Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.2001, Síða 45

Freyr - 15.04.2001, Síða 45
1,25 E 3 TJ :0 I , I O £ C (O > 1 1 k_ 3 3 1,05 Samhengi skyldleikastuðuls og kálfadauða 6 8 10 Skyldleikastuðull, % 12 14 16 8. mynd. Áhrif skyldleikastuðuls 1. kálfs kvígna á vanhöld. Samhengi skyldleikastuóuls og kálfadauöa 9. mynd. Áhrif skyldleikastuðuls á vanhöld. Þó ber að geta þess hér að verulega stór hluti kálfanna er ófeðraður, þannig að ekki er hægt að reikna skyldleika- stuðul nema fyrir hluta kálfa undan 1. kálfs kvígum. Af myndinni má ráða að líkur á því að 1. kálfs kvíga eignist dautt af- kvæmi aukast eftir því sem skyldleikastuðull hennar er hærri, t.d. má segja ef líkur á vanhöld- um við skyldleikastuðul = 0 eru 1, þá eru líkur á vanhöldum 1,11 ef skyldleikastuðull hennar er 7%, líkumar á van- höldum aukast um 11 af hundraði. Á 9. mynd má sjá hliðstæðar niðurstöður fyrir kálfana. Eins og áður er getið eru skyldleikaáhrifin mun sterkari hér en hjá kvígunum. Ef skyld- leikastuðull kálfs er 6%, eru 14% meiri líkur á vanhöldum en ef skyld- leikastuðullinn er 0. Hliðstæð tala hjá kvíg- unum var 10%. Áhrif skyldleikastuðuls á van- höldin eru mjög skýr, þó heldur sterkari hjá kálfunum heldur en hjá kvígunum, það er í fullu samræmi við það sem haldið hefur verið fram, að skyldleikarækt hafi nei- kvæð áhrif á eiginleika eins og lífs- þrótt, að skyldleikahnignun komi einna helst fram í eiginleikum eins og þeim sem tengdir eru frjósemi og hæfileikans að eignast lifandi afkvæmi. Það hversu holdanaut koma vel út í samanburði við íslensk naut, gefur tilefni til að ætla að þar sé um blendingsþrótt að ræða gagnvart þessum eiginleika. Helstu rök sem færa má fyrir því eru að í athugun , m.t.t. burðarerfiðleika hjá íslenskum kúm, kemur fram að mun meira var um burðarerfðleika hjá kúm sem báru blendingskálfum heldur en þeim sem báru al- íslenskum kálfum. Sérstaklega átti það við hjá þeim kúm sem báru kálfum undan Limousine nautum. Einnig var meðgöngutími Lim- ousine blendinganna um viku lengri, sem hefur sýnt sig að hefur neikvæð áhrif í sjálfu sér. Þrátt fyrir þetta eru vanhöld hjá blend- ingskálfunum ekki meiri en raun ber vitni, hjá Limousine nautunum mælast þau að jafnaði um 8% eins og áður segir, á móti 10,4% meðal alíslenska kálfa. Ályktanir Það er niðurstaða verkefnisins að vanhöld kálfa eru mjög mikil í ís- lenska kúastofninum. Um flest haga þau sér eins hér á landi og þekkist erlendis. Þó að ekki hafi sést marktæk aukning í vanhöldum á sl. árum, þá er það umhugsunar- efni þegar meira en 9. hver kálfur kemst ekki lifandi í heiminn, eins og gerist á sl. ári. Það sem sýnist helst vera til ráða hvað þetta varðar er: Að kvígur séu fullra tveggja ára við I. burð, þó er engin ástæða til að þær séu mikið eldri en það. Hinn mikli munur milli búa bendir til þess að víða þurfí að bæta fóðrun, hirðingu og aðbúnað, hjá 1. kálfs kvígunum sérstaklega. Sérstök aðgát skal viðhöfð ef kýr fá kálfssótt löngu fyrir eða eftir tal. Munur milli nauta bendir til Frh. á bls. 48 pR€VR 4-5/2001 - 45

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.