Freyr - 01.06.2005, Blaðsíða 25
RÆSAGERÐ
sýslu, allt frá Bjarnarfirði og
norður I Árneshrepp. Unnið er
að vettvangsathugunum á
brúm og ræsum á þessum
svæðum. Tegundasamsetning
vatnadýra er greind og áhrif
manngerðra hindrana á stofn-
stærð og gönguferli fiska met-
ið. Sú frumathugun sem unnið
er að miðar að því að meta áhrif
brúa- og ræsagerðar á fjöl-
breytileika vatnalífs og fiski-
göngu á völdum svæðum til að
átta sig á umfangi þeirra áhrifa
sem framkvæmdir sem þessar
hafa valdið. Meginmarkmið
rannsóknanna er hins vegar að
leggja grunninn að umbótum,
fræðslu og tillögum er miða að
því að velja hentugar lausnir og
bæta vinnulag við ræsa- og
brúagerð.
LOKAORÐ
Margvíslegar vegabætur hafa
átt sér stað á undanförnum ár-
um. Vegagerð fylgja fram-
kvæmdir og rask. Þeir sem
vinna að vegagerð eru orðnir
mun meðvitaðri en áður um
hvernig hægt sé að forðast eða
draga úr neikvæðum áhrifum
vegagerðar á náttúru landsins.
Mat á áhrifum framkvæmda á
Iffríki og aðra náttúru er nú orð-
inn viðurkenndur hluti af fram-
kvæmdaferli. Því er hægt að
leggja mat á einstaka kosti í
vegagerð, ekki einungis með til-
liti til samgöngubóta heldur
einnig umhverfisáhrifa sem þeir
munu valda. Meiri árverkni við
ræsa- og brúagerð er mikilvæg-
ur liður ( farsælum samgöngu-
bótum.
Ræsi sem liggja það neðarlega
og í litlum halla að þau eru geng
flestum vatnadýrum. Ljósm. BJ.
Lækur hefur verið færður til vegna byggingaframkvæmda. Ræsið
er ófiskgengt og lokar á ferðir sjóbirtings, sjóbleikju og ála auk
annarra vatnalífvera. Ljósm. BJ.
Þrenging gerð ofan rörs sem minnkar straum. Ljósm. BJ.
Vinningshafar í
áskrifendahappdrætti
FREYS
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní var dregið í áskrif-
endahappdrætti Búnaðarblaðsins FREYS. Allir
áskrifendur voru með í pottinum en vinningshafar
voru þessir:
Atlas Copco „Automan" ioftpressa frá Sindra
- Einar Kolbeinsson, Bólstaðarhlíð III
- Helga E. Guðmundsdóttir, Erpsstöðum
Gerni Hobbyline 85 háþrýstidæla frá
Jötunn - Vélar
- Jón Björnsson, Deildartungu
Horka Airstream Teckno reiðhjálmur frá
MR-búðinni
- Björgvin Skúlason, Ljótunnarstöðum
- Þór Aðalsteinsson, Kristsnesi
- Stefán Sigurðsson, Breiðumörk 2
DK-búbót - bókhaldsforritið - grunnútgáfa frá
Bændasamtökunum
- Sigríður Björnsdóttir, Snjóholti
- Þorsteinn Sigjónsson, Bjarnanesi II
John Deere leikfangasett frá Vélaborg
- Sigurður Sæmundsson, Holtsmúla I
Lely-samfestingur og húfa frá Vélaborg
- Hrólfur Guðjónsson, Heiðarbæ
Lely - sjónauki frá Vélaborg
- Mjólkursamlagið í Búðardal, Brekkuhvammi 15
Ársáskrift að World-Feng með 300 heimsóknum-
gefandi: Bændasamtökin
- Agnar Kristjánsson, Norðurhlíð
Svunta og bolur frá Remfló
- Erla Hlöðversdóttir, Vestri- Sámsstöðum
- Sigmundur Stefánsson, Dratthalastöðum
- Jón H. Ólafsson, Laugardælum III
- Jóhann Sæmundsson, Ási
- Arnór Páll Kristjánsson, Eiði
- Karl Þorgrímsson, Efri-Gegnishólum
- Andrés Viðar Ágústsson, Bergsstöðum
- Jón Gústafsson, Rauðafelli
- Jóhann Þ. Bjarnason, Auðólfsstöðum
- Þórsteinn Glúmsson, Vallakoti
- Eyvindur Þóroddsson, Hagalandi
- Páll Helgason, Fossi III.
Vinningar verða sendir til vinningshafa eða eftir nánara
samkomulagi. Vinsamlegast hafið samband í síma
563-0300 ef einhverjar spurningar vakna.
FREYR 06 2005
25