Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 83
andvari
AÐKOMUMAÐUR í ÍSLANDSSÖGUNNI
81
hann Jörund, árið 1994, en þar segir: „Jörundur hundadagakonungur var
skrautlegur karl sem hafði skamma viðdvöl á íslandi en reyndist innfæddum
góður kóngur; stal öllu steini léttara úr dönsku búðunum, seldi á spottprís og
hleypti öllum föngum úr tukthúsinu. Auk þess hélt hann margar veglegar veisl-
ur en gamanið kárnaði þegar breskt herskip hafði viðdvöl í Reykjavík.“66
Á árunum 1990-1994 kom íslenskur söguatlas út í þremur bindum. Útgáfan
markaði tímamót í myndrænni framsetningu á sögulegu efni og náði miklum
vinsældum, sérstaklega sem kennsluefni í skólum. í 2. bindi verksins er fjallað
um valdaskeið Jörundar þar sem aðdragandi sumarsins 1809 er rakinn og sagt
að svo virðist sem íslendingum hafi líkað ágætlega við byltinguna þar sem
þeim hafi verið lofað gulli og grænum skógum; skuldauppgjöf við konung
og danska kaupmenn, verslunarfrelsi og skattaívilnunum þó þeir hafi líklega
ekki haft mikinn áhuga á sjálfstæði og eigin þjóðfána.67
Jörundur í upphafi 21. aldar
Nú, þegar 200 ár eru liðin frá valdatíð Jörundar, eru sagnfræðingar farnir að
líta á valdatíma hans í stærra samhengi en áður. Anna Agnarsdóttir prófessor
hefur sérstaklega kannað þetta tímabil í íslandssögunni, en niðurstöður rann-
sókna hennar komu fyrst fram upp úr 1975 og síðan með greinum og bóka-
köflum sem hafa meðal annars byggst á doktorsritgerð hennar 68 Anna hefur
kannað rækilega gögn sem finnast í enskum skjalasöfnum og hefur tínt til
ýmis atriði sem Jóni Þorkelssyni, Helga R Briem og öðrum var ekki kunnugt
um. Má þar sérstaklega nefna eftirmál byltingarinnar í Bretlandi og viðbrögð
þarlendra yfirvalda við kærumálum Trampe, en bæði Jón og Helgi tóku
það fram í ritum sínum að þeim hefði verið ókunnugt um niðurstöðu þeirra
mála.69 Anna hefur dregið fram ný gögn í þeim efnum og gerir atburðarásinni
uð byltingunni lokinni ítarleg skil, svo lesendur geta kynnt sér afdrif málsins
innan enska stjórn- og réttarkerfisins. Með því að nota ýmis gögn úr breskum
skjalasöfnum hefur jafnframt verið hægt að endurskoða eldri staðhæfingar
um byltinguna, svo sem um það hvort bresk stjórnvöld hafi í raun staðið á
bak við hana.70 Anna hefur einnig greint aðgerðir Jörundar út frá byltingum
á meginlandi Evrópu og í Bandaríkjunum og sett atburðina sumarið 1809 í
samhengi við samskipti Bretlands og Islands í upphafi nítjándu aldar og dreg-
ur þannig upp mynd af stöðu íslands á alþjóðavettvangi á þessum tíma.
Gunnar Karlsson prófessor hefur einnig nýtt sér byltingu Jörundar til að
kanna hugmyndir landsmanna um þjóðerni og sjálfstæði landsins í upphafi
m'tjándu aldar, en hann telur að byltingin sýni greinilega að slíkar hugmyndir
uttu litlu fylgi að fagna meðal landsmanna, enda snerist enginn til varnar
þegar veldi Jörundar var hnekkt og umbætur hans stöðvaðar.71 Þessar umbóta-