Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1933, Qupperneq 101
ÁRSÞING
80a
Nú hefir hópur ungra mentamanna
tekið þetta mál á dagskrá sína. Kom
nefnd frá þeim á fund stjórnarnefndar
Þjóðræknisfélagsins til viðtals, og var
málið þar rætt nokkuð. Var aðalerindi
þessara manna að fá að vita afstöðu
Þjóðræknisfélagsins til málsins, og hvers
styrks þeir mættu vænta frá því. Hug-
mynd þeirra er að safna $100,000 til
þess að standast straum af kennara-
embætti i norrænum fræðum við Mani-
tobaháskólann. Þjóðræknisfélagið má vera
þakklátt fyrir áhuga og viðleitni þessara
manna, og gleðilegt tákn tímanna er
það víst, þegar hin yngri kynslóð vor
vaknar til áhuga á þjóðræknis- og menn-
ingarmálum vorum.
ÍJtbreiðsIumál:
Eins og áður hefir verið drepið á hef-
ir lítið verið gert að útbreiðslumálum
á árinu, og veldur árferðið þar mestu
um. Nefndin hefir ekki séð sér fært að
leggja út í neinn kostnað i því sam-
bandi, þó það sé óneitanlega eitt aðal vel-
ferðarmál félagsins. En þó að félagið
hafi ekki séð sér fært, að leggja fram
neitt fé á árinu til þeirra þarfa, þá hef-
ir samt nokkuð orðið ágengt í þá átt.
Félagið Vísir í Chicago verður form-
lega tekið inn sem sambandsfélag á
þessu þingi. Telur Vísir nú um 100 með-
limi og er það góður styrkur Þjóðrækn-
félaginu í viðleitni sinni til að sameina
sem flesta Islendinga, sem dreifðir eru
víðsvegar um meginland Norður-Ame-
ríku. Félagið Vísir hefir starfað að við-
haldi íslenzkrar tungu og íslenzks þjóð-
ernis með góðum árangri í fleiri ár, og
hefir með þvi sýnt hvað hægt er að
gera ef viljinn er nógu einbeittur. Þrátt
fyrir það þótt þeir séu dreifðir á meðal
enskumælandi miljónanna í þeirri risa-
borg, og eiga að því leyti erfiðari að-
stöðu en allir aðrir Islendingar i álf-
unni utan New York borgar, hefir þeim
farnast vel.
Forseta yðar veittist sú ánægja að
vera staddur nú i þessum mánuði á
aðal ársmóti þessa félags.—Þar fór alt
fram á íslenzku, nema ein ræða, sem
sögukennari frá Illinois háskólanum
flutti, — allir aðrir, ungir og gamlir,
lásu, töluðu og sungu á hreinu og hljóm-
þýðu íslenzku máli.
I sambandi við félagið Visi og þjóð-
ræknisstarfsemi Islendinga í Chicago,
skal þess getið, að prófessor J. S. Bjöms-
son heldur íslenzkuskóla upp á sinn
eigin kostnað, sem hinir yngri nota sér
prýðis vel. Er það lofsamlegt verk, sem
ekki aðeins lýsir sönnum þjóðræknis-
metnaði, heldur og sönnum manndóms-
þroska á háu stigi. Auk prófessorsins
eru þar margir menn og konur, sem
hér yrði of langt upp að telja, sem
styrkja þjóðræknisstarfið þar syðra með
ráði og dáð.
Söngflokk ágætan, sem Islendingar ein-
ir eru í, hefir félagið, sem skemti á
þessari samkomu, og syngur i útvarp-
ið á sunnudaginn þann 26. ef eg man
rétt. Söngstjóri þessa flokks er ungur Is-
lendingur, Guðmundur Kristjánsson, sem
í haust er leið söng í útvarpið í Grand
Forks, N. D., og víðar.
Með þessum forsendum vil eg bjóða
félagið Vísi velkomið til samvinnu við
Þjóðræknisfélagið, og vona að sambandið
verði báðum aðilum til blessunar.
Á undanförnum árum hefir mikið verið
að því gert af deildinni Frón, að kenna
börnum og unglingum að mæla af munni
fram íslenzk ljóð, og átti hr. Bergþór E.
Johnson mestan og beztan þátt í því
starfi. Nú í vetur skilst mér, að ekk-
ert hafi verið að því starfað, og er það
skaði, því slík æfing í framsögn íslenzkra
kvæða er ótvirætt þroskaskilyrði hinum
ungu, og hin bezta skemtun hinum
eldri, er á hlusta.
íþróttamál:
Aftur hafa Fálkarnir, eða iþróttafélag-
ið með þvi nafni, sótt fram af hinni
mestu hreysti, sér, félaginu og þjóð
sinni til hins mesta sóma.
Um bikar Þjóðræknisfélagsins var
kept síðastliðinn vetur, eins og til stóð.
í þeirri viðureign tóku þátt sex flokk-
ar: frá Winnipeg, er áður hólt bikarn-
um, frá Selkiiíc, Gimli, Lundar, Árborg
og Glenboro. Glenboro-flokkurinn vann
sigur og heldur hann bikarnum nú.
Önnur samkepni fer fram á Olympic
skautahringnum, laugardaginn þ. 25. og
mánudaginn þann 27 þ. m. Og taka þátt
í þeirri samkepni um bikarinn: 2 flokk-
ar frá Winnipeg, 1 frá Glenboro, 1 frá