Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 27

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 27
ANDVARI BJÖRN ÓLAFSSON 25 Björn er ekki málrófsmaður á fundum bæjarstjórnarinnar. Tekur hann sjaldan til máls og heldur stuttar ræður, teflir þeim rökum, sem hann hefir á hraðbergi, strax fram og horfir hátt, þegar hann talar, en lítur einstöku sinnum niður á Héðin [Valdimarsson]. Hann virðist vera rökfastur í hugsun, en orðin vanta. Verða því ræður hans nokkuð þungar í vöfunum. Ekki þarf að taka það fram, því það er öllum kunnugt, að Björn er fylgjandi frjálsri verslun og er því ein- dreginn mótstöðumaður allra einokunar- og ófrelsismanna í bæjarstjórninni.50 Björn atti einnig ásamt skoðanabræðrum sínum kappi á fundum í Báru- búð við aðalforystumann sósíalista í Reykjavík, Héðin Valdimarsson. „Héðinn malaði þá alveg, enda var Björn til að byrja með ekki eins sterkur ræðumaður, en þróaðist mjög vel. Hann varð mjög áheyrilegur maður síðar,“ sagði Þorkell Ingvarsson.51 Björn Ólafsson sat í bæjarstjórn í sex ár, til 1928. Hann lét þar lítt að sér kveða. Sótti hann aðeins um helming þeirra funda, sem haldnir voru á því tímabili, og er þó í þeirri tölu tekið tillit til veikinda, for- falla, fjarvista og utanfara. Hefur Björn eflaust þótt kröftum sínum betur varið í rekstur fyrirtækis síns og ýmis áhugamál önnur en þvarg á bæjarstjórnarfundum. í bæjarstjórn var hann sjálfstæður í skoðunum. Hann bar til dæmis í janúar 1923 fram tillögu um það, að sælgætis- og tóbaksbúðir fengju ólíkt öðrum verslunum að hafa opið til klukkan tíu á kvöldin alla virka daga. Flokkssystkini hans greiddu flest atkvæði á móti tillögunni, en jafnaðarmenn allir með henni.52 I febrúar 1923 greiddi Björn Ólafsson líka einn úr sínum hópi atkvæði með tillögu frá Héðni Valdimarssyni um, að kosningaaldur yrði lækkaður úr 25 árum í 21 ár.53 Björn átti hins vegar ekki samleið með jafnaðarmönnum í atvinnu- og fjárhagsmálum. Var hann sparsamur fyrir hönd bæjarbúa og barðist gegn þungum álögum á þá. Hann mælti til dæmis í desember 1922 gegn því að hækka útsvörin. Gjaldþol bæjarbúa væri minna en árið áður. „Þess vegna væri nauðugur einn kostur að lækka útsvörin og draga mikið úr útgjaldaliðunum.“54 Björn var einnig andvígur lántökum bæj- arins í því skyni að halda uppi atvinnubótavinnu. Greiddi hann ásamt Guðmundi Ásbjörnssyni og Pétri Halldórssyni atkvæði gegn stóru láni, sem bærinn tók í því skyni í nóvember 1923. Aftur snerist hann gegn lántöku í sama skyni í nóvember 1926. „Það dugir ekki að leggja plástra á mein, sem skera þarf í,“ sagði hann á bæjarstjórnarfundi.55 Björn var einnig andvígur margvíslegum ríkisrekstri. í ársbyrjun 1922 myndaði Sigurður Eggerz ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins þversum og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.