Vísir - 24.12.1939, Blaðsíða 19
VÍSIR
13
...........* ..... " — —1
Lögreglufulltrúini) var stað-
inn upp og óttinn skein úr
hverjum andlitsdrætti hans.
í sömu svifum henti Ondra
sér á bak hinum hestinum og'
reið af stað og hélt áfram að
kalla:
„Dorcha, Dorcha, komdu,
komdu!“
„Hvert ætlarðu,“ kallaði lög-
reglufulltrúinn. „Hvert ætlarðu,
þorparinn þinn, þú — þú
lúsablesi — eg skal —“
En Ondra skellihló.
„Ætlarðu að skilja mig hér
eftir?“ veinaði lögreglufulltrú-
inn, „það verður minn bani.
Gerðu það ekki, eg bið þig.“
Rödd lians tiiraði af angist.
„Úlfarnir — úlfarnir koma
kannske.“
„Verið alls ósmeykir, herra
minn,“ ságði Ondra. „Það eru
engin villidýr hérna í mýrinni
— og úlfarnir eru vatnshrædd-
ir. Vefjið að yður feldinum —
svo að þér kvefist ekki. í fyrra-
málið kem eg — eldsnemma.
Það er lieypoki undir sætinu —
búið yður hvílu og látið fara
vel um yður. Eg lek ekkert fyr-
ir næturgreiðann.“
„Vertu ekki að skopast að
mér,“ sagði lögreglufulltrúinn
eymdarlega. „Farðu ekki frá
mér. Hjálpaðu mér.“
„Það er svo dimt, fulltrúi, eg
sé ekki handa skil. Hvað get
eg gert yður til hjálpar?“
Það fór ekki fram hjá full-
trúanum, að Ondra mælti í
liæðnislegum tón. Hann var
gripinn skelfingu af tilhugsun-
inni að vera þarna einn alla
nóttina á miðjum mýrarflákan-
um, og hann mælti með grát-
stafinn í kverkunum:
„Ondra, komdu aftur, eg bið
þig. Eg skal launa þér vel —
hvað sem þú setur upp. Eg á
konu og börn. Þau biða eftir
mér. Og á morgun er jóladag-
ur — því ertu svona harðlund-
aður ?“
Hann mælti í örvæntingu.
Hann beið eftir svari. En ekkert
svar kom. Þá var eins og liann
ætlaði af göflunum að ganga
og liann æpti út í myrkrið:
„Hæ, strákur, nautshaus,
fantur, komdu og bjargaðu
mér. Sjáðu aumur á mér. Hugs-
aðu uin hörnin mín. Þau hiða
eftir mér — það verður ekki
kveikt á jólatrénu fjrr en eg
kem. Engin jól, nema eg komi.
Ó, bændalydda, hundur —“
Svo lineig hann niður i sæl-
ið, vafði um sig úlfsskinnafeld-
inum og grét eins og barn.
En nóttin var þögul og dimm.
Og honum var engu svarað.
A. Th.
þýddi úr ensku.
HEIM FYRIR JÓLIN
Ötnwiio.%. nótt á 'ífxóð.áhA&Íðí
S^LpiÍÁ. pHm. 1937'.
Úr Staðarsveit. Lengst t. v. á myndinni sést hvar Fróðárheiði byrj-
ar, en þar liggja sunistaðar klettabjörg mikil, er geta vcrið mjög hættu-
leg vegfarendum, þeini, cr viltir fara.
Porsteinn Jósepsson færði f letur eftir frá
sögn Elínar Gisladóttur á ölkeldu.
Elín Gísladóttir.
AÐ lagði vindgjóstu sunr ■
an af fjöllum og norður
yfir Breiðafjörð.
Sennilega yrðj liann svalur á
Fróðárheiði i dag. Þó voru
menn ekki á eitt sáttir með veð-
urúllitið. Flestir héldu að hann
myndi lægja og létta til, öðrum
fanst útlitið ískyggilegt, og
töldu allra veðra von. Veðurspá
útvarpsins fór fyrir ofan garð
og neðan lijá þeim þorpsbúun-
um. Sjómenn spá veðrinu sjálf-
ir. Þeim finst það tryggara.
