Freyr - 01.06.2005, Qupperneq 24
RÆSAGERÐ
Áhrif ræsagerðar
á ferðir göngufiska og
líffræðilegan fjölbreytileika
IEftir Bjarna Jónsson,
Norðurlandsdeild
Veiðimálastofnunar
Miklar breytingar hafa orðið á
vatnafari og lífskilyrðum fyrir
vatnalífverur á (slandi síðustu
áratugina. Munar þar miklu um
framkvæmdir vegna framræslu
lands fyrir landbúnað, virkjanir
fallvatna og hindranir á vatns-
rennsli þeirra vegna og svo áhrif
vegagerðar á búsvæði og
gönguleiðir. Almennt hefur ár-
verkni og þekking manna á því
hvernig best sé að standa að
vegagerðarframkvæmdum I og
við ár og læki, þannig að það
valdi sem minnstum áhrifum á
vatnalíf, aukist á undanförnum
árum. Þar má nefna hvernig
staðið er að malartöku, tíma-
setningum framkvæmda og frá-
gangi. Ein mesta hættan fyrir líf-
ríki sem fylgir vegagerð er þeg-
ar lækir og ár eru brúuð. Þess
hefur oftast verið gætt að ekki
myndist gönguhindranir þegar
stærri vatnsföll og veiðiár hafa
verið brúuð. Það vill hins vegar
oft gleymast þegar í hlut eiga
vatnsminni ár, þverár eða lækir,
ekki síst vegna takmarkaðrar
þekkingar á lífríki þeirra og gildi
þess.
ÁHRIF RÆSA OG
BRÚARGERÐAR
Brúa- og ræsagerð hefur í
mörgum tilvikum orðið til þess
að skera á gönguleiðir fiska á
hrygningar- eða uppvaxtar-
staði, orðið til þess að skipta
upp stofnum fiska og smádýra
sem ekki geta komist leiðar
sinnar á milli svæða. Slíkar
hindranir geta því bæði orðið til
þess að takmarka stofnstærð
og valda skaða á erfðafræðileg-
um fjölbreytileika innan stofna
fiska sem annarra vatnalífvera.
Einnig geta slíkar hindranir
breytt tegundasamsetningu og
gerð vatnavistkerfa. Margar
þverár og lækir stærri áa eru
mikilvæg til hrygningar og sem
búsvæði göngufiska, ekki síst
urriða og bleikju, og í þeim get-
ur verið að finna sérstaka und-
irstofna innan vatnakerfanna. (
mörgum tilvikum liggur hins
vegar ekki fyrir þekking á hlut-
deild eða mikilvægi þeirra fyrir
heildina. Því fylgir tvenns konar
hætta brúa- og ræsagerð;
skerðing á veiðihlunnindum,
jafnvel án þess að menn átti sig
á raunverulegum ástæðum
þess, og svo mögulegt tap á líf-
fræðilegum og erfðafræðileg-
um fjölbreytileika. Líffræðilegur
fjölbreytileiki getur tapast
vegna þess að útbreiðslusvæði
fiska eða annarra vatnalífvera
sé hólfað upp og raunveruleg
stofnstærð minnki þar sem
skorið er á ferðir llfvera á milli
árhluta, eða með því að jafnvel
heilu göngustofnunum sé út-
rýmt eða breytt vegna þess að
þeir komast ekki lengur á milli
svæða sem þeir nýta á mismun-
andi æviskeiðum.
Bráðabirgða endurbætur. Komið hefur verið fyrir grjóti í ræsunum
til að búa til hvíldarstaði fyrir göngufiska. Ljósm. BJ.
VANDAMALIÐ OG
UMFANG ÞESS
Ekki er Ijóst hve víða ræsagerð
hefur valdið skaða á lífrlki lækja
og áa á landinu eða hve um-
fangsmikill sá skaði kann að
vera. Fjöldi, sérstaklega minni
lækja, hefur aldrei verið rann-
sakaður með tilliti til lífríkis. (
mörgum tilvikum er mönnum
ekki kunnugt um hvers konar
lífríki er að finna i þeim og hvert
gildi þess er með tilliti til Iff-
fræðilegs fjölbreytileika eða
stofna göngufiska. Það er hins
vegar Ijóst út frá þekktum
dæmum víða af landinu að
skaði hefur verið unninn á lífríki
vegna ræsa- og brúagerðar án
þess að þeir sem að vegagerð
hafa unnið hafi oft á tíðum gert
sér grein fyrir hvaða skaða væri
verið að valda. Það er jafnframt
Ijóst að slíkum dæmum fer
fjölgandi. Einnig er oft átt við ár
og lækjarfarvegi í tengslum við
byggingaframkvæmdir með al-
varlegum afleiðingum. Það er
því tlmabært að átta sig á
vandamálinu og umfangi þess.
FRUMRANNSOKN A AHRIF-
UM BRÚAR- OG RÆSAGERÐ-
AR Á FISKA OG AÐRAR
VATNALÍFVERUR
Norðurlandsdeild Veiðimála-
stofnunar hefur I samstarfi við
Vegagerðina hafið frumathug-
un á áhrifum ræsa og brúar-
gerðar á vatnalíf og þá sérstak-
lega fiska. Valdir hafa verið
staðir á landinu þar sem lands-
lag og vatnafar er mjög ólíkt til
að spanna landfræðilega breidd
og mismunandi aðstæður. Unn-
ið er að yfirliti yfir brýr og ræsi
sem kunna að geta verið hindr-
anir og kannað hvaða vatnalíf,
smádýr og fiska viðkomandi
lækir og ár hafa að geyma. Á
grundvelli þessara rannsókna
verður lagt mat á áhrif slíkra
framkvæmda á líffræðilegan og
erfðafræðilegan fjölbreytileika
og göngu vantafiska á viðkom-
andi svæðum. Dæmi um svæði
sem valin hafa verið til frumat-
hugunar eru Eyjafjarðará, Ólafs-
fjarðará, Fljótaá, vatnasvæði
Héraðsvatna í Skagafirði, Mið-
fjarðará og nokkrar ár I Stranda-
Ræsi í Kóngsbakkaá í Helgafellssveit. Útbúinn hefur verið fiskstigi í
ræsi. Ræsið þó ógengt smærri vatnalífverum. Ljósm. BJ.
24
FREYR 06 2005