Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.2001, Blaðsíða 47

Freyr - 15.04.2001, Blaðsíða 47
Tafla 1 Bú Nyt, kg Fjöldi kúa Heilsufar Frjósemi Endurnýjunar- Kálfavanh. hlutfall Ald. kv. v. 1. burð B 8200 132 Gott Góð 40% 6% 26 mánuðir M 8000 140 Meðalgott Góð 46% 12% 30 mánuðir Kostnaður við uppeldi á nýjum gripum er verulegur og endingar- tíminn stuttur, 2,5-3 mjaltaskeið að jafnaði. Þetta þýðir endumýjunar- hlutfall upp á 35-40%, en almennt er talið æskilegt að það sé lægra en 30%. Einnig hefur einkunn fyrir endingu jákvæð tengsl við aðra mikilvæga eiginleika, s.s. nyt, júg- urheilbrigði, frjósemi og júgurdýpt. Lítil sem engin tengsl eru milli annarra byggingareiginleika og endingar, boldýpt hefur t.a.m. nei- kvætt samhengi við endingu. Tækninýjungar í mjólkurframleiðslunni Á þriðjudeginum var fundurinn einnig deildaskiptur, þá var fjallað um fóðmn og hirðingu geldkúa, tækninýjungar í mjólkurframleiðsl- unni, almennt um fóður handa nautgripum og rekstrarstjómun á stórbúum. Valdi ég að fylgjast með tækninýjungum og stórbúum. Óeinangruð legubásafjós með náttúrulegri loftræstingu eru nær allsráðandi í þeim 2.700 íjósum sem byggð hafa verið undanfarinn ára- tug. Mjaltaaðstaða, mjólkurhús og þjónusturými em hins vegar ein- angmð, upphituð og með viftum fýr- ir loftræstingu. í langflestum ijósum er hefðbundinn mjaltabás, algengt er að hann sé með hreyfanlegu gólfi, þar sem slíkt bætir mjög vinnu- aðstöðu mjaltamannsins. Tiltölulega fáir hafa hagnýtt sér sjálfvirka mjaltatækni enn sem komið er. I flestum nýjum íjósum er fóðrað með heilfóðri, á sl. áratug seldust um 3000 heilfóðurvagnar í Danmörku. Flestir þeirra em með innbyggðri vog, þannig að unnt er að blanda fóðrið af talsverðri nákvæmni. Framangreind fjósgerð mun áfram verða ráðandi, byggingin sjálf mun þó taka nokkmm breyt- ingum, verða einfaldari og í aukn- um mæli gerð úr stöðluðum eining- um, t.d. gólf og sökkull. Aukin áhersla verður lögð á að nýta nær- ingarefni sem best, því verður að draga úr uppgufun á t.d. köfnunar- efni, það kallar á nýjar leiðir í hönnun á gólfumyrimlum og með- höndlun mykjunnar. Þá er góð skipulagning framkvæmda í heiðri höfð, ef ætlunin er að tvöfalda bú- stærðina verður ekki einungis að huga að aðstöðu fyrir mjólkurkým- ar, heldur líka fyrir kálfana, kvíg- urnar og geldkýmar. Á þessu sviði er mikinn fróðleik að sækja á síð- umar: www.lr.dk., heimasíða Land- brugets Rádgivningscenter og www.lr.dk/FarmTest, prófun á tækninýjungum hjá bændum. Eitt erindið fjallaði um notkun á sjálfvirkum kálfafóstrum, kosti þeirra og galla. Um 250 slík tæki eru í notkun í Danmörku. Flest þeirra eru miðuð við að anna 25 til 30 kálfum, athuganir benda til þess að svo stórir hópar séu ekki æski- legir, hætta er á að þeir minnstu verði útundan sem skapar streitu og óróleika í flokknum. Því er ráðlagt að hafa að hámarki 15-20 kálfa um hverja fóstru og æskilegt er að þeir séu sem svipaðastir að stærð. Talsverð vinna er fólgin í að kenna kálfunum að drekka, en á móti kemur minna líkamlegt erfiði og ca. 30-40% styttri vinnutími við mjólkurfóðrunina í heild. Einnig er verulegur kostur við þetta kerfi að kálfamir hafa meira rými til að hreyfa sig og hafa „samskipti" við aðra kálfa. Helstu ókostimir eru að smithætta eykst, örðugra er að viðhafa einstaklingseftirlit og hætta er á að kálfarnir sjúgi hver annan. Rekstur stórbúa Fyrsta erindið í þessari deild hélt Arne Munk, ráðunautur hjá Lands- kontoret for Kvæg. Hann fjallaði um þann mikla breytileika sem er í framlegð milli búa af svipaðri stærð, og tók dæmi af tveimur jafn Tafla 2. Ár 1996 1997 1998 1999* Fjöldi kúa 83 125 141 142 Fjöldi hektara 92 126 132 135 Framleiðsla, kg mjólkur 630.000 940.000 1.020.000 1.070.000 Hagnaður, öll bú, íkr. 1.820.000 2.810.000 3.150.000 2.220.000 Hagnaður, 5 bestu, íkr. 2.070.000 2.980.000 5.440.000 4.870.000 *) Árið 1999 varð verðlækkun á mjólk í Danmörku, vegna harðrar samkeppni milli MD Foods og Klpver mælk. Fyrirtækin sameinuðust í lok árs 1999. FR€VR 4-5/2001 - 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.