Freyr - 01.06.2005, Blaðsíða 23
NAUTGRIPIR
talsvert breytilegum tíma. Það
leiðir til þess að þessar kýr eru
misgamlar þegar samanburður
er gerður á milli þeirra. Á ein-
stökum afkvæmahópum getur
þessi munur í aldri numið 8-10
mánuðum og flestir bændur
þekkja að það getur haft um-
talsverð áhrif á áhættu kúnna
til förgunar og förgunarhlut-
föll verður að skoða með hlið-
sjón af því. ( þessum saman-
burði þá á Punktur 94032
nokkru yngri dætur en hin
nautin úr 1994 árgangnum
sem þarna eru. Hjá 1995 naut-
unum eru dætur þeirra Seifs
95001 og Soldáns 95010 tals-
vert eldri en hinna nautanna
og dætur Túna 95024 yngstar
að meðaltali. Hjá 1996 naut-
unum eru dætur Hófs 96027
og Fróða 96028 nokkru yngri
en hinna nautanna tveggja.
Þegar þessar tölur eru skoð-
aðar þá koma ekki fram vís-
bendingar um óeðlileg afföll
dætra neinna af þessum naut-
um. Það er að vísu greinilegt
að dætur nautanna sem fædd
eru 1995 koma í þessum sam-
anburði slakast út, en margar
skýringar kunnu að vera á ára-
mun til viðbótar þvf að tilfinn-
ing okkar sem að skoðum höf-
um staðið er að dætur þessara
nauta standi í þessu tilliti eitt-
hvað að baki dætrum naut-
anna frá 1994 og 1996. Rétt
er samt að hafa hugfast í þess-
um samanburði að hópunum
undan Seifi og Sprota eru svo
fáar kýr að gæta ber varfærni
við að draga vfðtækar ályktan-
ir. Eins og vænta má er lítil
förgun hjá dætrum þessara
nauta vegna lélegra afurða og
einnig hefur ófrjósemi kúnna
ekki enn náð að setja nein telj-
andi skörð í hópinn. Júgur-
mein ýmiss konar eru yfir-
gnæfandi sem förgunarþáttur
og vegur þar júgurbólga hvað
þyngst en aðeins ber einnig á
spenastigi sem aldurtila, eink-
um hjá dætrum Soldáns
95010 og Hófs 96027, en það
eru einmitt þau naut úr þess-
um hópi sem gefa einna lág-
fættastar kýr. Rétt er að benda
á að afföll eru eitthvað ofmet-
in vegna þess að undir liðnum
„annað" er að finna nokkuð
af kúm sem horfið hafa af
skýrsluhaldi á viðkomandi bú-
um vegna sölu, í flestum tilvik-
um við það að mjólkurfram-
leiðsla leggst af á viðkomandi
búi.
Kýrnar, sem eftir lifa og hafa
borið fyrir augu okkar við end-
urskoðun, hafa verið flokkað-
ar í þrjá hópa, sem góðar kýr,
meðalkýr og gallagripir. Hlut-
fallsskipting úr þessu mati fyr-
ir einstaka dætrahópa er sýnd
í töflu 2. Sú mynd sem þessar
kýr gefa um feður sína er í
heildina glæsileg þó að hún sé
um leið talsvert breytileg.
VIÐBÓTARUPPLÝSINGAR
STAÐFESTA MYNDINA
Öll nautin frá 1994 sýna góða
mynd fyrir dætur sínar. Nú er til
viðbótar fyrir öll þessi naut kom-
in feikileg viðbótareynsla um
dætur þeirra vegna þess að
gríðarlega stórir dætrahópar
undan þessum nautum öllum
hafa komið fram við skoðun á
kúm árið 2004 og nú á vordög-
um 2005. Þar hefur sú mynd,
sem endurskoðunin sýnir, verið
rækilega staðfest. Dætur Kaðals
94017 eru ögn breytilegri en
dætur hinna nautanna og eru
það aðallega gallar í mjöltum
og skapi hjá sumum þeirra sem
spilla þar fyrir. Sllka galla er
mjög fátítt að rekast á hjá dætr-
um hinna nautanna þriggja.
Nautin frá 1995 sýna eins og
áður segir slakasta heildarmynd
þessara þriggja nautaárganga.
Samt er myndin fyrir dætur Seifs
95001 um margt mjög glæsileg
en þá er minnt á hinn takmark-
aða fjölda dætra hans sem
hvetur til varkárni í ályktunum.
Stóru dætrahóparnir undan
þessum nautum eru núna í upp-
eldi og fyrstu kýrnar að koma
fram við skoðun nú í vor og þær
kýr renna stoðum undir að mikl-
ar glæsikýr sé að finna á meðal
dætra Seifs og einnig er Ijóst að
Soldán er að skila mörgum
glæsikúm í framleiðsluna í hópi
hinna ungu dætra hans núna.
Myndin fyrir nautin frá 1996
er í heildina feikilega jákvæð.
Ákaflega margar einstakar
glæsikýr undan þessum nautum
bar fyrir augu við endurskoðun-
ina, sérstaklega á meðal dætra
þeirra Hófs 96027 og Hvítings
96032, en einnig eru dætur
Fróða 98028 ákaflega öflugar
kýr en sumar kaldlyndar í skapi
sem spillir fyrir einhverjum
þeirra við mat eigenda.
Ljóst er að endurskoðun, eins
og hér hefur verið gerð grein
fyrir, er nauðsynlegt að hafa
sem fastan þátt í framkvæmd
ræktunarstarfsins. Komi fram
alvarlegir gallar hjá dætrum ein-
hverra nauta þegar þær eldast,
sem góðu heilli virðist ekki eiga
við um neitt af þessum nautum
sem hér er fjallað um, er nauð-
synlegt að geta tekið tillit til
slíkra upplýsinga við val á son-
um þeirra til notkunar. Heildar-
mynd þeirra nauta, sem hér er
fjallað um, er jákvæð.
Á þessu ári eru til endurskoð-
unar dætur nautanna úr ár-
gangi frá 1997 en þar er um að
ræða fleiri naut en áður vegna
þess að sex naut úr þeim hópi
hafa verið valin sem mögulegir
nautsfeður. Ljóst er á grunni
þeirrar vinnu sem þegar hefur
verið framkvæmd, að þar mun
að vænta meiri munar á milli
hópanna en við höfum séð til
þessa hjá þeim hópum sem hér
voru til umfjöllunar.
FREYR 06 2005
23