Vísir - 24.12.1939, Síða 24

Vísir - 24.12.1939, Síða 24
18 VÍSIR Grasaíerðir í Borgarfirði og notkun fjallagrasa. Eftir Kristleif Þorsteinsson. r ------- Fram yfir miðja 19. öld lét svo að segja hver einasti bóridi i Borgarfirði, selu nokkurs var megandi, afla það mikilla grasa ó hverju vori, að þau dygðu yfir árið til búdrýginda og matar- hóla. Grasatekja var þá víða nokkur, hœði i hraunum og á heiðarflákum, en mest sótti grasafólk til Arnarvatnsheiðar og Geitlands. Engum var þá bönnuð eða seld grasatekja af þeim, sem yfir þessum löndum réðu. Venjulegast var það um og eftir miðjan júnímánuð, sem lagt var upp á grasafjall, ef vel voraði. Annars þótti það ekki lækilegt l'yr en nokkur gróður yar.kominn, því ella voru liestar ekki viðráðanlegir meðan grasa- tekja stóð yfir. Um það leyti, sem sent var til grasa, voru flestir vinnumenn við sjóróðra vorvertíðina, en bændur ýmist við kolagerð eða bundnir við heimilisverk. Kom því grasa- ferðin einkum í hlut kvenna og liðléttinga. Samt var ætíð hafð- ur ráðinn og roskinn karlmaður með í förinni líka, sem hafði leiðsögn á liendi. Áður en upp var lagt, var séð fyrir öllum nauðsynlegum- útbúnaði til ferð- arinnar, svo sem nesti, pokum, eldfærum, hlífðarfötum og tjakli. Fór það eftir stærð tjalds- ins og öðrum atvikum, live margt fólk var i einum flota. Ungu fólki, og ekki siður stúlk- um en piltiflm, þótti mjög eftir- sóknarvert að fara á grasafjall, einkum ef farið var sem lengst norðnr á Arnarvatnsheiði. Ung- lingar, sem áttu heima niðri i sveitum héraðsins og áður höfðu lítið farið, sáu þá í fyrsta sinni skóga, hraun, strangar og gruggugar ár, stór vötn og fjöll i nálægð fró ýmsum hliðum, en sem þeir aðeins liöfðu áður séð í fjarska. Þetta alt var heillandi, ekki sist fyrir ungar stúlkur, sem voru hneptar við heimilis- störf og höfðu lítið frjálsræði á þeim tímum. Það sagði móðir mín mér, að hún hefði átl flestar sínar á- nægjulegustu æskuminningar frá grasaferðum á Arnarvatns- heiði. Þær áttu þó ekkert skylt við stássferðir, því stúlkur klæddust þá yst svo kölluðum „kastfötum“, mjög ófínum og úr grófgerðu vaðmáli og riðu á þófa eða meldýnum, ef ekki var á betra völ. Að riða í söðli á grasafjall þótti þá alls ekki við- eigandi. Mun það bæði hafa ver- ið af sparsemi á söðlunum og líka af hinu, að stúlkur voru færari í ám og á vegleysum, er þær riðu „tvovega“, eins og það var orðað. Þótl grasaferðir væru eftir- sóknarverðar, ekki síst þegar langt var farið inn á fjallaauðn- ina, þá voru ýmsir staðir á leið- inni, sem áttu geigvænlega sögu. Þeir staðir hituðu oft ungling- unúnl úm hjartarætur, svo sem Skottugjá, Surtshellir, Yopna- lág og Fram;-hellir. Um sögu þessara staða voru unglingarnir jafnan fræddir af þeim eldri, er fram hjá þeim var farið. Draugasaga um Skottugjá og útilegumannasaga um Franz- Jielli voru mjög áhrifaríkar fyr- ir unglinga, meðan þær voru næstum nýjar af nálinni, og drauga og útilegumannatrú enn í fullu fjöri. Skottugjá her nafn af atviki, sem nú skal greina: Um og eftir 1830 hjuggu í Kalmanstungu Surtshellir er eitt frægasta litilegu- tnannabæli þessa lands. Myndin sýnir niðurhrun, svokallað ,fjárop‘, þar sem sagt er að Hellismenn hafi hrint niður fénu, er þeir stálu austur á Arnar- vatnsheiði. \ T' v im*; Kristleifur Þorsteinsson. Jón stúdent Árnason, síðar á Leirá, og fyrri kona hans Halla Jónsdóttir, prests á Gilsbakka. IJvítárvallaskotta, sem þá var magnaður draugur, fylgdi ætt IIöIlu og þótti hún ekki híbýla- prýði eða búbætir á þeim árum. Að sögn heimilisfólksins í Kal- manstungu gekk hún þar ljós- um logum og gerði ýmsan ó- skunda. Skygnir menn gátu stundum bjargað gripum úr klóm hennar, en al' sumum gekk hún dauðum. Ivristín, svsl- ir Höllu, hjó þá í Víðidalstungu með manni sinum, Jóni Tliorar- ensen. Þangað brá Skotta sér við og við og hafði þar ýms skammarstrik í frammi. Eru li! margar sögur af hrékkjabrögð- um Skottu frá þessum tímum, en hve'rgi þótti hún verri en í Kalmanstungu á fyrstu búskap- arárum þeírra lijóna, Jóns og Höllu, Eitt vor, sem oftar, sendi Jón Árnason tvo vinnumenn sína til silungsveiða á Arnarvatnsheiði. Segir ekki af ferðum þeirra fyr en þeir eru á heimleið og komn- ir nokkurn spol suður fyrir Surtshelli, á vegi þe'im, sem lá milli Suður- og Norðurlands. Þar situr Skotta fyrir þeim og vindur sér að liesti þeim, sem aftastur var, slítur liann úr lest- inni og kastar honum með öllu, sem á honum var, ofan í hraun- bolla rétt við veginn, er var lítið stærri en það, að geta rúmað einn hest. Mennirnir vildu hjarga hestinum, en gátu hann hvergi hrært, svo fast lá Skotta, að þeirra sögn, ofan á honum. Drap hún þar hestinn í höndum þeirra. Eftir þenna atburð var gjáin nefnd Skottugjá. Beinin af hesti þessum liggja enn í gjánni, til sannindamerkis um það, að hann Iét Iífið á þessum stað. Eftir þennan atburð var draugatrúað fólk mjög óttasleg- ið á þessari leið, og dæmi vissi eg til jiess að kona, sem var á ferð á grasal'jall, hljóðaði af ótta og bað fylgdarfólkið að reyna að komast aðra leið, svo að hún losnaði við þá ógn, sem henni stóð af Skottugjá. Sagnirnar frá Surtshelli og Voþnalág ægði þá engum, þær voru orðnar svo gamlar. En þó gáfu hinar forriu þjóðsagnir þessum stöðum líf. Annars voru útilegumánnasögur margar til

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.