Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.2004, Side 25

Freyr - 01.04.2004, Side 25
Toppnautin Lítum í lokin aðeins á topp- nautin með tilliti til einstakra eig- inleika. I afurðamatinu er Krossi 91032 á toppi með 131, ásamt tveimur nýju nautanna sem stan- da honum jafnfætis en það eru þeir Stígur 97010 og Randver 97029. Af nautunum, sem eru í almennri notkun, eru ekki nein naut sem eru alveg í toppinum í mati um próteinhlutfall, en þar er samt rétt að benda á naut sem sér- panta má sæði úr, eins og Núp 96013 sem hefur 130 fyrirþennan eiginleika og Klaka 94005 sem er með 123 í einkunn fyrir pró- tein%. Fyrir frumutölu stendur Búri 94019, sem að framan er nefndur, með bestan dóm, Hersir 97033 kemur einnig fram sem mjög sterkur fyrir þennan eigin- leika og einnig hefur Túni 95024 mjög gott mat fyrir þennan þátt, þannig að fyrir þennan eiginleika er gott úrval mikilla toppgripa í boði. Fyrir frjósemi er það Þver- teinn 97032 sem er með best mat nautanna sem nú eru í almennri notkun. I mati fyrir júgurgerð standa efst nautanna, sem eru í al- mennri notkun, Stigur 97010, Úi 96016 og Fróði 96028 og fyrir spena er Hófur 96027 með hæsta matið af nautunum sem eru í dreifmgu. I mati fyrir mjaltir eru Holti 88017 og synir hans mjög áberandi á toppnum og langhæsta matið hefur Úi 96016 en hálf- bræður hans, Prakkari 96007 og Þverteinn 97032, hafa einnig feikilega gott mat. Rétt er um leið að minna á það að sum þessara nauta, sem eru með toppmat fyrir mjaltir, hafa um leið verulega slakt mat fyrir frumutölu. I mati um endingu er það hæst af naut- um í notkun hjá Stíg 97010 en Drómi 94025, Úi 96016 og Hófur 96027 hafa allir mjög gott mat fyrir þennan eiginleika. Heildareinkunn nautsins á að segja mest um gæði nautanna, ef menn eru sammála skilgreindu ræktunarmarkmiði. Þar kemur Stigur 97010 nú á toppinn með 122 í heildareinkunn, næst honum koma síðan toppnautin frá 1994 sem eru ekki lengur í notkun en síðan hefur Túni 95024 með betra mati lfá ári til árs komist þar næst í röð með 116 í heildareinkunn. Síðan koma nautsfeður ffá síðasta ári, Hófur 96027 og Fróði 96028, með 115 í heildareinkunn, og þar á eftir kemur hópur nauta úr 1997 árgangi; Teinn 97001, Brimill Molar Vaxandi gagnrýni Á SJÓFLUTNINGA MEÐ LIFANDl BÚFÉ Stærsti útflytjandi lifandi búfjár í heiminum, Ástralía, hefur lent i erfiðleikum með sjóflutninga á búfé til Miðausturlanda. í ágúst á sl. ári bannaði Saudi Arabía að skipa I land 50 þúsund fjár vegna ótta við að hluti af fénu væri sjúkur. Sjóflutningar á búfé eiga sífellt meira undir högg að sækja vegna dýraverndarsjónarmiða, en algengt er að búféð þoli ekki flutningana. Ástralía flytur árlega út 6 millj- óna lifandi fjár og eina milljón nautgripa, einkum til Miðaustur- og Asíulanda. Aðalástæða fyrir þessum flutningum er að kaup- endur geti slátrað fénu eftir múslímskum reglum. (Internationella Perspektiv nr. 37/2003). SVÍNARÆKT í Bandaríkjunum Stærstu svínabú í Bandaríkj- unum eru: Smithfild Food 756 þúsund gyltur, Premium Stand- ard Farms 225 þúsund gyltur, 97016, Randver 97029 og Hersir 97033, allir með 114 í heildarein- kunn. Bráðlega mun verða hægt að nálgast kynbótamatið í naut- griparæktinni á Netinu. Þegar það verður mögulegt verður það kynnt í Bændablaðinu. Rétt er að benda á að þá verður mögulegt að skoða allar undireinkunnir nautanna þar, en í þær geta þeir sem hafa mikinn áhuga á ítarlegri skoðun á þessum upplýsingum sótt margvislegar viðbótaupplýs- ingar. Seabord Farms 213 þúsund, Prestage Farms 129 þúsund, Cargill Farms 118 þúsund, lowa Select Farms 100 þúsund og The Pipston System 100 þús- und. Auk þess eru sex svínabú með yfir 60 þúsund gyltur. Þess má geta að á íslandi eru alls um 4000 fullorðin svln. (Bondevennen nr. 3/2004). Hlutfall bænda HÆKKAR í ESB EFTIR STÆKKUN ÞESS Hinn 1. maí á þessu ári, 2004, fjölgar aðildarlöndum ESB um 10, úr 15 í 25 lönd. Hlutfall bænda I nýju löndunum er mun hærra en í þeim sem fyrir eru. Þannig eru bændur 4,0% af vinnuafli ESB fyrir stækkun þess en eru 13,4% í þeim löndum sem nú bætast við. Hlutfallslega flestir eru bændur í Póllandi eða 19,6%, og í Litháen eru þeir 18,6%. Af þeim löndum sem fyrir voru má nefna að í Finnlandi eru bændur 5,5% vinnuaflsins, í Danmörku 3,2%, Svíþjóð 2,5%, í Belgíu 1,8% og neðst er Bret- land með 1,4%. (Bondebladet nr. 17/2004). Freyr 3/2004 - 251

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.