Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 4

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 4
Mjaltarinn hefur reynst mikill happagripur Viðtal við Gunnar Jónsson, bónda á Egilsstöðum á Völlum Egilsstaðir á Völlum er ein glæsilegasta bújörð hér á landi og hefur lengi verið setin með miklum myndarbrag. Sama ættin hefur búið á jörðinni í fjóra ættliði eða frá því Jón Bergsson keypti jörðina um aldamótin 1900 og viðhafði þá þau orð að þarna yrðu krossgötur þegar fram liðu stundir og reyndust það orð að sönnu. I samræmi við það byggði hann stórt hús á jörðinni, bæði sem íbúðarhús en einnig sem gistihús. Við öðrum hluta jarðarinnar tók Sveinn, sonur hans, en Pétur, son- ur hans, tók við hinum. Sveinn dreif upp mikinn búskap strax á þriðja tug 20. aldar, með miklum útihúsabyggingum og ræktun og inn í búskapinn gengu synir hans, Jón Egill og Ingimar, um miðja öldina og ráku þeir saman fjöl- þættan búrekstur sem vart átti sér hliðstæðu hér á landi. Réð því ekki hvað síst vakandi auga þeirra fyrir nýjungum í bútækni sem þá var að koma fram á sjónarsviðið. Um 1977 kemur svo Gunnar, sonur Jóns Egils, inn í búrekstur- inn og um tíma bjuggu þrír ættlið- ir saman, eða þar til Sveinn lést árið 1981. Ingimar seldi svo sinn hlut 1984 og tók við kennarastarfi á Hvanneyri. Síðan hafa þeir feðgar Gunnar og Jón Egill staðið fyrir búrekstri á Egilsstöðum ásamt ljölskyldum sínum. Kona Gunnars er Vigdís Svein- björnsdóttir og eiga þau þrjú böm sem öll hafa unnið meira og minna við búið, jafnframt námi. Við Jón Viðar Jónmundsson settumst niður með Gunnar í að- draganda nýliðins búnaðarþings til að fræðast hjá honum um Eg- ilsstaði og búskapinn sem þar er rekinn, en fyrst spyrjum við hann um námsferil hans. Eg tók stúdentspróf frá MA árið 1973 og reyndi fyrir mér í jarð- fræði við HI veturinn á eftir og fann mig í náminu en ekki í Reykjavík. Haustið 1974 hóf ég svo nám við Edinborgarháskóla í landbúnaðardeild og lauk þar HND-prófi (Higher National Diploma) þremur árum síðar. Þetta nám var hugsað einkum fyr- ir þá sem ætla í búskap og/eða bú- stjómun, enda fór ég beint í bú- skapinn heima að námi loknu. JÖRÐIN EGILSSTAÐIR Á VÖLLUM Aður en lengra er haldið vœri fróðlegt að fá svolitla lýsingu á Egilsstaðajörðinni. Já, jörðin skiptist í Egilsstaði I og II strax um 1920. Ég bý á Eg- ilsstöðum I, en böm Péturs, afa- bróður míns, þau Margrét, Jón og Áslaug, eiga Egilsstaði II. Þar er ekki rekinn búskapur lengur en við nytjum túnin. Sonur og tengdadóttir Margrétar eiga svo gamla húsið og reka þar hótel af miklum myndarskap. Undir Egilsstaði I heyrir líka jörðin Dalhús, sem liggur að Eg- ilsstöðum, og var hún keypt eink- um til að beita þar sauðfé. Við nýtum jörðina lítið i dag en þar er Vigdis Sveinbjörnsdóttir og Gunnar Jónsson og dóttir þeirra Herdís Magna. (Ljósmyndir: Sigurður Aóalsteinsson). 14 - Freyr 3/2004

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.