Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 63

Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 63
andvari DÓMSDAGSMYND GUNNARS GUNNARSSONAR 61 Arnþrúður er komin góðan spöl upp í loftið ... Hver hefur teygt svo mjög úr stiga mínum? Svo mjög, svo mjög! Því svo hár er hann orðinn að ekki sér fyrir endann á honum upp á við! ... Og hvaða söngur er nú þetta? Og hvaða ljós? Og mikil furða er að sjá hvað kerlingin getur klifrað! Það er eins og hún þræði sig upp eftir gullnum köngulóarvef inn í skínandi heiðríkju síðdegisins. (s. 218) Kaflanum lýkur á því að höfundurinn kveðst ætla að ganga út og sjá hvernig fari fyrir grafbúunum sínum „þarna efst í heiðríkjunni“ (s. 221) en í stuttum eftirmála, sem skrifaður er af dönskum útgefanda verksins, kemur fram að viku fyrir göngur hafi Jaki fundist dauður undir stiganum og handrit bókar- innar á skrifborði hans. Hugmyndir manna um lúðrablástur á dómsdegi byggjast á nokkrum ólíkum ritningarstöðum í Biblíunni. Meðal lykiltexta í þessari hefð er ritningargrein í Matteusarguðspjalli þar sem Kristur lýsir endalokum veraldarinnar: „Þá mun tákn Mannssonarins birtast á himni og allar kynkvíslir jarðar hefja kvein- stafi. Og menn munu sjá Mannssoninn koma á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð. Hann mun senda út engla sína með hvellum lúðri og þeir munu safna hans útvöldu úr áttunum fjórum, himinskauta milli“ (24:30-31). í tilviki Vikivaka á þó enn betur við ritningargrein úr Fyrra Korintubréfi Páls postula sem lýsir upprisu holdsins á efsta degi: „Því lúðurinn mun gjalla og þá munu dauðir upp rísa óforgengilegir og við munum umbreytast“ (15:52). Á hvor- ugum þessara ritningarstaða er rætt um að Kristur dæmi lifendur og dauða við þetta tækifæri en því hlutverki hans er víða lýst í Nýja testamentinu, meðal annars í Matteusarguðspjalli þar sem Kristur segir við lærisveinana: „Þegar Guð hefur endurnýjað allt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu munuð þið, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir ísraels“ (19:28). Aftar í guðspjallinu segir ennfremur að á dómsdegi muni allar þjóðir safnast saman frammi fyrir Kristi, „og mun hann skilja hvern frá öðrum, eins og hirðir skilur sauði frá höfrum. Sauðunum skipar Guð sér til hægri handar en höfrunum til vinstri“ (25:32-33). Svo vikið sé að Jakobsstiganum þá er honum lýst í frásögn Fyrstu Móse- bókar af draumi Jakobs í Betel: Hann tók stein er þar var og setti undir höfuð sér og lagðist þar til svefns. Og hann dreymdi draum. Honum þótti stigi standa á jörðu og ná til himins og englar Guðs fóru upp og ofan eftir stiganum. Þá stóð Drottinn hjá honum og mælti: „Ég er Drottinn, Guð Abrahams, föður þíns, og Guð ísaks. Það land, sem þú hvílist á, gef ég þér og niðjum þínum. Þeir munu verða fjölmennir sem duft jarðar og breiðast út til vesturs, til austurs, til norðurs og suðurs og allar ættkvíslir jarðarinnar munu blessun hljóta í niðjum þínum. Og sjá, ég er með þér og gæti þín hvar sem þú ferð og mun leiða þig aftur til þessa lands því að ég yfirgef þig ekki fyrr en ég hef komið því til leiðar sem ég hef heitið þér.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.