Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 111

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 111
ANDVARI DRAUMSILKI DEGINUM FEGRA 109 Á hvítum hestum hleyptum við upp á bláan himinbogann og ljekum að gylltum knöttum, við hjengum í faxi myrkursins þegar það steyptist í gegnum undirdjúpin eins og tunglgeislar sváfum við á bylgjum lífsins. Hvar eru þau fjöll, sem hrynja yfir mína sorg! Hálsar, sem skýla minni nekt með dupti! í svartnætti eilífðarinnar vakir lífið og grætur, sól eptir sól hrynja í dropatali og fæða nýtt líf og nýja sorg.33 Athugum fyrst orðalagsmun gerðanna (frávik frá frumprentun skáletruð): í djúpum sæ I í djúpum brunnum hvœsa eitursnákar I tunglgeislar I á bylgjum lífsins I í svartnætti eilífðarinnar vakir lífið og grœtur. I ljós kemur að helsti orðamunur, og sá eini sem verulegu máli skiptir, er að hér er ,rauði drekinn‘ horfinn. Lítil eftirsjá er að þeirri skepnu þó ættuð sé úr Opinberunarbókinni. ,Eitursnákar í dimmum brunnum4 er velheppnað tákn um böl sem lífinu eru búin, en línurnar sem Sigurður Nordal virðist hafa tekið úr uppkasti kvæð- isins - „í svartnætti eilífðarinnar flýgur rauður dreki / og spýr eitri“ - sýna glögglega að ofleik má finna hjá skáldum engu síður en leikurum. I mun betra samræmi við heildarstefnu kvæðisins og elegískan tón lokaerindisins, sem kallast á við upphafserindið, eru síðari lokalínur Jóhanns: „I svartnætti eilífðarinnar vakir lífið og grætur, / sól eftir sól hrynja í dropatali og fæða nýtt líf og nýja sorg.“ Því kvæðið fjallar um lífið, líf okkar allra. Það er umlukið svartnætti og því má líkja við grátandi mannveru. Myndin er kosmísk: Tár lífsins eru sólir sem fæða af sér „nýtt líf og nýja sorg“.34 Minna máli skiptir breytingin ,á bylgjum lífsins1 í stað ,hafsins‘ en finna má rök fyrir hvorutveggja. Myndin ,á bylgjum hafsins1 fellur vel að ,undir- djúpunum4 í línunni á undan, en ,sváfum við á bylgjum lífsins1 er í samræmi við breytingu Jóhanns ,vakir lífið og grætur1. í dönsku þýðingunni hefur hann ,paa Livets B0lger‘ og ,vaager Livet og græder1. Þessar breytingar í loka- hluta kvæðisins - ,á bylgjum lífsins1 og ,vakir lífið og grætur1 - er að finna í þremur handritum (ef það danska er talið með) en hin textabrigðin einungis í uppkastinu, og því má öruggt heita að Jóhann hafi fallið frá þeim. En þótt tiltölulega lítill munur sé á orðalagi miðað við frumprentun er uppsetn- ingin gjörólík. Jón Viðar virðist eins og áður segir telja að þetta sé lokagerð ljóðs- ins, að minnsta kosti birtir hann hana í meginmáli bókar sinnar (bls. 138).35 Hann segir einnig (bls. 372) að hún sé nánast eins og í ,blýantshandritinu‘ svokallaða. Það er rétt einungis að því er orðalag lokahlutans varðar en uppsetningin í því handriti er að mestu eins og í frumprentuninni í Vöku,36 Að mínum dómi er frá- leitt að líta á línuskiptingu ljóðsins í Guðmundarbréfinu sem endanlega frá hendi Jóhanns; flest bendir til þess (t.a.m. bæði blýantsgerðin og blekhreinritið) að hinar löngu línur séu tilkomnar einfaldlega af þörf fyrir að koma ljóðinu á eina örk37; og sem fríljóð er sú gerð miklu síðri vegna þess hvað hrynjandin er fátækleg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.