Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2005, Page 30

Freyr - 01.06.2005, Page 30
SAUÐFJÁRRÆKT Afkvæmarannsóknir á hrútum á vegum búnaðar- sambandanna haustið 2004 Umfangsmesta ræktunar- verkefni í íslenskri sauðfjár- rækt, sem nokkru sinni hefur verið unnið hér á landi, eru þær skipulögðu afkvæma- rannsóknir á hrútum sem hófust haustið 1998. í þess- um rannsóknum eru samein- aðar upplýsingar úr ómsjár- mælingum og mati á lifandi lömbum undan hrútunum og upplýsingar úr kjötmati lamba undan þeim úr slátur- húsi. Rannsóknirnar hafa frá upp- hafi verið styrktar af Framleiðni- sjóði landbúnaðarins. Strax í upphafi haustið 1998 var þátt- taka bænda í þessu starfi mikil og meiri en nokkur reiknaði með. Síðan hefur þessi starf- semi aukist að umfangi. Mikinn árangur af þessu starfi má sjá nú þegar á hundruðum fjárbúa vítt og breitt um landið. Haustið 2004 voru tvö form rannsókna styrkt, þ.e. svokall- aðar stærri rannsóknir en í þeim þurftu að vera fyrir hendi full- gildar niðurstöður fyrir hið minnsta átta afkvæmahópa á viðkomandi búi. Minni rann- sóknir nutu styrks ef fyrir hendi voru niðurstöður fyrir fimm, sex eða sjö afkvæmahópa á við- komandi búi. Auk þess voru unnar rannsóknir þó að færri hópar væru í rannsókn. Haustið 2002 voru styrktar rannsóknir sem eingöngu byggðu á slátur- upplýsingum, en lítil þátttaka bænda var í því formi, en áfram er boðið upp á slíkar rannsóknir hjá búnaðarsamböndunum. Haustið 2004 voru rannsókn- ir unnar á samtals 215 búum. Það voru samtals 1290 af- kvæmahópar sem voru í svo- kölluðum stærri rannsóknum, þ.e. rannsóknum þar sem átta hrútar eða fleiri voru í rannsókn á viðkomandi búi. Samtals 496 afkvæmahópar voru á búum þar sem sjö eða færri hrútar voru i rannsókn á viðkomandi búi og að lokum voru unnar rannsóknir fyrir 20 afkvæma- hópa þar sem aðeins var byggt á sláturniðurstöðum. Samtals eru það því 1806 afkvæmahóp- ar sem fá dóm í rannsóknum haustið 2004 og hefur umfang þessa starfs því aldrei verið meira ef undan er skilið haustið 2002, þegar hóparnir voru eilít- ið fleiri, og tengdust eingöngu einföldum sláturrannsóknum sem voru styrktar það haust. Eins og ætíð koma fyrir örfá dæmi þess að sami hrútur hafi verið með afkvæmahóp í rann- sókn á fleiri en einu búi. Samtals telja slíkir hópar samt innan við tuginn. Á það skal einnig minnt að þessu til viðbótar kemur mik- il afkvæmarannsókn hrúta á fjárræktarbúinu á Hesti sem fjallað er um sérstaklega hér í blaðinu. Tafla 1. Yfirlit um afkvæma- rannsóknir á hrútum haustið 2004 eftir landsvæðum Svæði Fjöldi búa Fjöldi hópa Vesturland 41 365 Vestfirðir 14 121 Strandir 29 250 Húnavatnssýslur 36 320 Skagafjörður 36 286 Eyjafjörður 7 46 S-Þing. 9 80 N-Þing. 19 162 Múlasýslur 4 29 A-Skaft. 