Freyr - 15.04.2001, Page 24
fengu notkunardóm og annað
þeirra er nú í notkun sem nautsfaðir
en það er Frískur 94026. Á sama
tíma og í nálægum löndum hefur
þróunin orðið á þann veg að 50-
80% nauta, sem tekin eru ný í notk-
un, er fyrsti eða annar kálfur móður
sinnar hefur ekkert miðað í þessum
efnum hér á landi. I þessum efnum
má gera umtalsvert átak til þess að
bæta nautsmæðravalið og við höf-
um fulla þörf fyrir að nýta þennan
möguleika. Kýrin breytist að sjálf-
sögðu ekkert að eðlisfari við að
eldast. Þannig erum við aðeins að
missa af möguleikum við að ná
ekki strax í gripinn til nota í kyn-
bótastarfinu. Það eina sem gerist er
að í samanburði við meðaltal
stofnsins rýrna yfirburðir kýrinnar
um 1% við hvert árið sem hún
eldist.
Eins og fram kemur í greininni
um kynbótamat nautanna þá hefur
grunni í matinu nú verið breytt. Eft-
ir sem áður er haldið óbreyttum
mörkum um nautsmæður, þ.e. að
þær skuli að lágmarki hafa 110 í
einkunn í kynbótamati um afurðir.
Tilfærsla á viðmiðun leiðir hins
vegar til að kúm, sem uppfylla
þessi mörk, snarfækkar. Hópurinn
er samt miklu stærri en nokkur þörf
er fyrir því að samtals 1390 kýr í
landinu ná þessum mörkum. Þess
vegna liggur í augum uppi að at-
hyglin fer ekki verulega að beinast
að þessum kúm fyrr en mat þeirra
er orðið 115 eða hærra. Kýr á eink-
unnabilinu 110-114, sem eru ein-
stakir afburðagripir um aðra eigin-
leika en afurðir, eru hins vegar ætíð
áhugaverðar sem verðugar nauts-
mæður.
Tafla 3 gefur yfirlit um þær kýr
sem eru með 122 eða meira í kyn-
bótamatinu. Eins og vænta má þá
eru mjög margar af kúnum þær
sömu og gaf að líta í tilsvarandi
töflu á síðasta ári. Viðbætur eru
helst ungar kýr undan Búa 89017
og Óla 88002 og nokkrum af hin-
um ungu nautum sem hafa verið að
koma í dóm. I allra efstu sætum eru
kýr sem þar var að finna á síðasta
ári, en síðan koma tvær ungar borg-
firskar kýr sem þarna skjótast upp á
stjömuhimininn. Móna 157 í Leiru-
lækjarseli er dóttir Daða 87003, en
hún er af sterkum stofni í móður-
ætt. Þessi kýr hafði mjög langt
fyrsta mjólkurskeið og mjólkaði þá
yfir tíuþúsund kg af mjólk. Ósk 79
í Nýjabæ er stórættuð ung kýr und-
an Búa 89017 og Rauðhuppu 34,
sem var dóttir Perlu 1 og síðan
stendur að baki fjöldi landsþekktra
nautsmæðra frá Nýjabæ. Þarna
virðist fara enn ein feikilega efnileg
kýr af þessum þekkta ættmeiði.
Eins og ætíð þá eru í nauts-
mæðraskrá nokkrir feikilega stórir
systrahópar. Rétt er að fara nokkr-
um orðum um nokkra þeirra.
Stærsta dætrahópinn þama á nú
Óli 88002 eða samtals 160 dætur.
Meirihluti af þessum kúm em ung-
ar kýr á öðru og þriðja mjólkur-
skeiði. Þó að þessar kýr veki yfir-
leitt ekki sérstaka athygli fyrir eigin
glæsileika eru þær ákaflega jafn-
góðar og mjög gallalitlir gripir,
þannig að úr þessum hópi ætti að
mega fá mikinn hóp af stórgóðum
nautsmæðrum á næstu árum.
Búi 89017 er þama nýr í hópi
toppfeðranna, en nú eru dætur hans
eftir aðalnotkunina að koma af full-
um þunga inn í framleiðslu og
þama eru í stómm hópum feikilega
öflugar afurðakýr. Þessar kýr verða
því tvímælalaust mjög áberandi í
nautsmæðrahópi næstu árin. Margt
af þessum kúm hafa oft aðeins mis-
jafna bolbyggingu, sérstaklega er
oft að sjá fremur grófa og þaklaga
malabyggingu. Júgurgerð er hins
vegar yfirleitt fremur sterkleg.
Þetta virðast yfirleitt vinsælar kýr
og góðar í mjöltum.
Andvari 87014 á á listanum 136
kýr. Þær eru orðnar eldri að jafnaði
en dætur þeirra Óla og Búa. Margar
þeirra eru þegar orðnar nautsmæð-
ur eða eiga í uppeldi syni á Uppeld-
isstöðinni. Þetta eru urn margt
feikilega öflugar kýr. Gallar þeirra
eru hins vegar að margar hafa pró-
teinhlutfall í lægra kantinum. Einn-
ig hefur komið í ljós að surnar af
þessum kúm virðast eiga við frjó-
semisvandamál að etja eftir annan
og þriðja kálf og því verður að gera
kröfur til að þær af þessum kúm,
sem notaðar verða sem nautsmæð-
ur, hafi ekki sýnt slíka galla.
Mjög langt stökk er síðan í næsta
hóp en það eru dætur Daða 87003,
en þær eru þama 64. Margar dætur
hans eru þegar nautsmæður enda í
hópi allra bestu kúa landsins í dag.
Margar af þessum kostagripum
verða nýttar þannig áfram á næstu
árum.
Dætur Holta 88017 eru litlu færri
eða 59. í þennan hóp kúa er veru-
leg ástæða til að leita mikið. Sumar
af þessum kúm eru með glæsileg-
ustu kúm, bæði að bolbyggingu og
í júgur- og spenagerð. Auk þess
hafa þessar kýr mjaltir eins og þær
verða bestar, en hins vegar virðast
þessar kýr ekki júgurhraustar
(frumutala).
Hálfbróðir Holta, Svelgur 88001,
á einni dóttur færra á skránni eða
58. í þann hóp ntá vafalítið leita
með góðum árangri og finna fjölda
mikilla kostagripa.
Þráður 86013 á þama 54 dætur
og það eru kýr sem eru verulega
áhugaverða vegna hinna alhliða
kosta hjá þessum kúm. Ekki ætti
frábær niðurstaða úr afkvæmarann-
sókn hjá ýmsum hálfbræðmm þess-
ara kúa núna að draga úr áhuga á
þeim.
Hér hefur verið vikið að þeim
nautum sem eiga fleiri en 50 dætur
á nautsmæðraskránni. Það sem
núna vekur mikla athygli er hins
vegar að nú eru að koma fram all-
mörg feikilega góð ung naut. All-
nokkur af þessum bestu nautum
eiga á bilinu 20-40 dætur á skránni.
Þessum kúm er ástæða til að veita
umtalsverða athygli. Þær eiga að
vísu ekki eins valinn hóp mæðra og
dætur eldri nautanna sem hafa ver-
ið í notkun sem nautsfeður og
þannig orðið til hópur úrvalsdætra
þeirra. Meðal þessara ungu kúa eru
feikilega efnilegir kynbótagripir
sem nauðsynlegt er að geta nýtt
fljótt í ræktuninni.
24 - FReVR 4-5/2001