Freyr

Volume

Freyr - 01.09.2003, Page 55

Freyr - 01.09.2003, Page 55
Hliðarafurðir í sauðfjárrækt r t er komin skýrsla um aukna nýtingu hliðaraf- urða í sauðfjárrækt. Skýrsluna vann Matra - Mat- vælarannsóknir Keldnaholti, en höfundur hennar er Asbjörn Jónsson, matvælafræðingur hjá stofnuninni. Skýrslan er fyrsti áfangi í því verkefni hennar að auka verðmæti og nýtingu sauðfjárafurða. Verkefnið var styrkt af Framleiðnisjóði land- búnaðarins og Landbúnaðar- ráðuneytinu. Safnað var upplýsingum víða og m.a. var fylgst með sauðijár- slátrun í Borgamesi sl. haust og vegin þar líffæri og kirtlar úr slát- urlömbum til að reikna út hve mikið fellur til af hliðarafurðum sauðkindarinnar; til manneldis, í skepnufóður og í úrgang. Tafla 1 sýnir sauðíjárslátrun ár- ið 2002 Tafla 2 sýnir magn algengra af- urða úr dilkaslátrun árið 2002 með samanburði við hliðstæða rannsókn sem fór ffam í Borgar- nesi og á Blönduósi árið 1990 Heildarmagn hliðarafúrða árið 2002, sem fáanleg em úr slátmn, er rúmlega 5.500 tonn. Af því fara rúmlega 1.300 tonn til manneldis, til bræðslu hjá Kjötmjöli ehf. í Hraungerðishreppi um 660 tonn, til loðdýrafóðurs 18 tonn en rúm- lega 3.100 tonn em urðuð. NÝTING HLIÐARAFURÐA FRÁ SAUÐFJÁRRÆKT HÉR Á LANDI Hliðarafurðir sauðljárslátmnar nýtast í nokkrum greinum iðnað- ar, bæði hér á landi og erlendis, meðal annars til framleiðslu i mat- vælaiðnaði, skinnaiðnaði, fram- leiðslu á gæludýrafóðri og loð- dýrafóðri. Erlendis em hliðaraf- urðir nýttar í öðmm iðnaði, svo sem í framleiðslu á snyrti- og hreinlætisvörum, ensímfram- leiðslu og framleiðslu á ýmsum lyljum. Einnig er töluverð notkun í plastiðnaði og leðuriðnaði. Tegundir INNMATAR Þessi hluti skýrslunar um nýt- ingu hér á landi er að mestu byggður á heimildum úr bókinni íslensk matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur, sagnfræðing, og Mat- arást eftir Nönnu Rögnvaldsdótt- ur, nema annað sé tekið fram. Blóð Lambablóð er fyrst og fremst notað í blóðmör hér á landi. Blóð- mörsgerð hefur lengi tíðkast á Is- landi en fyrrum var notað miklu minna af mjöli en nú er, jafnvel ekki neitt, enda mjöl dýrt og lítið flutt inn af því. Þess í stað voru notuð ljallagrös. I blóðmör þann sem nú er gerður er eingöngu haft blóð úr lömbum, svo og mör og rúgmjöl og oftast einnig hafra- grjón og/eða heilhveiti. Stundum eru ijallagrös, rúsínur eða ýmis- legt krydd haft með í blóðjafn- ingnum, en rúsínur eru þó yfírleitt ekki notaðar ef súrsa á blóðmör- inn. Þegar blóðmör og lifrapylsa voru soðin var soðið stundum haft í slátursúpu og var þá grænmeti sett útí ásamt grjónum og súpan svo borðuð með slátrinu, rétt eins og kjötsúpa. Blóðmör er yfirleitt borðaður heitur með kartöflum og rófúm eða rófustöppu eða kaldur t.d. með grautum. Blóðmör má einnig súrsa í mysu og þannig var hann ætíð geymdur áður fyrr. Súrsun er einhver helsta geymsluaðferð á mat á Islandi frá fomu fari, þar sem saltskortur var hér mikill, og var þá notuð gerjuð mysa til súrsunar. Nú er algengt að hann sé frystur ósoðinn og síðan settur ffosinn í pottinn. Freyr 7/2003 - 55 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.