Freyr - 01.07.2000, Page 28
Áður en innflutningur hefst þarf
innflytjandi að skrá það sem flytja
á inn svo að öruggt sé að heimild til
innflutnings fáist. Þegar um mark-
aðssetningu á innlendum vörum er
að ræða þarf að skrá þær um leið
og framleiðslan fer fram. Eftir
skráningu getur innflytjandi flutt
inn vöruna að vild, en verður að
tilkynna hverja sendingu til Að-
fangaeftirlitsins svo að hægt sé að
sannreyna að hún sé í samræmi við
upphaflega skráningu og svo að
hægt sé að taka sýni ef ástæða
þykir til (J. mynd). Við hvern
innflutning er gefin út heimild til
innflutnings sem fylgir öðrum
innflutningsskjölum til tollaf-
greiðslu. Þá þarf innflytjandinn að
vera viðbúinn því að framvísa
þeim vottorðum sem krafist er. Til
dæmis er krafist salmonellu-vott-
orða við innflutning á flestum teg-
undum fóðurs, með sáðvöru þarf
að vera spírunar- og hreinleika-
vottorð og með áburði yfirlýsing
um innihald kadmíums.
Þegar varan hefur verið flutt inn
getur innflytjandinn annað hvort
selt hana til smásala, beint til
bænda eða annarra ræktenda sé var-
an þess eðlis eða tekið hana til frek-
ari vinnslu hér innanlands, t.d. fóð-
ur í fóðurblöndur.
Við sölu, dreifíngu og kynningu á
eftirlitsskyldum aðföngum er með
öllu óheimilt að vísa til þess að þau
séu háð opinberu eftirliti eða fram-
leidd með opinberu samþykki eða
leyfí. Hafa ber í huga að hlutverk
Aðfangaeftirlitsins er ekki að bera
saman gæði aðfanga sem seld eru
hér á landi, heldur að sannreyna að
varan uppfylli þau skilyrði sem hið
opinbera setur og að hún sé í sam-
ræmi við þær upplýsingar sem inn-
flytjendur/framleiðendur og selj-
endur gefa um hana.
Að sjálfsögðu geta bændur og
aðrir notendur aðfanga farið fram á
að Aðfangaeftirlitið athugi vöru
sem þeim fínnst vera óeðlileg á ein-
hvem hátt og geta þá annað hvort
haft samband beint við Aðfangaeft-
irlitið eða talað við ráðunautana í
sínu héraði og þeir svo aftur haft
samband við Aðfangaeftirlitið. Til
að sýni séu viðurkennd sem rann-
sóknasýni þurfa þau að vera tekin
af opinberum aðila sem Aðfanga-
eftirlitið samþykkir. Leiði rannsókn
í ljós að varan uppfylli ekki þær
kröfur sem settar eru, sé ekki í sam-
ræmi við skráningu hennar hjá Að-
fangaeftirlitinu eða standist ekki þá
lýsingu sem fylgir henni frá selj-
anda sér Aðfanga-
eftirlitið til þess að
sala vörunnar
verði stöðvuð og
að ekki verði flutt
inn meira af henni
fyrr en gengið hef-
ur verið úr skugga
um að bætt hafi
verið úr þeim
ágöllum sem fund-
ust. Sé málið talið
alvarlegt er það
sent þar til bærum
yfirvöldum til
frekari meðferðar.
Aðfangaeftirlitið
sér aftur á móti
ekki um að gera
3. mynd. Skjalaeftirlit, skoðun og leyfisveiting fyrir tollaf-
grelAslu.
28 - FREYR 7/2000