Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 128

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 128
126 ÞÓRA SIGRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR ANDVARI VI Gervimennska eða tvöfeldni af ýmsu tagi á við um margar persónur í þríleikn- um, heldur fleiri en færri, og má þess vegna líkja umhverfi Páls við einskonar gervikarlaleikhús. Tengist þetta ekki síst því hvernig íslendingar bregðast við þegar herinn stígur á land og færir með sér endalaus gróða- og atvinnutæki- færi, alls konar nýjungar eins og nýstárlega tónlist, dansskemmtanir af ýmsu tagi, og allskyns gylliboð í formi nælonsokka, tyggigúmmís og viskís svo að eitthvað sé nefnt. Olafur Jóhann var talsmaður friðar og viðurkenndi fúslega að hann óttaðist stórveldi, kjarnorkuvígbúnað og stríð. Hann sá engan tilgang með slíku og var algerlega mótfallinn því að íslendingar gengju til samninga við Banda- ríkjamenn um hervernd í stríðslok. í viðtali við Birting árið 1958 segir hann um ákvörðun íslenskra alþingismanna: Mér fannst það glapræði þeirra óskiljanlegt með öllu að leyfa Bandaríkjamönnum að koma hér upp herstöðvum jafnskjótt og við höfðum öðlazt sjálfstæði að nýju. Mér tókst ekki að eygja nokkra vitglóru í háttalagi þeirra, þegar þeir þræluðu okkur í Atlants- hafsbandalagið og gerðu okkur þannig, vopnlaust og friðsamt fólk, að ábyrgum aðila í kaldastríðinu. Eg hef oft borið kvíðboga fyrir því á liðnum árum, að bandarísk herseta og skefjalaus stórveldadýrkun kynni að ganga af heilbrigðri þjóðerniskennd okkar dauðri á tiltölulega stuttum tíma. Þessar skoðanir eru eins og talaðar út úr hjarta aðalpersónu þríleiksins, Páls Jónssonar, en þar er jafnframt gert grín að yfirborðsmennsku og látalátum, iðulega eru þversagnir dregnar fram og jafnframt er slíkt gagnrýnt, ýmist með hógværð eða harðlega og oft á kaldhæðinn hátt. Broddurinn í þríleiknum verður æ beittari eftir því sem kafað er dýpra í verkið. Lesandinn fær æ sterk- ari tilfinningu fyrir alvöru málsins, í gegnum huga Páls Jónssonar Páll virðist almennt þeirrar skoðunar að íslendingar selji sál sína og for- heimskist af nýjungum og gróðavonum. Islensk menning og þjóðarstolt er að sökkva í ruslahaug. I sögunni af Gosa kemur við sögu álfkona nokkur sem er tákn hins hreina og góða og minnir í þessu samhengi að mörgu leyti á fjallkonuna. í Gosa deyr álfkonan góða einu sinni en lifnar þó aftur við síðar þegar Gosi bætir hegðun sína. Á legstein hennar er þetta letrað: Álfkonan fagra í æðri heima horfin er harmi lostin. Grjet hún Gosa, góðan bróður sokkinn í soll samtíðar. (Gosi, 108-109) \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.