Freyr - 01.04.2004, Síða 40
Úrvalsnýting meðal nauta úr árgangi fæddum 1997.
mörgum öðrum dætrahópanna.
Lakasta útkoman fyrir þennan þátt
er hjá dætrum Homfirðings 97031
og er það niðurstaða sem tæpast
kemur að óvart með hliðsjón af
mörgu sem þegar hefur komið
fram.
Afkvæmadómurinn
Kynbótamat nautanna er sýnt í
töflu 2. Eins og áður þá er nautun-
um síðan við dóm skipað í þrjá
flokka. I fyrsta lagi eru bestu naut-
in sem fá nautsfeðradóm, í öðru
lagi naut sem fá notkunardóm en
það eru þau naut sem hafa sýnt
það jákvæða mynd af dætmm sín-
um að vandalaust sé að mæla með
frekari notkun á þeim og að sið-
ustu koma þau naut sem fallið
hafa á prófinu og engin réttlæting
fínnst fyrir að taka til frekari notk-
unar.
Eins og sjá má af töflu 2 er kyn-
bótamat þessara nauta jafnbetra
en nokkur dæmi eru um áður fyrir
nokkum árgang nauta. Þar skiptir
mestu máli hið feikilega góða af-
urðamat sem mörg þeirra fá. Fyrir
aðra eiginleika er talsverð breidd,
eins og sjá má, og meðaltal ekkert
áberandi hátt fyrir nokkurn af
þeim eiginleikum.
Að þessu sinni var ákveðið að
fara aðeins aðra leið við val á
nautsfeðmn en farin hefur verið
undanfarin ár. Tvö naut þykja hafa
mjög ótvíræða yfirburði og em
valin úr þessum hópi sem nauts-
feður og eru það Teinn 97001 og
Stígur 97010. Síðan kemur stór
hópur af mjög góðum nautum sem
standa með mjög líkt heildarmat. í
stað þess að velja úr þessum hópi
einn eða tvo nautsfeður til viðbót-
ar var ákveðið að fara þá leið að
leita eftir örfáum nautkálfum und-
an fímm af þessum nautum; Byl
97002, Brimli 97016, Randver
97029, Kubb 97030 og Hersi
97033.
Tæpast er þörf á að fara mörg-
um orðum um nautsfeðuma, sem
valdir vom, vegna þess hve mikið
hefur þegar komið fram um þá hér
að framan.
Teinn 9700ler undan Þræði
86013 og hafa nokkrir hálfbræður
hans verið í mikilli notkun á síð-
ustu ámm. Dætur hans em mjög
kostamiklar mjólkurkýr. Það sem
ef til vill skortir öðm fremur alloft
hjá þessum kúm er heldur öflugri
bolbygging. Hann ætti því að
henta vel til notkunar á kýr sem
eru afkomendur Hólms 81018,
Þistils 84013, Bassa 86013, Daða
87003, Andvara 87014 og Þymis
89001, þannig að nefndar sé
nokkrar þær ræktunarlínur sem
em með augljósasta kosti að þessu
leyti.
Stígur 97010 er vafalítið öfl-
ugasti kynbótagripur sem til
þessa hefur komið fram í rækt-
unarstarfínu hér á landi. Aldrei
áður hefur komið naut sem skil-
ar jafn háu hlutfalli draumakúa
að mati eiganda eins og hann
hefur gert. Tæpast verður bent á
neina sérstaka veikleika sem
taka þarf tillit til við notkun
hans. Notkun hans hlýtur því
meira að ráðast af skyldleika
gagnvart mögulegum nauts-
mæðrum. Hann er nokkuð
skyldur talsverðum hópi úrvals-
kúa í landinu, sonur Óla 88002,
og því hálfbróðir tveggja nauts-
feðra á síðasta ári.
Nautin, sem fá notkunardóm úr
árganginum til viðbótar við nauts-
feðuma tvo, em: Bylur 97002,
Gumi 97003, Sekkur 97004, Fák-
ur 97009, Brimill 97016, Kóri
97023, Stallur 97025, Nári 97026,
Póstur 97028, Randver 97029,
Kubbur 97030, Þverteinn 97032,
Hersir 97033, Brúsi 97035, Tígull
97036, Rosi 97037, Tumi 97039
og Sópur 97040. Af þessum naut-
um verða eftirtalin í almennri
dreifingu frá Nautastöðinni árið
2004: Bylur, Brimill, Kóri, Stall-
ur, Randver, Kubbur, Þverteinn og
Hersir.
Nautin, sem féllu á prófínu,
vom þessi: Nagli 97005, Fanni
97018, Stöpull 97021 og Hom-
fírðingur 97031. Viss vonbrigði er
að báðir synir Sporðs 88022 sem
vom í prófun skyldu falla á próf-
inu. Hins vegar er það viss styrk-
ur við þann nautahóp, sem velst til
frekari notkunar, að hann hefúr
meiri breidd í uppmna en stund-
um hefúr verið á undanfömum ár-
um.
Úrvalsnýting
Venjan hefur verið undanfarin
ár að gera tilraun í lok greinar-
140 - Freyr 3/2004