Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 125

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 125
ANDVARI AÐ VERÐA AÐ ALVÖRU MANNI 123 að uppi á teningnum hjá Gosa, enda er hann hættur að drepa samviskuna, og hefur áhyggjur af því hvernig álfkonan kunni að bregðast við breytni hans og honum finnst hún „[...] vera að toga í treyjuermina sína.“ (Gosi, 165). Amma Páls togar heldur betur í treyjuermi Páls á ögurstundu þegar hann er kominn að því að láta undan kynhvöt sinni, og er því lýst á kíminn hátt þegar fætur stúlkunnar eru að skiljast og þau að því komin að renna saman: „... hver stendur mér þá fyrir hugskotssjónum og horfir vandlega á mig, hver nema amma sáluga, Sigríður Pálsdóttir, forðum yfirsetukona á Djúpafirði. Hún segir ekki neitt, en kyrrlátur svipur hennar heldur mér í skefjum, knýr mig til að rannsaka samvisku mína [...]“. (Gangvirkið, 205). Páll hlýðir rödd samviskunnar, ömmu sinnar, að þessu sinni en hún megnar þó ekki að stöðva hann í annað skipti sem holdlegar freistingar koma við sögu, enda fær hann þar litlu um ráðið þegar Lovísa, dóttir húsráðenda Páls, ákveður að kveðja hann með eftirminnilegum hætti. í upphafi sögunnar um Gosa finnur viðarhöggvari trjádrumb sem hann hugsar sér að höggva niður í eldivið en trjádrumburinn kveinkar sér þegar til á að taka. Viðarhöggvarinn skoðar drumbinn og segir við sjálfan sig: „Þetta er öldungis venjulegur eldiviður, öldungis einsog hver annar drumbur. Hvað ætlar þetta að verða? Ætli eitthvað sé falið innan í honum?“ (Gosi, 9). I Pálssögu er lagt upp með ákveðið viðfangsefni og má líkja því við ómótaðan viðardrumb. Páll Jónsson er ungur sveitadrengur, nýkominn á mölina og lang- ar til að læra. Þegar Gosi er á leið í skólann í fyrsta sinn með stafrófskverið sem faðir hans hafði keypt handa honum með því að selja utan af sér spjar- irnar, hefur hann háar hugmyndir og „einn loftkastalann byggði hann öðrum fegri.“ (Gosi, 39). Það er skemmst frá að segja að hann lætur afvegaleiðast, selur stafrófskverið til að eiga fyrir aðgöngumiða á gervikarlasýningu. Páll Jónsson hættir námi sökum fátæktar, selur gömlu klukkuna hennar ömmu sinnar og fer að vinna hjá vikuritinu Blysfara. Páll leggur upp með miklar væntingar um menningarleg skrif í blaðið en þar er ekki birt neitt í líkingu við það sem Páll gerir sér í hugarlund í fyrstu. Hann lendir í þeirri stöðu að snúa vondum sögum, stela skrítlum og velja úr lélegum kvæðum til birtingar árum saman þvert ofan í það sem hann trúir á. Lesendur Blysfara vilja ekki menningu af því hún er svo leiðinleg en þó tala þeir iðulega um blaðið sem mikið menningarblað. Þjóðin vill stundargaman og skyndiafþreyingu - yfir- borðsmenningu. Það má þannig segja að Páll verði strengjabrúða í eins konar gervikarlaleikhúsi, vanlíðan hans eykst jafnt og þétt og endar með því, í lok fyrstu bókar, Gangvirkinu, að gangvirki það sem hann telur sig finna fyrir í brjósti sínu stöðvast. Gangvirki þetta er gegnumgangandi stef í þríleiknum og er m.a. tákn um lífsvilja og hreinleika hjartans. Þegar Páll gengur um of gegn eðli sínu og samvisku stöðvast það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.