Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2003, Síða 36

Freyr - 01.09.2003, Síða 36
Mynd 8. Kindur í óeinagraðri hálmstíu á Hesti. Hálmstía Eins og áður hefur verið vikið að gengu 30 ær á hálmi í óein- angraðri hlöðu. Þessar ær voru hreinni en ær á öðrum gólfgerð- um, klaufaslit var í meðallagi og heilbrigði gott. Við fóðurganginn var upphækkaður pallur með timburrimlum, hugsaður til að minnka hálmnotkun. Mikið slæddist af hálmi og heyi á riml- ana og sópa þurfti pallinn dag- lega. Næsta vetur er ætlunin að klæða pallinn plastrimlum sem vonandi þarf ekki að sópa eins oft. Dagleg hálmnotkun reyndist um 0,2 kg/kind, sem við 200 inni- stöðudaga gefur 40 kg á kindina. Ætla má að hálmur kosti 7-8 kr./kg sem þýðir að hálmkostnaður á kind er um kr. 300. Kostnaðartölur fyrir hinar gólfgerðimar liggja enn ekki fyrir, en þar þarf að sjálfsögðu að taka tillit til kostnaðar við efni, vinnu, viðhald og hvort gerður er djúpur eða grunnur haugkjallari. Nœstu skref Síðasta vor fékk Sigurður Þ. Guðmundsson styrk frá Nýsköp- unarsjóði námsmanna til að heimsækja 40 sauðtjárbændur vítt og breitt um landið og skoða gerðir og ástand gólfa og ræða við sauðíjárbændur um reynsluna af mismunandi gólfgerðum. Nið- urstöður heimsóknanna munu liggja fyrir undir lok september. í vetur verða teknar til prófunar nokkrar nýjar gólfgerðir á Hesti, en einnig verður haldið áfram þróunarvinnu á hálmstíum fyrir sauðfé. Molar Afleiðingar HITA- BYLGJUNNAR í FRAKK- LANDI Upplýst er að hitabylgjan i Frakklandi á liðnu sumri varð þúsundum manna í Frakklandi að fjörtjóni. Minna hefur verið sagt frá því tjóni sem franskur landbúnaður var fyrir en það varð gifurlega mikið. Þar má nefna að 1,5 milljón kjötfugla og kalkúna drápust og um ein milljón varpfugla. Þegar hitinn komst í 35°C köfnuðu fuglarnir þrátt fyrir viðbótar loft- ræstingu og að sprautað var vatni á húsin. Þá urðu svínabú fyrir stórtjóni og skortur er á fóðri fyrir nautgripi. Nautgripa- bændur áætla að þeir verði að kaupa um helming af þvi hey- fóðri sem þeir þarfnast á háu verði. Áætlað er að hitabylgjan hafi fram að þessu kostað franska bændur um einn milljarð evra, eða hvern bónda að jafnaði 22 þúsund evrur. Bændur vonast nú til þess að fá bætur úr ham- farasjóði sem stofnaður var inn- an ESB eftir flóðin í Mið-Evrópu á sl. ári. Sjóðurinn er fjármagn- aður að hálfu af framlögum frá sambandinu en að hálfu frá samtökum landbúnaðarins. Á þessu ári er talið að sjóðurinn ráði ekki við að bæta þann skaða sem honum ber. Því hef- ur aukist þrýstingur á ríkissjóð Frakklands að hlaupa undir bakka og hefur hið opinbera þegar veitt framlög til flutninga á fóðri til þeirra svæða sem verst hafa orðið úti í þurrkun- um. (Landsbygdens Folk 22. ágúst 2003). Bændum fækkar í Hollandi Fækkun bænda í Hollandi nemur um 13 bændum á dag um þessar mundir. Fjöldi bænda í Hollandi er nú kominn niður í 90 þúsund, garðyrkju- bændur meðtaldir. Meðalbújörð- in er 37 ha að stærð. í Hollandi eru aldir upp um 40 milljón grís- ir á ári og 60% af svínakjötinu er flutt út. Þrettándi hver svína- bóndi í Hollandi hættir búskap á ári. (Bondebladet nr. 31-32/2003). | 36 - Freyr 7/2003

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.