Undir öllum kringumstæðum
var betra að búa sig vel, og Elín
var færð í hverja spjörina utan
yfir aðra. Hún fór nauðug i
þær, ep fór í þær samt, því
gamla fólkið veit hvernig á að
búa sig út í fjallferðalög í
skammdeginli.
Úthtið var líka langt frá þvi
að vera örugt.
Elín var færð í tvenn ullar-
nærföt og þrenna sokka, poka-
buxur úr þykkri íslenskri voð
og tvær ullarpeysur. Um liáls-
inn var vafinn litill ullartrefill
og skjólgóð slæða utanyfir
hann, svo lienni yrði ekki kalt
á hálsinum. Svo var haldið á-
fram að búa liana undir kuld-
ann á Fróðárheiði. Hún var
færð í jakka, síðan skjólgóða
lqápu með loðkraga og loks var
endahnúturinn hnýttur á þetta
með því að færa hana i regn-
kápu yst allra klæða. En auk
þess var hún í stórum gúmmí-
stígvélum — svo stórum, að
þau rúmuðu alla sokkana sem
hún var i, auk fótanna. Á höfð-
inu hafði hún alpahúfu og sjó-
hatt utanyfir.
Elín leit út eins og stór álna-
vörustrangi. Það var með
naumindum að það sæist á
henni nokkur mannsmynd, og
af liðamótum á likama sinum
vissi hún varla, svo stirð og
þunglamaleg var hún orðin í
þessum mikla fatabunka. En
Elin var vel búin, og það var
fyrir mestu, þvi að um skamm-
degisleytið er allra veðra von á
Fróðárheiði — jafnvel þótt út-
litið væri betra en það var í
dag.
Elín var Gísladóttir, og átti
heima á Ölkeldu í Staðarsveit.
Hún fæddist 22. dag ágústmán-
aðar árið 1917. Og nú var hún
tuttugu árum og fjórum
mánuðum seinna — á leið heim
til foreldra sinna til að dvelja
þar meðal ástkærra ættmenna
sinna um hátíðarnar.
Þetla var 16. desember 1937,
og Elin var sammæld við póst-
inn sem fór milli Ólafsvíkur og
Búða, Ágúst Ólason í Máfa-
hlíð. Þau höfðu þrjá hesta, sinn
hestinn livort til reiðar, og einn
undir póst. Þegar þau lögðu al'
stað vantaði klukkuna hálfa
slund til liádegis.
Þau fóru sem leið lá frá Ól-
afsvík og inn með sjónuin, und-
ir hliðum sem liggja norður úr
Ivambsheiði og að svokölluðu
Heiðartagli fyrir innan Fróðá.
Ljósm.: Þorst. Jósepsson.
Þar byrjar Fróðárheiði.
Færðin var góð að Taglinu og
þau fóru greitt. Loftið var
þungbúið eins og áður og það
rofaði hvorki til né sjæti að.
Gjóstan var hin sama.
Þegar upp í heiðina kom,
versnaði færðin til muna. Snjór-
inn var mikill og viða djúpir
skaflar. En það kom þeim ekki
á óvart. Þau vissu það áður og
ætluðu að ferðin til Búða tæki
5—6 klst., en það er nokkuð
lengri timi en venjulega þarf
til að komast þessa leið.
Á leiðinni upp fyrstu brekk-
una syrti í lofti og úr sortanum
hrutu snjóél — allsvört — en
birti að eins á milli. Það tók að
hvessa.
Veðrið versnaði því ofar sem
dró i lieiðina. Hvassviðrið óx,
snjókoman líka. Nú var ekki
meir um uppstyttu að ræða, og
innan stundar var skollið á fár-
viðri, rok og samsvarandi hrið.
Það sást ekkert til vegar og
þarna var ekkert sem hægt var
að átta sig á. Þau héldu beint i
veðrið, og hestarnir brutust á-
fram í ófærðinni. Póstshestarn-
ir voru öllu vanir og klufu fann-
4