Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 21

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 21
Kynbótamat nautanna árið 2004 Hér verður farið nokkr- um orðum um atriði sern fram koma við skoðun á útreikningi á kyn- bótamati nautanna árið 2004. Með greininni fylgir tafla um kynbótamat nautanna fyrir einstaka eiginleika, auk heildareinkunnar þeirra. I töfl- unni er að flnna þessar ein- kunnir fyrir um það bil 90 naut sem á undanförnum árum hafa fengið afkvæmadóm til fram- haldsnotkunar og eru þess vegna ráðandi einstaklingar að baki þeim kúastofni sem nú er að finna í fjósum vítt og breitt um landið. Auk þess þá er hliðstæðar ein- kunnir fyrir nautin, sem fengu af- kvæmadóm að þessu sinni, að fínna í grein um afkvæmadóm nautanna á öðrum stað í blaðinu. Engar breytingar hafa verið gerð- ar á ræktunarmarkmiði þannig að heildareinkunn nautanna er mynd- uð á sama hátt og á síðasta ári og skal rifjað upp að það er þannig: Heildareinkunn = 0,55*Afurða- mat +0,09*Mjaltir+0,08*Frumu- tala+0,08*Júgur +0,08*Ending+ 0,04*Frjósemi+0,04*Spenar+ 0,04*Skap. Arið 2003 var ending í fyrsta skipti tekin inn í ræktunarmark- mið íslenska mjólkurkúastofns- ins, með 8% vægi. í ár fer mat á endingu því fram í annað skipti og er fróðlegt að skoða hvaða breyt- ingar hafa orðið á endingarmati nautanna milli ára. Einnig er unnt að átta sig á því hvort um sé að ræða kerfisbundnar skekkjur í matinu, þar sem nokkur aldurs- munur er á dætrum elstu og yngstu nauta í hverjum árgangi. Svo virðist ekki vera. Það skal tekið fram að engar breytingar hafa orðið milli ára á aðferðum þeim sem notaðar eru við matið. Þegar litið er á tölumar má sjá að hjá nokkmm nautum hafa orðið talsverðar breytingar milli ára, ýmist til hækkunar eða lækkunar. Naut fædd 1995 Seifúr 95001. Engin breyting hefúr orðið á mati hans milli ára og er einkunn hans 112. Díli 95002. Hækkar um fímm stig og er með 91. Tindur 95006 lækkar um tvö stig og er með 102 í einkunn. Mars 95005 lækkar um fímm stig og er með 111 í einkunn fyrir endingu. Biskup 95009 hækkar um fímm stig, úr 99 í 104. Mestu breytingamar og um leið þær jákvæðustu em hjá Soldán 95010 sem hækkar um sjö stig í mati, fer úr 90 í 97. Þerrir 95015 og Bolur 95022 standa í stað, með 90 og 103 í ein- kunn. Túni 95024 hækkar um ijögur stig og stendur í 108. Glæsir 95025 stendur í stað með 95. Laufi 95026 hækkar um eitt stig, með 94. Búandi 95027 er með óbreytt mat milli ára. Kjuði 95032 lækkar um eitt stig. Krummi 95034 hækkar um fímm stig. eftir Jón Viðar Jónmundsson, Ágúst Sigurðsson Sproti 95036 er með óbreytt mat á milli ára, 92 stig. Gróandi hækkar um tvö stig, fer úr 97 í 99. 1 heild er árgangurinn með óbreytt mat á milli ára, 99 stig að meðaltali. Naut fædd 1996 Trefíll 96006 lækkar mjög mik- ið í mati milli ára, ferúr 108 í 100. Prakkari 96007 hækkar um tvö stig, er með 114. íri 96010 lækkar verulega í mati, fer úr 108 í 99. Núpur 96013 hækkar um þrjú stig, fer úr 104 í 107. Kalli 96015 er með óbreytt mat á milli ára, 110 stig. Úi 96016 lækkar um eitt stig, einkunn hans er 116. Freyr 3/2004-21 |

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.