Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2010, Page 20

Andvari - 01.01.2010, Page 20
18 HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON ANDVARI E. Bergsveinsson yfirsíldarmatsmaður meiðyrðamál gegn honum. Var Björn sýknaður í Hæstarétti, en þau ummæli hans um Jón í varnarskjali fyrir rétti, að hann væri „óvandaður“, dæmd dauð og ómerk.18 Einnig er þess getið, að Björn fór til Grikklands vorið 1936 til að reyna fyrir sér um fisksölu og skoðaði þá hið forna hof Parþenon í Aþenu. Þar í borg bjó þá gamall vinur hans, Þórður Albertsson, og átti að sinna útflutningsmálum.19 Sveinn Björnsson sendiherra og Olafur Proppé, framkvæmdastjóri Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, komu þá einnig til Grikklands í sömu erindum.20 Björn Ólafsson beitti sér veturinn 1934 með Skúla Thorarensen og Jóni Ólafssyni í Alliance fyrir bættri fiskverkun. „Fiskurinn er tekinn alveg nýr, þveginn vandlega og verkaður, hnakkaflettur, sporðskelltur og himnudreginn. Síðan er hann frystur. Því næst er hann settur í þurrkhús og hafður í þurrki í nokkra daga,“ skrifaði Morgunblaðið. „Þannig meðfarinn er fiskur þessi mjög bragðgóður til neyslu, en auk þess hreinni en harðfiskur annars getur verið.“21 Reistu þeir Skúli fisk- verkunarhjall utan við bæinn. Framleiddu þeir um 30 lestir af harðfiski og fluttu út til Ítalíu, en fengu ekki nógu gott verð fyrir. Héldu þeir áfram þessum rekstri næsta árið, en þessi aðferð reyndist of dýr miðað við söluverð, svo að þeir hættu þessum tilraunum. Þeir reyndu líka að herða ufsa á trönum úti á Seltjarnarnesi 1935, og gafst það betur, og hélt Skúli áfram að herða ufsa næstu árin.22 Björn Ölafsson fékkst einnig við útgerð. Hann keypti ásamt Skúla Thorarensen, Þórði Hjörleifssyni togaraskipstjóra og Geir H. Zoéga togarann Helgafell árið 1938. Stundaði hann veiðar öll stríðsárin, seldi aflann í Bretlandi og „reynd- ist hið mesta happaskip“.23 Þá er þess að geta, að Björn Ólafsson átti hlut í ferðaskrifstofunni Heklu, sem rekin var á fjórða áratug og veitti aðallega erlendum ferðamönnum þjónustu á Islandi. Þar starfaði Stefán Stefánsson, leiðsögumaður og enskukennari, sem jafnan var nefndur „Stebbi guide“.24 2. Björn Ólafsson vann ekki aðeins ötullega að atvinnurekstri á þriðja áratug tuttugustu aldar, heldur fékkst við ýmis áhugamál honum óskyld. Hann iðkaði íþróttir, aðallega fimleika, sund og göngur. Ein fyrsta blaðagrein, sem Björn skrifaði, í Morgunblaðið vorið 1915, var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.