Freyr - 01.07.2000, Blaðsíða 27
RÁÐUNAUTAFUNDUR 2000
Eftirlit með aðföngum
í landbúnaði
Aðföng í landbúnaði eru af
margvíslegum toga, en þau
mikilvægustu eru sáðvara,
áburður og fóður. Með lögum nr.
22/1994 um eftirlit með fóðri,
áburði og sáðvöru og reglugerðum
sem settar hafa verið við þau eru
Aðfangaeftirlitinu m.a. lagðar á
herðar þær skyldur að tryggja að
þau séu hrein, fersk, ósvikin og
fullnægi kröfum um heilbrigði og
gæði og geti hvorki skaðað dýr,
menn né umhverfi. Aðfangaeftirlit-
ið gætir því hagsmuna dýra, um-
hverfis, bænda og annarra ræktenda
dýra og plantna og síðast en ekki
síst neytenda landbúnaðarvara (7.
mynd). Bændur og aðrir eiga því að
geta treyst því að gæði þeirra að-
fanga sem þeir kaupa séu í sam-
ræmi við það sem seljandi vörunnar
gefur upp á umbúðum eða afhendir
við sölu.
Aðfangaeftirlitið leitar til ýmissa
aðila um aðstoð við eftirlitið og má
þar nefna sérfræðinga Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins (RALA),
ráðunauta Bændasamtaka íslands
og búnaðarsambanda og embætti
yfirdýralæknis. Einnig eru starfandi
tvær ráðgefandi nefndir til aðstoðar
eftirlitinu sem skipaðar eru af land-
búnaðarráðherra:
1. Fóðumefnd.
2. Sáðvöru- og áburðamefnd.
Með samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið (EES) 1992 tóku
Islendingar nánast upp allar tilskip-
anir ESB að því er varðar aðföng í
landbúnaði. Örfá atriði em þó und-
anskilin, s.s varðandi dýrasjúk-
dóma, notkun sýklalyfja í fóður til
vaxtarauka og hámarksgildi fyrir
leyfilegt magn kadmíums (Cd) í
áburði. Allar reglugerðir sem snerta
eftir
Olaf
Guð- €
mundsson ' SJ
°g áJéJ
Lilju Grétars- gt j M
dóttur, Aðfanga- ■ - T
eftir-
litinu
sáðvöm, áburð og fóður em því
byggðar á tilskipunum ESB sem
við emm skuldbundin að taka upp
samkvæmt EES samningnum. Mik-
ið verk er fyrir höndum í því að
uppfæra reglugerðir okkar að regl-
um ESB og má því búast við tals-
verðum breytingum á reglu-
gerðunum á næstu mánuðum.
Framkvæmd
Aðfangaeftirlitsins
I aðalatriðum er fyrirkomulag
eftirlitsins svipað hvort sem menn
ætla að markaðssetja sáðvöru,
áburð eða fóður hér á landi. Fyrsta
skrefið er að láta skrá vöruna sem á
að markaðssetja hjá Aðfangaeftir-
litinu og er ferlið sýnt á 2. mynd.
1. mynd. Meginstarfssvið Aðfangaeftirlitsins.
Eftirlitið sér um:
1. Faglegt mat á aðföngum, skráningu þeirra og útgáfu leyfa til mark-
aðssetningar.
2. Gæðaeftirlit með aðföngum, sýnatöku og greiningu á sýnum.
3. Eftirlit með innra eftirliti fyrirtækja sem framleiða aðföngin.
4. Yfirumsjón með og samþykki á gæðastöðlum og útreikningi á
gæðastöðlum.
5. Eftirlit og samþykki fyrir útflutningi á aðföngum öðrum en hráefn-
um í fóður, s.s. fiskimjöli.
6. Nefndarstörf á vegum Evrópusambandsins (ESB) og Fríverslunar-
samtaka Evrópu (EFTA) að því er varðar sáðvöru, áburð og fóður.
7. Ráðgjöf til landbúnaðarráðuneytisins varðandi aðföng og málefni
þeim tengdum.
FREYR 7/2000 - 27