Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2004, Blaðsíða 18

Freyr - 01.04.2004, Blaðsíða 18
fagna afmælisári með því að mjól- ka að jafnaði 5534 kg af mjólk. Þar í sveit hefur afurðaaukning hjá kúnum á allra síðustu árum verið ævintýri líkust. Gamla afurðaviðmiðunin, sem fyrir áratug var enn í fullu gildi, að skoða bú með yfír 4000 kg meðalafurðir þar sem eru 10 ár- skýr eða fleiri er orðin úrelt. Vegna samanburðar við fyrri ár og til að meta þróun í þessum efnum skal samt tekið fram að það voru 636 (642) bú sem náðu þessu við- miði árið 2003. Líkt og árið áður þá náðu þrjú bú því marki að framleiða yfír 7000 kg af mjólk eftir kúna að meðaltali. Fjölgun er hins vegar veruleg þegar kemur að búum sem ná 6000 kg markinu en þau voru 75 (59) og 5000 kg viðmiðun ná 349 (345) bú árið 2003. Afurðahæstu búin Tafla 2 gefur yfirlit um þau 18 bú sem höfðu skýrslufærðar 10 kýr eða fleiri árið 2003 og þar sem meðalafurðir voru yfír 6500 kg af mjólk eftir hverja árskú. Flest þau bú, sem þar eru að sjá, eru vel þekkt úr hliðstæðum yfirlitum frá síðustu árum. Efsta sætið skipar að þessu sinni bú þeirra Jóhanns og Hildar í Stóru-Hildisey II í Austur- Landeyjum en á síðasta ári var það í öðru sæti í hliðstæðum saman- burði. Arið 2003 voru á búinu 34,4 árskýr og þær mjólkuðu að jafnaði 7450 kg af mjólk. Þessi árangur er glæsilegt Islandsmet og umtals- vert meiri afúrðir en áður hafa fengist á einu búi hér á landi en fé- lagsbúið í Baldursheimi átti eldra metið sem sett var á síðasta ári og var 7175 kg af mjólk. Jóhann og Hildur tóku við búinu í Stóm- Hildisey II árið 2000 og hafa á skömmum tíma náð ffábærum ár- angri. Þau hafa nú innleitt nýja fóðrunartækni, notkun heilfóðurs, sem víða í nágrannalöndum hefúr fengið mikla útbreiðslu á síðustu ámm. Þessar breytingar virðast strax hafa skilað umtalsverðum ár- angri hjá þeim. Bent er á stórfróð- legt viðtal við þau í 3. tbl. Bænda- blaðsins í febrúar nú í vetur. Ann- að sæti skipa þeir feðgar Eggert og Páll á Kirkjulæk II í Fljótshlíð en 21 árskýr á búi þeirra mjólkaði að jafnaði 7176 kg af mjólk árið 2003. I þriðja sæti koma síðan Ragnheiður og Klemens á Dýra- stöðum í Norðurárdal en hjá þeim vom 16,7 árskýr að skila að með- altali 7079 kg af mjólk. Bæði síð- asttöldu búin em vel þekkt úr efstu sætum á sambærilegum skrám nú um alllangt árabil. Þegar efstu búunum er raðað er ekki síður eðlilegt að gera það á grunni magns verðefna en á gmndvelli mjólkurmagnsins. Þeg- ar það er gert þá breytist röðun talsvert. Þau bú sem ná að fram- leiða yfir 500 kg af verðefnum að jafnaði eftir kúna árið 2003 em þessi; Stóra-Hildisey II.....548 kg Birtingaholt I .......523 kg Kirkjulækur II.......519 kg Baldursheimur ........518 kg Nes ..................517kg Stóra-Tjamir ........510 kg Dýrastaðir...........508 kg Miðdalur .............506 kg Vogar I ..............505 kg Miðhjáleiga..........503 kg í þessum samanburði er búið í Stóm-Hildisey II í efsta sætinu en þar var hver kýr að skila að meðal- tali 299 kg af mjólkurfitu og 249 kg af mjólkurpróteini árið 2003 eða samtals 548 kg af verefnum. Þó að þetta sé fádæma glæsilegur árangur nægir hann ekki til að hnekkja Islandsmeti búsins í Birt- ingaholti I frá árinu 2001, en vegna hárra efnahlutfalla í mjólk kúnna þar, líkt og oft áður, nær það öðm sætinu í þessum samanburði árið 2003 þrátt fyrir að mjólkur- magn hjá kúnum Birtingaholti I sé árið 2003 ívið minna en á sumum hinna búanna sem íylgja þar á eft- ir í samanburðinum. Mynd 3 sýnir dreifingu á burð- artíma kúnna eftir mánuðum. Að þessu sinni er einnig sýnd á myndinni burðartímadreifingin undangengin tvö ár. Þegar þetta er þannig skoðað í samhengi er al- veg ljóst að nokkur tilfærsla á burðartíma kúnna er að eiga sér stað. Hún lýsir sér í því að toppur- inn í burði hjá kúnum á haustmán- 18 16 14 12 10 8 6 4 2 0 Mynd 3. Dreifing burðartíma eftir mánuðum 2003. Til samanburðar hlið- stæðar tölur fyrir árin 2001 og 2002 sem sýna greinilega tilfærslu á burðar- tima kúnna. Burðartimi 0 2001 «2002 D2003 118 - Freyr 3/2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.