Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 31
2. tafla. Fallþungi, flokkun, síðufita (J-mál), fallprósenta og einkunnir fyrir læri og frampart
á sláturskrokkum á lömbum í tilrauninni11
HOPUR Fjöldi Fallbungi Gerð Fitufl. J-mál Fall% Læra stiq Framp.stiq
A. viðmiðun 17 12,84a 6,76a 4,92a 6,39a 41,Oa 3,03a 3,07a
B. kál 17 15,88b 8,83b 7,43b 8,96b 43,6c 3,77bc 4,03c
C. hey-3 vikur 15 15,91 b 8,40b 9,31c 11,73c 41,7ab 3,47b 3,59b
D.hey+kjarnf.-3 v. 17 16,34bc 9,23b 9,39c 12,16c 43,0bc 3,79bc 3,79bc
E.hey- 6 vikur 17 17,37c 10,47c 9,57c 12,63cd 42,3abc 3,80bc 3,76bc
F. hey+kjarnf.-6 v. 16 17,95c 10,41c 10,88d 14,58d 43,6c 3,86c 3,91bc
1) Gildi i hverjum dálki fyrir sig, sem hafa ekki sama bókstaf, eru marktækt frábrugðin tölfræðilega (p<0.05).
er meiri, því minna eykst heildarát
við aukna kjamfóðurgjöf. Sömu-
leiðis er það þekkt að eftir því sem
meira er gefið af kjamfóðri, því
minna eykst heildarátið íyrir hvert
gramm af kjamfóðri sem geftð er.
Fóðurtilraunir á ám á Hesti, einkum
eftir burð, hafa sýnt lítil áhrif á
gróffóðurát af litlum kjamfóður-
skömmtum (100-200 g/dag) en við
stærri kjamfóðurskammta dró
verulega úr gróífóðuráti (Stefán
Sch. Thorsteinsson o.fl. 1993, Stef-
án Sch. Thorsteinsson og Sigurgeir
Þorgeirsson, 1989).
Fallþungi, fiokkun og skrokk-
mælingar
I 2. töflu em helstu niðurstöður
varðandi sláturskrokkana. Saman-
burður á hópum A og B sýnir að
fallþungaaukning lambanna á 5
vikna kálbeit er um 3 kg sem verð-
ur að teljast prýðilegur vöxtur og í
ágætu samræmi við fyrri tilrauna-
niðurstöður (Emma Eyþórsdóttir
og Jóhannes Sveinbjömsson,
2001). Með því að bera svo hópa C
og D saman við hóp B sést að ekki
er um að ræða marktæka fallþunga-
aukningu á 3ja vikna innifóðrunar-
tímabili, þó að kjamfóðurhópurinn
virðist lítillega vera að byija að
taka við sér. Hins vegar skilar sex
vikna innieldi sér í um 1,5 kg fall-
þungaaukningu hjá hóp E sem ein-
göngu fékk gróffóður og um 2 kg
hjá kjamfóðurhópnum (F).
Eins og gjaman er þá skilar auk-
inn fallþungi sér í bættri flokkun í
sláturhúsi er varðar gerð. Þannig er
gerðarflokkun kálhóps (B) og þeir-
ra hópa sem vom á innieldi í þijár
vikur (C, D) marktækt betri en við-
miðunarhópsins (A) er var slátrað
beint af úthaga. Gerðarflokkun
lambahópanna, er fóðraðir vom
inni í 6 vikur (E,F), var svo mark-
tækt betri en allra hinna enda farin
að nálgast U-flokk að meðaltali.
Mismunandi gerðarflokkun endur-
speglast að mestu í mun á læra-,og
ffampartsstigum í sláturhúsi. Það
er þó athyglisvert hvað lömbin,
sem slátrað er beint af kálinu, koma
vel út hvað þann þátt snertir.
Fituflokkun versnar hins vegar
með auknum fallþunga, í samræmi
við aukna fituþykkt á síðu (J-mál).
Fleira kemur þó til en aukinn fall-
þungi að því er virðist. Þannig er
fituflokkunin og J-málið marktækt
óhagstæðara eftir 3ja vikna inni-
fóðrun (hópar C og D) heldur en
beint af kálbeitinni (hópur B) þrátt
fyrir að fallþungamunur milli þess-
ara hópa væri lítill og ekki mark-
tækur. Er þetta í samræmi við aðr-
ar niðurstöður (Jóhannes Svein-
bjömsson og Fanney Ólöf Láms-
dóttir, 2002) og reynslu margra
bænda að fitusöfnun gimbrarlamba
hefur tilhneigingu til að aukast
mjög er líður á haustið. Að ein-
hverju leyti getur þetta tengst árs-
tíðabundnum lífeðlisfræðilegum
sveiflum er geta verið fólgnar í því
að aukin fitusöfhun tengist fengitíð
hjá gimbrunum.
I þessari tilraun voru eins og
áður sagði bæði gimbrar og
haustgeltir sauðir, í nokkuð ójöfn-
um hlutfollum þó. Með fyrirvara
um það hve fáir sauðimir voru, er
fróðlegt að líta aðeins nánar á
fítusöfnun hvors kyns um sig. í
3. töflu er samanburður á fall-
þunga og síðufítu (J-máli) sauða
og gimbra innan ólíkra meðferð-
arhópa. Hjá viðmiðunarhóp (A)
er fallþungi nánast sá sami hjá
báðum kynjum og ekki verulegur
munur á síðufítu. Sauðir í kálhóp
(B) eru lítillega þyngri en gimbr-
ar en J-mál tæpum 2 mm minna.
í C og D hópum er fallþungi svip-
aður hjá sauðum og gimbmm en
síðufíta um 1,5 mm meiri hjá
gimbrunum. Munurinn á kynjun-
um er þó lang mestur í E og F
hópum, þ.e. við 6 vikna innieldi,
3. tafla. Fallþungi og síóufita (J-mál) eftir kynjum og
meðferðarhópum.
Gelt hrútlömb Glmbrar
Hópur Fjöldi Fallbunqi J-mál Fjöldi Fallþunqi J-mál
A. viðmiðun 5 12,84 6,20 12 12,78 6,58
B. kál 4 16,05 8,00 13 15,77 9,93
C. hey-3 vikur 4 15,90 11,00 11 15,85 12,46
D. hey+kjarnf.-3 v. 5 16,36 11,40 12 16,28 12,92
E. hey- 6 vikur 5 17,34 10,00 12 17,33 15,25
F. hey+kjarnf.-6 v. 4 18,43 12,25 12 17,72 16,92
Freyr 7/2003 - 31 |