Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2010, Page 67

Andvari - 01.01.2010, Page 67
andvari DÓMSDAGSMYND GUNNARS GUNNARSSONAR 65 háttaðar plágur yfir mannkynið, þar á meðal haglél, blóðuga elda, eldgos, stjörnuhröp, tunglmyrkva, sólmyrkva og móðuharðindi. Lúðrablástur fimmta engilsins veldur engisprettnafaraldri og lúðrablástur þess sjötta styrjöldum en lýsingar Opinberunarbókarinnar á þeim plágum skýrir dýrafræðina á mynd Bosch: Engispretturnar líktust hestum, búnum til bardaga. Á höfðinu báru þær eitthvað sem líktist kórónu úr gulli og ásjónur þeirra voru sem ásjónur manna. Þær höfðu hár eins og konur og tennur þeirra voru eins og í ljónum. Þær báru eins konar járnbrynjur og vængjaþyturinn frá þeim var eins og vagnagnýr þegar margir hestar bruna fram til bardaga. Þær hafa hala og brodda eins og sporðdrekar og í hölum þeirra býr máttur þeirra til að kvelja menn í fimm mánuði. [...] Ég sá líka í sýninni hestana og þá sem riðu þeim: Þeir höfðu eldrauðar, svartbláar og brennisteinsgular brynjur og höfuð hestanna voru eins og ljónshöfuð. Af munnum þeirra gekk út eldur, reykur og brennisteinn. (9:7-17) Þessi lýsing staðfestir að súrrealisminn var ekki afmarkað stundarfyrirbrigði í upphafi tuttugustu aldar heldur á hann sér djúpar rætur í bókmenntasögu heirnsins. I samanburði við heimsendamynd Opinberunarbókarinnar er stemningin í yerki Gunnars Gunnarssonar fremur friðsæl. Þó má geta þess að eftir baðið 1 sundhöllinni og syndajátningar á skrifstofu Jaka setjast grafarbúarnir tólf að drykkjuveislu sem endar á þeim vikivakadansi sem sagan dregur nafn sitt af- Dansarnir sem sungnir eru við þetta tækifæri lýsa meðal annars holdlegri munúð og heimslyst en þarna má einnig finna vikivaka með hinu drungalegu viðlagi „Sökk í sjó sólin aftanrauða, / rammar rúnir ristir máni / og rignir dauða“ (s. 146). Skýrasta samsvörunin við málverk Bosch birtist þó líklega í eftirfarandi hugleiðingum Jaka um syndugt mannkynið: Þegar ég leiði nú hugann aftur að þessari fyrirvaralausu dómsdagsnefnu, sem að vísu varð miklu fremur dómsdagur sjálfs mín en gestahóps míns, og má mikið vera ef slíkt verður ekki hlutur guðs vors og herra, þegar þar að kemur, fyllist ég nú aftur af hátíðleik gagnvart algildum mætti sannleikans, gegn þeim dýrðareldi, sem öllu eyðir og allt hreinsar. Ef maður vissi ekki betur, væri freisting að halda, að mannheimurinn með allan sinn frumskógagróður lyga og uppgerðar væri nokkurskonar skógrækt, rekin með það eitt fyrir augum að framleiða eldsneyti fyrir þetta ofsalega eldsbál; og tortímast í því [...]. (s. 78) Áthyglisvert er að Jaki skuli segja að heimsókn grafarbúanna hafi raun leitt dómsdag yfir hann sjálfan. Þau orð vísa til niðurlags bókarinnar þar sem hinir framliðnu komast til himna, þrátt fyrir að í hópnum séu bæði þjófar og hordómsfólk, meðan höfundurinn sjálfur ferst fyrir fremur óljósar sakir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.