Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1933, Blaðsíða 30

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1933, Blaðsíða 30
10 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA Hitt mun aftur á móti oft satt, að lítið gagn sé að tungumála-námi því, sem unglingum er boðið u'ppá í amerískum skólum; þekki eg þess of mörg dæmi, að stúdentar, sem hafa haft 3—4 ára high-school nám í þýzku eða frönsku, hafa verið ólæsir á þessi mál eftir þann tíma. Hlýtur eitthvað að vera bogið við það nám, annað hvort af hálfu kennarans eða nemandans, nema hvorttveggja sé. Má til saman- burðar nefna það, að íslenzkir stúdentar verða fluglæsir á þýzku eftir þriggja ára nám. í nýiTí bók um málfræði í víð- tækustu merkingú: Language, eftir Leonard Bloomfield, prófessor í germönskum málum í háskólanum í Chicago, kvartar höf. mjög undan gagnsleysi hins venjulega tungu- mála-náms í Ameríku. Mest gagn mundi, að hans ætlun, vera að því, að láta börn útlendinganna nema mál forelda sinna. (In particular we could gain by having children of foreign background study the language they had heard at home.) Er þetta og auðskilið mál öllúm öðrum en þeim, sem líta svo á, að betra sé að gleyma en geyma tungu feðra sinna. II. Ekki leikur neinn vafi á því, að til viðhaids tungunni er nytsamt að kenna börnum og unglingum hana, og örva menn yfirleitt til þess að taia hana og lesa. Gildi skóla og bókasafna eða lestrarfélaga er í þessu efni svo alkunnugt, að ekki þarf um að ræða. í sambandi við bókasöfn mætti mynda lestrar- hringi eða málfundafélög, þar sem menn læsu bækurnar hátt og ræddu efni þeirra — þar sem svo hagaði til, að slíku yrði við komið. Ef til vill gætu svipuð félög og iðkað íslenzka leiklist að meir eða minna leiti, að minsta kosti gætu menn lesið hin íslenzku leikrit Jó- hanns Sigurjónssonar, Indriða Ein- arssonar og Guðmundar Kambans og Guttorms Guttormssonar í svona félagsskap ekki síður en sög- úr og kannske kvæði. En alt það, sem menn á þenna hátt geta gert fyrlr viðhald íslenzkunnar liggur, að mér virðist, svo í augum uppi, að ekki mun þurfa að orðlengja um það, enda veit eg ekki nenia þessu öllu sé beitt nú þegar af þjóðrækn- um Vestur-íslendingum til viðhalds tungunni og menningu feðranna. En fleira má gera fyrir tunguna en alt þetta. Til dæmis mætti örva menn til þess að leggja stund á vísindalega athugun tungunnar. Þetta gerði Þjóðræknisfélagið, þeg- ar það veitti Páli Bjarnarsyni verð- laun fyrir ritgerð um íslenzka orð- tengðafræði og birti hana í Tíma- ritinu. Sumir menn eru að nátt- úrufari forvitnir um alt milli him- ins og jarðar, einnig það sem flest- um mönnum þykir einskis vert. Það eru þessir menn, sem síðar verða vísindamenn með því að sökkva sér ofan í rannsókn þeirra hluta — oftast smáatriða — sem fjöldinn gengur hugsunarlaus eða jafnvel með fyrirlitningu fram hjá. Ekki er eg í vafa um, að marg- ur vestur-íslenzkur unglingur er með þessu forvitnismerki brendur, nú ekki síður en þegar þeir Hjört- ur Þórðarson og Vilhjálmúr Stef- ánsson voru að alast upp. Mundi það ekki vera hagur fyrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.