Freyr - 15.04.2001, Qupperneq 44
Feðraáhrif
Vanhöld
6. mynd. Áhrif feðra kálfanna á vanhöld.
Samhengi milli vanhalda hjá afkomendum nauta, sem
móðurfeður kálfa undan 1. kálfs kvígum og feður kálfa
y = 0,3005x+ 14,107
7. mynd. Samhengi vanhalda hjá nautum sem feður kálfa og sem móðurfeður þeirra.
í þessu tilfelli er gert ráð fyrir að
nautin eigi a.m.k. 50 afkvæmi,
þannig að sárafá heimanaut eru
með hér. Fjöldi feðra er alls 263.
Þá er 99999, en það er lykillinn
yfir óskráð heimanaut, skoðaður
sérstaklega. A hann eru skráð
25.751 afkvæmi, af þeim eru 3614
vanhalda kálfar, eða 14%, sem er
nærri tvöfalt hærra hlutfall en gerist
meðal afkvæma kynbótanautanna,
þar sem meðaltalið er 7,8%. Þess
ber þó að geta að 72,1% af skráðum
afkvæmum óskráðra heimanauta
eru undan 1. kálfs kvígum, þannig
að það má telja fullvíst að þar sé
um samspilsáhrif að ræða.
Til þess að ganga úr skugga um
hvort svo sé, eru afkvæmi 1. kálfs
kvígnanna skoðuð sér, þau eru
49.181 talsins. Niðurstaðan úr
þeirri athugun er að vanhöld eru
16,5% þar sem 99999 er skráður
sem faðir kálfsins, fjöldi afkvæma
heimanauta er 18.111. Vanhöld
kálfa sem hafa engan skráðan föður
(faðir í gagnasafni er 0) eru enn
hærri eða 18,9%, hér er fjöldinn
12.425. Gert er ráð fyrir að hér sé
einnig um heimanaut að ræða.
Vanhöld meðal afkvæma 114
kynbótanauta sem eiga fleiri en 50
afkvæmi undan 1. kálfs kvígum eru
12,3%, fjöldi afkvæma er 8.518.
Það má einnig nefna að holda-
nautin koma ágætlega út í þessum
samanburði, þar sem vanhöld und-
an þeirn eru rétt rúmlega 7%, hjá
Limousine blendingum eru þau um
8%.
Á 7. mynd má sjá samhengi þess
er nautin eru annars vegar feður
kálfa og hins vegar er
þau eru móðurfeður
kálfa undan 1. kálfs
kvígum. Alls er hér um
að ræða 184 naut.
Eins og sjá má er
samhengið ekki mark-
tækt, sem bendir til þess
að hér sé um tvo
eiginleika að ræða, ann-
ars vegar sem lífsþróttur
kálfsins og hins vegar
sem burðareiginleiki
móðurinnar.
Þegar litið er á áhrif
feðra kálfanna, sést að
þar er verulegur breyti-
leiki í vanhöldum á
ferðinni. Því sýnist fullt
tilefni til að fara í út-
reikninga á erfðastuðlum
hvað þennan eiginleika
varðar og kanna kyn-
bótagildi nauta m.t.t.
þessa. Það hve veikt
samband virðist vera á
milli vanhalda hjá
afkomendum nauta, þar
sem þeir eru annars veg-
ar feður kálfanna og hins
vegar móðurfeður þeirra,
er í fullu samræmi við
það sem erlendar rann-
sóknir hafa sýnt, að þetta
sé sitt hvor eiginleikinn.
Þá er það umhugsunarefni að
vanhöld kálfa undan 1. kálfs kvíg-
um, þar sem faðir kálfsins er
heimanaut, eru mun hærri en þar
sem um kynbótanaut er að ræða.
Þá vekur það undrun að yfir 60% af
afkvæmum 1. kálfs kvígna eru und-
an óskráðum heimanautum, er
sennilega leitun að jafn háu hlut-
falli í hinum vestræna heimi.
Á 8. mynd má sjá áhrif skyld-
leikastuðuls á vanhöld, hér er sýnt
samhengi skyldleikastuðuls 1. kálfs
kvígna og vanhalda á kálfum undan
þeim. Þróun skyldleikaræktarstuð-
uls er sú að hann hækkar um rúmt
hálft prósent hjá 1. kálfs kvígunum,
fer úr 2,5 í tæp 3% og tæpt 1% hjá
kálfum þeirra, fer úr rúmum 3% í
tæp 4%, á tímabilinu 1993-2000.
44 - FR€YR 4-5/2001