Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.2003, Qupperneq 27

Freyr - 01.09.2003, Qupperneq 27
Tímabil Tímabil Tímabil Tímabil Tímabil Tímabil Tímabil 1 2 3 4 5 6 7 Tímabil (Meóaltal u.þ.b. 15 daga) 2. mynd. FEm á lamb, munur milli Ijóslota. Eitt timabil meðaltal FEm á lamb fyrir u.þ.b. 15 daga. þar sem annar hópurinn hafði lýs- ingu 16 tíma á sólahring en myrk- ur í 8 tíma en hinn hafði einungis eðlilega daglengd. í hvorri ljós- lotu voru síðan tvær fóðurmeð- ferðir, með og án fóðurblöndu. Lömbin voru fóðruð að vild á há og snemmslegnu heyi sem verkað var í ferbagga og át þeirra mælt. Heysýni voru tekin úr öllum fer- böggunum og orku- og prótein- innihald mælt. Lömbin voru vigt- uð hálfsmánaðarlega og þykkt bakvöðva og fitu á baki mæld með ómsjá í upphafí og lok tilraunar. Flokkun, fallþungi og skrokkmál voru skráð eftir slátrun. Niðurstöður Lömbin í lýsingunni voru að meðaltali 5,28 kg þyngri en lömb- in í eðlilegu daglengdinni í lok til- raunarinnar. Sauðir, sem aldir voru við 16 tíma daglengd, bættu við sig að meðaltali 16,1 kg í lif- andi þunga, en gimbramar 13,6 kg. Við eðlilega daglengd þyngd- ust sauðirnir um 11,1 kg og gimbramar um 8,1 kg. Lömbin í lýsingunni vom einnig að skila meiri fallþunga eða 1,21 kg meira en lömbin í eðlilegri daglengd. A 1. mynd eru sýndar þungabreyt- ingar í tilraunahópunum. Það sem vekur athygli er að þyngdaraukning hópanna er svip- uð þar til í lok desember. Þá taka lömbin í lengri ljóslotunni veru- lega við sér. Lömbin í eðlilegu daglengdinni vaxa einnig en mun hægar en lömbin í lýsingunni. Það sést einnig að vaxtarmynstrið er svipað hjá sauðum og gimbmm í sömu ljóslotu. Þegar horft er á þungaaukningu lambanna á dag þá var mjög greinilegur munur milli lýsingar- hópsins og hópsins í eðlilegu dag- lengdinni. Á 2. mynd má sjá aukningu í áti lambanna í FEm/lamb á dag milli tímabila en meðaltölin em íyrir u.þ.b. 15 daga tímabil. Lömbin í eðlilegu daglengdinni éta meira í upphafi tilraunar en í kringum ára- mót fara lömbin í lengri ljóslotunni að taka til sin meiri orku í auknu áti. Aukning í grófföðuráti skilar sér einnig í auknu próteináti lamb- anna. Það fylgir svipuðum línum og átið og því var próteinát hjá ljósalömbunum mun meira en hjá lömbunum í eðlilegu daglengdinni í síðari hluta tilraunarinnar. Tilraunameðferðir höfðu ekki áhrif á þykkt bakvöðva sam- kvæmt ómmælingum. Lömbin í lýsingunni mældust með meiri fítu á bakvöðva en lömb í eðlilegri daglengd, sá munur reyndist ekki marktækur. Enginn munur var á vöðvaþykkt og bakfitu milli fóð- urmeðferða en gimbrar voru að jafnaði feitari en sauðir. Tilraunameðferðir höfðu ekki áhrif á flokkun skrokkanna sam- kvæmt kjötmati. Hins vegar fékkst marktækur munur á milli kynja þar sem gimbramar vom að flokkast betur en sauðimir. Sauðimir vom heldur magrari en gimbramar og fleiri gimbrar féllu um verðflokk vegna fítu. Ekki var munur á fítuflokkun eftir meðferðum en kynjamunur var hins vegar marktækur. Umræður Aukin daglengd skilaði meiri lífþunga sem skilaði sér í auknum fallþunga. Þungamunurinn milli ljóslota var í samræmi við muninn í gróffóðuráti lambanna og því virðist sem ljósmeðferðin hafí fyrst og fremst skilað sér í auknu áti lambanna. Öllum lömbunum var gefíð fiskimjöl en það ást illa. Áætlað var að gefa 60 g af fiski- mjöli á lamb á dag í tilrauninni en eitthvað var dregið úr gjöfínni þar sem það ást illa. Hugsanlega hefði mátt ná eitthvað meiri þyng- ingu hjá þessum lömbum ef þau hefðu étið fiskimjölið. Það sem kom nokkuð á óvart var að lömbin, sem voru í eðlilegu daglengdinni, höfðu marktækt hærri kjötprósentu heldur en lömb- in í lýsingunni. Lömbin í lýsing- unni voru að meðaltal- i 5,28 kg þyngri í lok tilraunarinn- ar og sá munur skilaði 1,21 kg í fallþunga, sem er minna en búist var við. Það virðist því vera að lömbin í lýsingunni hafi haft stærri og meiri innyfli og mör heldur en hin lömbin en það var ekki mælt. Einnig má álykta að lömbin, sem voru í lengri ljóslotu og átu meira, hafi verið með meiri vambarfylli en lömbin í eðlilegu daglengdinni. Freyr 7/2003 - 271

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.