Freyr - 01.04.2004, Blaðsíða 19
Afurðir eftir burðarmánuðum 2003
Mynd 4. Meðalafurðir fullmjólka kúa flokkaðar eftir burðarmánuðum árið
2003.
uðum, í september, október og
nóvember, hefur lækkað talsvert
en hins vegar eykst hlutfallslega
burður hjá kúm á þremur fyrstu
mánuðum ársins og einnig í ágúst.
Líklega er hér um að ræða áhrif
tveggja aðskilinna þátta. Tilfærsla
hefur orðið á burði hjá fullorðnu
kúnum sem m.a. tengist slælegum
árangri úr sæðingum í mörgum
héruðum í árlok 2002 og ársbyrj-
un 2003. Hins vegar eru einhverj-
ar breytingar að eiga sér stað hjá
hluta bænda í sambandi við burð
hjá fyrsta kálfs kvígum. Burður
hjá fyrsta kálfs kvígunum skiptist
jafnara á mánuði á árinu 2003 en
var árið 2002. Toppurinn, einkum
í september, lækkar talsvert frá ár-
inu áður en hlutfallið er líkt og áð-
ur langsamlega hæst í október
þegar 18,6% af öllum fyrsta kálfs
kvígunum bera. Enn eru ekki
nema tæp 7% af kvígunum sem
bera í ágústmánuði.
Mynd 4 sýnir meðalafurðir hjá
fullmjólka kúm á skýrslu eftir
burðarmánuðum, en hefð er fyrir
því að birta þessar upplýsingar.
Minnt er á að fullmjólka kýr eru
þær kýr sem eru á skýrslu allt árið
(365 daga). Um leið skal lögð
áhersla á það, eins og margoft áð-
ur hefur verið gert, að þessar nið-
urstöður má alls ekki lesa sem
áhrif burðartíma á afurðir hjá kún-
um. Það sem hins vegar sést á
þessari mynd er að meðalafurðir
hjá kúnum sem bera í janúar og fá
yfirleitt góða meðferð og fóðrun
eru orðnar um 5900 kg mjólkur
hjá þessum fullorðnu kúm. Þessar
tölur gefa einnig ákaflega sterkar
vísbendingar um að kýmar, sem
bera að vori og um hásumarið,
lendi alltof margar í einhverjum
hremmingum á mjólkurskeiðinu
þannig að verulega vanti enn á
víða að afurðageta þeirra sé nýtt
sem skyldi.
Þegar niðurstöður úr frumutals-
mælingum mjólkursýna úr ein-
stökum kúm í félögunum eru
skoðaðar kemur í ljós sú furðu-
lega niðurstaða að meðaltalstöl-
umar fyrir landið í heild úr þess-
| um mælingum em nákvæmlega
þær sömu og árið áður, þ.e. að
beint meðaltal allra slíkra mæl-
inga er 313 þús./ml og þegar
reiknað er meðaltal af margfeld-
ismeðaltali einstakra kúa reyndist
meðaltalið 249 sem einnig er ná-
kvæmlega hið sama og árið áður.
Mynd 5 sýnir meðaltal beinna
mælinga hjá kúnum í einstökum
hémðum. Þó að nokkur líkindi
séu með þeirri mynd og árið áður
koma þar samt fram ýmis frávik.
Eins og svo oft áður er ástand
mála að þessu leyti best í Dala-
sýslu en það er einnig mjög gott á
Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, í
Vestur-Húnavatnssýslu og í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Þetta em sömu
hémð og hafa á síðustu ámm
einnig sýnt jákvæða mynd fyrir
þennan þátt framleiðslunnar. Bág-
ust er staðan í þessum málum hins
vegar í Eyjafirði og þar á eftir
fylgja bæði stóm mjólkurfram-
leiðslusvæðin á Suðurlandi. Það
hlýtur að vera ákveðið umhugsun-
arefni að það skuli vera stærstu
mjólkurframleiðslusvæðin sem í
þessum efnum liggja á eftir og
sýna lakasta mynd. Þróun á þess-
um þætti á síðustu ámm hefur
hins vegar verið mjög eindregin
og ákveðin í þessa átt.
Frumutala 2003
Mynd 5. Frumutala hjá skýrslufærðum kúm eftir héröðum árið 2003.
Freyr 3/2004 - 19 |