Andvari - 01.01.2010, Page 55
ANDVARI
BJÖRN ÓLAFSSON
53
andi fjármála- og efnahagsþróun þessa þjóðfélags.“ Að loknum orðum
Eyjólfs Konráðs hylltu fundarmenn Björn Ólafsson með langvarandi,
dynjandi lófataki.137
Björn Ólafsson hélt áfram að skrifa um áhugamál sín, þótt hann væri
horfinn af þingi. Hann deildi til dæmis harðlega á veltuútsvarið eða
aðstöðugjaldið, sem svo var kallað, fyrir það, að það var greitt af veltu
og því óháð afkomu fyrirtækjanna. Einnig gagnrýndi hann skattfríðindi
samvinnufélaga.138 Björn sat í bankaráði Útvegsbankans 1957-1968 og
var formaður ráðsins síðustu þrjú ár sín þar, 1965-1968. í viðtali við
Morgunblaðið 1964, þegar íslenska lýðveldið varð tvítugt, rifjaði Björn
upp stofnun þess, en líka drauma sína, vonir og hugsjónir. Hann sagðist
ungur hafa verið ákveðinn í að „brjótast úr álögum fátæktarinnar og
verða sjálfum sér ráðandi“. Þegar hann var þá spurður, hvort hann hefði
snemma haft hug á að auðgast, vitnaði hann í ráð, sem sér hefði verið
gefið: „Það er ekki hægt að taka þátt í pólitík nema vera sjálfstæður
maður og þurfa ekki að spyrja neinn um leyfi til að gera það, sem
maður telur rétt og nauðsynlegt. Það er ekki hægt að vera allt sitt líf
eins og hengdur upp á þráð vegna auraleysis.“139 Björn Ólafsson fylgdi
þessu ráði alla ævi. Hann dansaði ekki eftir annarra pípum. Hann lést á
Borgarspítalanum 11. október 1974 og hafði átt við vanheilsu að stríða
um langa hríð. Bálför hans fór fram 22. október 1974.
TILVÍSANIR
1 „Fyrsta lýðveldisstjórninMorgunblaðið 17. júní 1964 (viðtal við Björn Ólafsson). Endurpr.
^ í M-samtöl, 4. b. (Almenna bókafélagið, Reykjavík 1982), 24.-32. bls.
2 Björn Þórðarson: „Fimmtugur í dag: Björn Ólafsson fyrrv. fjármálaráðherra,“ Vísir 26.
nóvember 1945.
3 „Upplýsingar óskast,“ Lögberg-Heimskringla 28. júní 1962.
41 Alþingismannatali segir, að Ingibjörg sé fædd 16. febrúar, en í íslendingabók á Netinu 8.
febrúar, og er hér farið eftir henni.
5 Borgfirzkar œviskrár, 3. b. (Sögufélag Borgarfjarðar, 1973), 388.-389. bls.
Ræða á fundi sjálfstæðismanna í Reykjavík 2. janúar 1958, vélrit í Bréfasafni Björns
Ólafssonar, í vörslu höfundar (hér e. nefnt Bs. Bj. Ól.).
Sjá minningargrein um Elís Pétursson í Morgunblaðinu 28. desember 1951, Guðrúnu
Elísdóttur í Morgunblaðinu 21. október 1988 og Stefán Georg Elísson í Morgunblaðinu
22. júní 1985.
Frásögn Þorkels Valdimarssonar, sem var um skeið tengdasonur Björns Ólafssonar og
kynntist honum vel.
J Björn Ólafsson: „Hallgrímur Benediktsson stórkaupmaður," Vísir 8. mars 1954.