Freyr - 01.09.2003, Page 37
Nlðurstðður úr kjötmati
sláturlamba í fjárræktar-
félögunum haustið 2002
Með breytingum á kjöt-
mati árið 1998 fengu
bændur og söiuaðilar
á dilkakjöti í hendurnar miklu
virkara kerfi til gæðaflokkunar
á kjöti en áður var fyrir hendi.
Eins og margir þekkja er í
þessu mati alveg aðskilið mat á
þeim tveimur þáttum, sem
mestu ráða um gæði framleiðsl-
unnar, fitu og vöðvafyllingu.
Við samanburð á niðurstöðum
úr matinu er að vísu sá vandi á
ferð að enn er greinilegur
nokkuð munur í framkvæmd
matsins á milii sláturhúsa. Hér
á eftir verður bent á ákveðin
slík dæmi sem blasa við í sam-
anburði á niðurstöðum milli
ára. I þessu sambandi er samt
rétt að minna á það að í eldra
kjötmati, sem í meginatriðum
var búið að vera Iítt breytt í um
tvo áratugi, var slíkur munur á
milli sláturhúsa ætíð fyrir
hendi.
Hér á eftir verður gerð grein
fyrir nokkrum atriðum, sem lesa
má úr niðurstöðunum frá haustinu
2002. Þar sem þessar niðurstöður
eru allar birtar sem meðaltalstölur
fyrir mismunandi lambahópa er
rétt að rifja upp hvemig matsskal-
anum er breytt í töluskala fyrir út-
reikninga. Þar fær fituflokkur 1
tölugildið 2, fituflokkur 2 fær
tölugildið 5, fituflokkur 3 er með
tölugildið 8, fituflokkur 3+ hefur
tölugildið 9, fituflokkur 4 fær þar
tölugildið 11 og fituflokkur 5
reiknast sem 14. Fyrir vöðvamat
eru tölugildi þannig sett að P fær
tölugildið 2, O hefur gildið 5, R
reiknast sem 8, U hefurgildið 11 í
útreikningum og E reiknast sem
14. Þannig er ljóst að sem hæst
tölugildi í vöðvamati er jákvætt en
í fitumati er hins vegar sem lægst
meðaltal æskilegt, í öllu falli nið-
ur að gildinu 5.
Þegar niðurstöður eru skoðaðar
ber að hafa í huga að einnig hefur
nokkuð verið stuðst við hlutfallið
á milli vöðvamats og fitumats.
Eftir því sem þetta hlutfall er
hærra er ljóst að verið er að fram-
Tafla 1. Meðaltal úr kjötmati í fjárræktarfélögunum haustið 2002 í einstökum sýslum
Sýsla Fjöldi Gerð Fita Hlutfall
Kjósarsýsla 1.016 6,85 7,01 98
Borgarfjarðarsýsla 7.443 7,98 6,87 116
Mýrasýsla 10.888 7,49 6,67 112
Snæfellsnes 13.404 7,61 6,82 112
Dalasýsla 20.402 7,18 6,45 111
Barðastrandarsýsla 11.235 6,93 6,12 113
V-ísafjarðarsýsla 5.389 7,62 7,16 106
N-ísafjarðarsýsla 2.786 7,52 7,31 103
Strandasýsla 17.960 7,88 6,71 117
V-Húnavatnssýsla 21.763 7,88 7,14 110
A-Húnavatnssýsla 16.432 7,18 6,23 115
Skagafjörður 24.088 7,55 6,85 110
Eyjafjörður 13.289 7,54 6,84 110
S-Þingeyjarsýsla 28.767 7,34 6,42 114
N-Þingeyjarsýsla 26.015 7,63 7,36 104
N-Múlasýsla 23.116 6,82 6,74 101
S-Múlasýsla 9.560 6,97 6,89 101
A-Skaftafellssýsla 16.006 7,76 6,69 116
V-Skaftafellssýsla 16.285 7,57 6,91 110
Rangárvallasýsla 9.346 7,10 6,99 102
Árnessýsla 13.357 7,10 6,93 102
Á landinu öllu 308.547 7,43 6,78 110
Árið 2001 298.921 7,29 6,64 110
Árið 2000 273.893 7,35 6,90 107
Árið 1999 254.701 6,75 6,20 109
Árið 1998 225.485 6,52 6,16 106
Freyr 7/2003 - 37 |