Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 5

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 5
Egilsstaðir á Völlum, útsýni frá kauptúninu. þó dálítil ræktun og nautum var beitt þar áður fyrr. Þéttbýlið, Egilsstaðabær, er byggt úr landi Egilsstaða og klýf- ur núna jörðina í tvennt, en fyrir ofan þéttbýlið er verulegt land sem Egilsstaðir eiga og mikið skógi vaxið. Þar erum við með hús fyrir holdagripina og verulega ræktun. Þetta er frjósamt land og birkið sprettur upp hvar sem það fær frið til þess. Flugvallarsvæðið? Það er allt, eins og þéttbýlið, úr landi Egilsstaða. Gamla flugvall- arsvæðið var á sínum tíma tekið eignamámi, en þegar nýi flugvöll- urinn var gerður þá fóm fram makaskipti á landi. Hvernig er land jarðarinnar fallið til rœktunar? Þetta er tvenns konar land, ann- ars vegar er það myndað úr fram- burði Eyvindarár en áin hefur fyllt upp þetta nes út í Lagarfljót- ið. Þetta er mjög skemmtilegt land til ræktunar, undir því er möl og þama þarf enga framræslu- skurði. A móti kemur að þetta er flatt land og við höfum stundum lent illa í kali þegar bunkast upp svell á því. Síðan þegar kemur nær þéttbýl- inu þá em þar orðnar mýrar, sem em mjög frjósamar þegar búið er að ræsa þær fram. En búið þið ekki við flóðahœttu á þessu landi? Jú, það er flóðahætta þama, einkum á Nesinu eins og það er kallað og er mikilvægt ræktunar- land fyrir okkur. Komræktin er t.d. öll þama, en þó ekki á flóð- hættasta landinu. Við höfum oft orðið fyrir vem- legu tjóni af völdum flóða á vorin, bæði vegna þess að við höfum orðið að seinka áburðardreifingu af þeim sökum og eins hefur það komið fyrir að Nesið hafi farið undir vatn eftir að búið var að bera á og þá þýðir ekkert annað en að bera á aftur fullan skammt. Annað, sem gerist með þessum flóðum, er að það berst leir í land- ið úr Fljótinu og skepnur láta illa við leimgu heyi, einkum ef verk- að í rúllur eða vothey, en síður meðan heyið var fullþurrkað á túninu. Ofan þorps, uppi í skóginum, er svo þriðja landgerðin sem við nytjum. Þar er heilmikið land, allt vaxið birkiskógi. Mýramar þama vom framræstar á sínum tíma og þá gilti að breyta þeim fljótt í tún ef menn ætluðu að vera á undan skóginum sem sótti þá stíft að mýrlendinu. Þetta er líka mjög frjósamt land en stykkin eru óregluleg í lögun og því ekki hentug til vinnslu með stórum tækjum, en alltaf fínnst mér gaman að vinna í þessu landi þama upp frá. Eg held að þetta sé sérstakt land hér á landi, það er skógur allt í kringum stykkin og þau sjást ekki af veginum, þarna er þvf afar skýlt og landið grasgefið. Hvað látið þið túnin verða göm- ul? Það er misjafnt eftir landi. Þama upp frá er t.d. mjög erfítt að endurrækta, stykkin óregluleg og skógurinn kominn í skurðina eins og limgerði. Þegar svo á að fara að hreinsa upp úr þeim og moka inn á spildumar þá þvælast lurk- amir fyrir tækjunum. Þama hefur því ræktunin verið lítið endumýj- uð, en vallarfoxgrasið aftur enst fiirðu vel, en annars hefiir gamli gróðurinn náð yfirhöndinni. En það er góð hefð Jýrir endur- rcektun á Egilsstaðabúinu? Já, ég býst við að við plægjum kringum 30 ha á ári bæði til end- urræktunar og grænfóðurræktar enda hef ég gaman af að plægja. Kornrækt Kornræktin hjá ykkur? Freyr 3/2004 - 5 |

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.