3 23 Suðurland 17 124 Landið allt 215 1.806 Tafla 1 gefur yfirlit um um- fang þessarar starfsemi eftir landsvæðum. Þróunin hefur orðið sú að sauðfjárbændur eru ákaflega misvirkir eftir land- svæðum í þessari þungamiðju ræktunarstarfsins síðustu árin. Á Vesturlandi var góð þátttaka í þessu starfi. Eins og ætíð var starfsemin feikilega öflug á Ströndum, í Vestur-Húnavatns- sýslu hefur þessi þáttur verið öflugur í starfseminni alveg frá byrjun og Austur-Húnvatnssýsla hefur komið inn með vaxandi þunga undanfarin tvö haust. Skagafjörður hefur alveg frá upphafi verið eitt höfuðvígi þessarar starfsemi og er svo áfram. í Eyjafirði er umfangið hins vegar fremur takmarkað og einnig í Suður-Þingeyjarsýslu er það vart í hlutfalli við umfang sauðfjárræktar í sýslunni. Norð- ur-Þingeyingar hafa verið alveg frá byrjun mjög virkir í þessum þætti ræktunarstarfsins og er svo enn. Á Austurlandi, í Aust- ur-Skaftafellssýslu og á Suður- landi nýta sauðfjárræktendur sér hins vegar þennan þátt ræktunarstarfsins ekki sem skyldi. VIRKASTA LEIÐ TIL BÆTTRA KJÖTGÆÐA Eins og áður segir er árangur þessa starfs þegar mikill og aug- Ijós vítt um land. Það er ekkert vafamál að til að vinna að bætt- um kjötgæðum er þessi úrvals- leið í ræktunarstarfinu mjög virk og árangursrík. Ef niðurstöðurn- ar eru notaðar á skipulegan hátt í úrvalinu mun árangurinn ekki láta á sér standa. Aldrei verður samt lögð of mikil áhersla á það að árangur- inn getur aldrei orðið meiri en gæði þeirra upplýsinga sem unnið er með leyfa. Mikilvæg- asta atriðið þar er tvímælalaust það að þannig sé að rannsókn staðið að tryggður sé óvilhallur samanburður á milli afkvæma- IEftir Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum íslands hópa undan hrútunum sem hverju sinni eru í rannsókn. Að- eins við slíkar aðstæður er hægt að vænta tilætlaðs árangurs. Þessar rannsóknir hafa orðið mjög sterkur grunnur til að styrkja einn af þremur megin- stoðum ræktunarstarfsins í landinu sem er val á hrútum fyr- ir sæðingastöðvarnar. Það hefur orðið með tvennum hætti. í þessum rannsóknum hafa kom- ið fram á sjónarsviðið flestir af topphrútum síðustu ára sem á stöðvunum standa í dag. Þar til viðbótar fékkst haustið 2000 leyfi til að vera með hrúta úr þessum rannsóknum í sérstakri einangrun vegna stöðvanna á nokkrum stöðum á landinu, þannig að úr þeim hefur verið valið beint inn á stöðvarnar. Þessar rannsóknir hafa sýnt sig að hafa aukið öryggi umtalsvert við að velja stöðvarhrúta. Haustið 2004 voru þannig rannsóknir á vegum stöðvanna á eftirtöldum stöðum: Stóra- Fjarðarhorni í Kollafirði, sameig- inleg rannsókn á Snartarstöðum á Sléttu og Sveinungsvík í Þistil- firði, Ytri-Skógum undir Eyja- fjöllum og Teigi i Fljótshlíð, auk rannsóknarinnar á Hesti. Niður- stöður úr þeim rannsóknum hafa þegar birst bændum í mörgum nýjum sæðingastöðv- arhrútum sem komu til notkun- ar haustið 2004 og hafa þeir verið rækilega kynntir í hrúta- skrá. Undanfarin ár hafa niðurstöð- ur rannsóknanna verið kynntar mjög rækilega i greinum hér í blaðinu þar sem gerð hefur ver- ið grein fyrir ýmsum athyglis- verðustu hrútunum sem fram hafa komið á hverju hausti. Það verður ekki gert að þessu sinni. Allar niðurstöður þessarar rann- sókna eru hins vegar aðgengi- legar á Netinu á vef B( (www.bondi.is) eins og raunar 30 FREYR 06 2005

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.