Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.2001, Side 36

Freyr - 15.04.2001, Side 36
unnir brey tast þar af leiðandi minna hjá honum en öðrum nautum. Nú eru komnir fram á sjónarsviðið nokkrir synir Þráðar í hópi 1994 nautanna sem líta út fyrir að standi honum enn framar að kostum. Andvari 87014 skipar sér síðan í þriðja sætið með 114 í heildareink- unn. Dætur hans eru með allra mestu mjólkurkúm, einkunn hans þar 126, en mjólkin fremur efna- snauð. Alvarlegasti veikleiki hjá þessum kúm er samt ófrjósemi hjá þeim en fyrir frjósemi er kynbóta- mat hjá honum aðeins 63 og hefur lækkað nokkuð, en greinilegt er að hjá fullorðnum dætrum hans ber talsvert á ófrjósemi. Fjölmargar dætra hans eru samt stólpagripir sem móta sín spor í ræktuninni og á næsta ári koma margir sona hans til dóms og þær niðurstöður koma til að ráða mestu um áhrif hans til í ræktuninni í framtíðinni. Óli 88002 er með 113 í heildar- einkunn. Hjá honum hafa bæst við feikilega miklar nýjar upplýsingar um dætur vegna þess hve stóran hóp ungra kúa hann á nú eftir síð- ara notkunartímabil hans. Aðeins hefur slakað á mati hans um mjólk- urmagn, en þessar kýr standa vel með próteinhlutfall í mjólk og hann hefur mjög hátt mat um afurða- semi. Fyrir frjósemi og frumutölu er mat hans um meðaltal, mjaltir góðar hjá dætrum hans en mat fyrir skap þeirra hefur hins vegar fallið nokkuð. Þá koma þeir Daði 87003, Holti 88017, Sporður 88022, Almar 90019 og Smellur 92028 allir með 111 í heildareinkunn og Tjakkur 92022 stendur þar með 110. Allt eru þetta því þrælöflugir kynbóta- gripir og áhrif þeirra mikil í kúa- stofni landsmanna í dag. Elsta reynda nautið, sem boðið verður fram í almennri notkun frá Nautastöðinni árið 2001, er Forseti 90016. Þetta naut er að skila sterk- byggðum kúm með góða júgur- gerð og reynsla af dætrum hans, sem nú eru að koma margar í fram- leiðslu, mun skera úr um áfram- haldandi notkun hans. Úr árgangnum frá 1991 eru tvö naut enn í notkun. Negri 91002 stendur með óbreyttan góðan dóm um dætur og 107 í heildareinkunn. Bætir 91034 eru með 104 í einkunn en hin feikiháa einkunn hans um frumutölu, 127, gerir hann áhuga- verðan til frekari nota. Sæði úr vinsælustu kynbótanaut- unum frá 1992 er þegar uppurið en úr þeim hópi eru Skuggi 92025 og Tengill 92026 enn í notkun, báðir með mjög góðan dóm, 109 og 106, í heildareinkunn. Nautin frá 1993 Dómur nautanna frá 1993 hefur aukist umtalsvert að öryggi með þeim hlutfallslega miklu upplýs- ingum sem bæst hafa við á síðasta ári um dætur þessar nauta, bæði vegna aukins fjölda og viðbótar árs hjá þeim sem áður voru komnar með í dóm. Sú heildarmynd sem fékkst um þennan hóp við afkvæmadóminn á síðasta ári, að hann væri slakur, hefur því miður ekkert breyst. Aðeins tvö naut úr þessum hópi verða boðin áfram til almennra nota á árinu 2001. Klerkur 93021 er með 104 í heildareinkunn. Dætur hans eru um það að vera meðalkýr til afurða. Þær hafa hins vegar mjög góða júgurgerð og einnig er kynbótamat hans fyrir frumutölu í mjólk mjög gott eða 120, sem gefur vísbendingar um góða júgurhreysti þeirra. Blakkur 93026 er í heildareinkunn í hópi betri nauta með 108. Hjá dætrurn hans fara hins vegar of mikið sam- an miklir kostir og talsverðir gallar. Þetta eru prýðilega afurða- samar kýr, jákvæðar um frumutölu og með góðar mjaltir. Neikvæðu hliðamar eru hins vegar í frjósemi og skapi kúnna, auk þess sem júg- urgerð er ákaflega breytileg hjá þessum kúm. Blakki verður samt að telja til tekna að förgun er hlut- fallslega minni hjá dætrum hans en dætrum annarra nauta fæddra 1993 á árinu 2000. Hin nautin, sem voru í almennri notkun á síðasta ári, þykir ekki ástæða til að bjóða áfram til slíkra nota, en óski einhverjir bændur eftir að nota þau er hægt að sér- panta sæði úr þeim. Foss 93006 gefur fallegar kýr með afbragðs- góðar mjaltir, nokkuð drjúgar af- urðakýr, en próteinhlutfall í mjólk hjá þeim er alltof lágt. Akkur 93012 skilar miklum mjólkur- kúm, en þar þyrfti sérstaklega spenagerð að vera betri. Dætur Snarfara 93018 eru fallnar í dórni um afurðasemi og aðeins undir meðallag þó að þetta séu kosta- gripir um ýmsa aðra eiginleika. Svartur 93027 er að skila mjög drjúgum kúm um afurðir, en gallar í öðrum eiginleikum eru það miklir að hann er tæpast áhugaverður kostur til mikillar meiri notkunar. Motí Landbúnaður mikilvægur í Danmörku Þó að danskir bændur séu ekki margir þá skapa þeir mikil verð- mæti. Dönsk búvöruframleiðsla og útflutningur búvara stendur fyrir 20% af vöruútflutningi Dan- merkur, en meðaltal landa ESB er 8,5% og OECD landa 7,6%. Þáer matvælaiðnaður í Danmörku 28,2% af öllum iðnaði í landinu, en í ESB í heild 12% og í OECD 10,8%. Nettó útflutningsverð- mæti framleiðslu hvers bónda í Danmörku er um 2,8 millj. króna en í löndum ESB er þessi upphæð að meðaltali mínus kr. 61 þúsund og í OECD mínus kr. 20 þúsund. (Bondebladet nr. 12/2001 eftir Landbrugsmagasinet). 36 - FR€VR 4-5/2001

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.