Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 58

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 58
Fyrri lota (50-70 sprettudagar) Sumarrepja Sumarrýgresi Sumarhafrar Sumarrepja + sumarrýgresi Seinní lota (frá 70. sprettudegi) Vetrarrýgresi Vetrarhafrar Vetrarrepja Vetrarrepja + vetrarrýgresi Vetrarrepja + vetrarhafrar Á 60.-70. degi, þegar bygg og sumarrýgresi var rétt að heQa skrið og sumarrepja að blómstra var nýtingin, (mæld með því að | 58 - Freyr 3/2004 2. mynd. Eftir beit á vetrarrepju 84 dögum eftir sáningu. Blöð eru étin en stöngiar og blaðstilkar eru skilin eftir. það land sem þeim er boðið, traðka fóðrið niður og menga með skít, og enn meira þegar fóðrið er gott svo að ræpan stendur aftur úr þeim. Til að nýta grænfóður á beit er því um tvo kosti að ræða, að slá það og færa kúnum á jötu, beiti- land eða gerði (núllbeit), eða hins vegar að randbeita. Fyrri kosturinn, núllbeit, hefur augljósa kosti; ekkert fóður skemmist af traðki eða saurmeng- un og það er auðvelt að skammta kúnum það fóður sem menn vilja. Á hina hliðina kemur að til að þetta gangi lipurlega fýrir sig þarf við- eigandi tækjakost sem slær fóðrið og flytur beint á vagn. Slíkur véla- kostur er mjög óvíða til enda bygg- ir önnur fóðuröflun á allt öðrum forsendum. Þessi aðferð hefur ver- ið reynd á Hvanneyri og þótt takast vel þó að engar mælingar hafi ver- ið gerðar. Almennt er í raun varla kostur á öðru en randbeit. Yfirleitt hefur verið gengið út frá því að nýting fóðurs á randbeit sé mjög góð. Ekki hafa verið gerðar miklar rannsóknir á þessu hér á landi. Ema Bjamadóttir fann að kýr nýttu sumarhafra illa, en al- mennt hefur verið gert ráð fyrir mjög góðri nýtingu. I yfirgrips- mikilli grein Þórodds Sveinssonar og Gunnars Ríkharðssonar á Ráðunautafundi 1991 gerðu þeir ráð fyrir að grösin (bygg, hafrar og rýgresi) nýttust 70-80%, vetr- arrýgresi best, en vetrarrepja og næpur nýtust 91%. Reynsla af athugun sem gerð var á Hvanneyri síðastliðið sumar með tilstyrk Átaksverkefnis í nautgriparækt leiddi annað í ljós. Þar var kúahóp boðið á kaffiter- íu í tveim lotum. Kýmar vom um 30 og höfðu aðeins 50 metra skára til bíta. Þær vom settar á beit eftir morgunmjaltir og var haldið að skáranum þar til allar vom hættar að bíta sem tók yfír- leitt um klukkutíma. Rafstrengur var færður um tvo metra í hvert sinn sem kúnum var hleypt á landið. Boðið var upp á eftirfar- andi tegundir: 3. mynd. Eftir beit á vetrarrýgresi 84 dögum eftir sáningu. Nýtingin er greini- lega allgóð en tveggja metra tilrærsla er greinilega i mesta lagi.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.