að í raun og vem seljum við sláturleyfishöfum kjötið á haustin og höfum þar að leiðandi ekkert vald yfir vörunni eftir það. Á hinn bóginn eru bœndur mjög víða í stjórnum þessara afurða- stöðva eða kaupfélaga sem reka þœr. Mér finnst nú svo skrýtið með marga bændur sem em í stjómum að það er eins og þeir hætti að verða bændur þegar þeir setja upp bindið. Þá em þeir bara fyrir fyrirtækið en ekki fyrir heildina. Útflutningur á kindakjöti. Já, þar er vandamálið að of marg- ir aðilar em að vasast í þessu og 10 - FREYR 7/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.