Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2004, Blaðsíða 16

Freyr - 01.04.2004, Blaðsíða 16
Afurðaþróun 2002-2003 # cf <ý # <$* Co* v/ ^ □ 2002 «2003 Mynd 2. Samanburður afurða milli áranna 2002 og 2003. félag hefur nú í heila öld staðið í forystu nautgriparæktarstarfsemi í landinu og fagnaði á árinu 2003 hundrað ára afmælis félagsins með miklum glæsibrag. Önnur mjög kúamörg félög eru Nf. Snæ- fellinga þar sem 934 kýr voru skýrslufærðar og Nf. Skeiða- hrepps þar sem kýr á skýrslu árið 2003 voru 915. Búin halda áfram að stækka Búin halda áfram að stækka. Skýrslufærðar kýr á hverju búi eru að jafnaði 39,8 (38,8) eða einni fleiri en árið áður og reiknaðar ár- skýr 28,4 (28,2) en í sambandi við þá tölu er minnt á það sem áður er sagt að verulegur hluti búanna, sem hóf skýrsluhald á árinu, gerði það ekki fýrr en á haustdögum þegar skyldumerkingar hófust. Jafnstærstu búin eru í sömu fé- lögum og árum. Sérstaða Nf. Skarðshrepps er mikil en þar er aðeins orðið eitt bú í mjólkur- framleiðslu með 167 kýr á skýrslu og 115,6 árskýr. í Nf. Svalbarðs- strandar er meðalbústærð 70,8 kýr skýrslufærðar og 51,4 reiknaðar árskýr. Árið 2002 voru meðalafurðir í nautgriparæktarfélögunum í fyrs- ta skipti yfír 5000 kg af mjólk eft- ir hverja kú, en árið 2003 voru af- urðir íslensku mjólkurkúnna enn meiri. Meðalafúrðir eftir hverja árskú voru 5063 kg (5006) og eft- ir hverja fullmjólka kú fengust að jafnaði 5079 kg af mjólk (5032). Efnahlutföll mjólkurinnar taka nánast engum breytingum frá ár- inu áður, fítuhlutfall reiknast að meðaltali 4,03% (4,01) og pró- teinhlutfallið 3,36% (3,38). Á allra síðustu árum hefur prótein- hlutfall mjólkurinnar aftur farið heldur hækkandi, jafnhliða umtal- sverri aukningu á mjólkurmagni. Vegna hins sterka neikvæða sam- bands, sem er á milli magns mjólkur og hlutfalla efna í henni, er þetta þróun sem ekki er algengt að sjá í þessum efnum. Það er hins vegar staðfesting á því að mark- mið ræktunarstarfsins um að ná að halda óbreyttum efnahlutföllum, jafnhliða aukningu próteinmagns- ins, hefur gengið eftir. Þetta er þróun sem ekki var möguleg á meðan ræktunarstarfíð með tilliti til afurða miðaði eingöngu að því að auka mjólkurmagnið. Eitt af þeim atriðum í tengslum við skýrsluhaldið í nautgriparækt og ræktunarstarfíð, sem mögulegt er að færa til betri vegar en er í dag, er að auka mælingar á mjólk- ursýnum úr kúm í skýrsluhaldinu. Það eru því miður alltof mörg bú sem færa mjólkurskýrslur, sem senda ekki reglulega sýni úr kún- um til efnamælinga hjá RM. Ljóst er að þær upplýsingar, sem hver og einn bóndi fær um einstakar kýr í hjörðinni um efnahlutföll mjólkur og frumutölu, eru veru- lega mikilvægar fyrir rétta ákvarðanatöku í búrekstrinum. Til viðbótar eru þessar niðurstöður ómetanlegur þáttur fyrir hið sam- eiginlega ræktunarstarf. Bæði efnamagn mjólkurinnar og júgur- hreysti kúnna, þar sem frumutala mjólkurinnar er langmikilvægasta mælingin, hafa fengið verulega aukið vægi í ræktunarstarfínu á síðustu árum. Til þess að tryggja eins mikinn árangur og mögulegt er í þessum efnum eru hins vegar almennar og reglulegar efnamæl- ingar mjólkurinnar alger undir- staða. Sé þar slegið við slöku verður árangurinn til lengri tíma litið áreiðanlega í samræmi við það. Um það hefur oft verið fjallað að sú skráning á kjamfóðurgjöf, sem gerð er í skýrsluhaldinu, segi minna og minna um fóðmn kúnna með aukinni fjölbreytni í fóðmn þeirra. Það, sem þær tölur em samt öðm fremur nothæfar til að meta em þær breytingar sem eiga sér stað frá ári til árs á landsvísu í fóðrun kúnna. Þar sem þessar upplýsingar eru skráðar var kjam- fóðurgjöf fyrir hverja kú á árinu 2003 881 kg (911) að jafnaði. Af því er áreiðanlega hægt að draga þá ályktun að nýting gróffóðurs vegna mikilla gróffóðurgæða hef- ur verið ákaflega góð árið 2003 í mjólkurframleiðslunni vegna þess að afurðaaukning samhliða minni kjarnfóðurnotkun er trauðla möguleg nema gæði gróffóðursins séu í hámarki. Afurðaþróun breytileg MILLl LANDSHLUTA Á mynd 2 er borin saman þróun afurða milli áranna 2002 og 2003 eftir hémðum. Þessi mynd er að- 116 - Freyr 3/2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.