Vísir - 24.12.1939, Blaðsíða 45

Vísir - 24.12.1939, Blaðsíða 45
VÍSIR 39 Ástin hefir skotið mér í hið heilaga hjónaband í dag. Tala við þig seinna. D. Anna las þetta stutta bréf aft- ur og aftur. Hún trúði ekki sín- um eigin augum. Davíð giftur. Þetta hlaut að vera einhver misskilningur. Samt var það víst satt. En hvers vegna hafði hann ekki sagt henni þetta fyr en nú á sjálfum aðfangadegin- um. Það var kuldalegt og ónær- gætið. En hann liafði sjálfsagt einhverja ástæðu fram að færa. Hún vildi ekki ásaka hann, en gerði það þó. Þetta myndu verða einmanaleg jól; — pabbi og mamma voru langt upp i sveit, Davíð líka fjarri lienni, og svo þessi hræðilega rigning. Anna lirökk upp af hugsun- um sínum við það, að einhver ávarpaði hana. Henni brá þeg- ar hún sá að búðin var orðin full af fólki. í fátinu stakk hún bréfinu á milli blómanna sem hún hafði verið að liagræða í körfunni og fór svo að afgreiða. Það sem eftir var dagsins var látlaus ös. Anna liafði því eng- an tíma til að hugsa um einka- mál sín. Það var ekki fyr en búið var að loka, að hún mundi hvar hún hafði látið bréfið. Dæmalaus aumingi gat hún verið! Yerri staður var ekki til en fegursta blómakarfan í versluninni! Hún flýtti sér að borðinu og auðvitað var karfan horfin. Anna starði ráðalaus á auða borðið. Hvað átti hún að gera? Bréfið var falið á milli blóm- anna. Miklar likur voru til þess að viðtakandi körfunnar rækist á bréfið og læsi það. Og það gat haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. — Hver keypti körfuna, sem stóð hérna? spurði hún Heiðu. — Hvaða körfu? — Æ — þú veist. Stóru körfuna, sem kostaði tuttugu og þrjár og fimtíu, sagði Anna dálitið óþolinmóð i rómnum. — Það veit eg ekki, góða min. Eg hefi selt ótal körfur, öllum liugsanlegum manneskj- um. Og þó það ætti að drepa mig, þá veit eg ekki hvað þær heita, það veit heilög hamingj- an. — 0, hættu þessu þvaðri, andvarpaði Anna. — Lína! Seldir þú stóru körfuna, sem stóð hérna? — Biðuni uú við, sagði Lina, um leið og hún kipraði augun saman og hallaði undir flatt til þess að eiga hægara með að hugaa, Þú hiýtur aö muna eftir GLEÐILEG JÓL! Ullarverksmiðjan Framtíðin. 1 ..................................................................................................................................................................................................................................... GLEÐILEG JÓL! Málning og járnvörur. liíJiHililiiilMlkllLihl GLEÐILEG JÓL og gott og farsælt nýtt ár, með þökk fyrir það, sem er að líða. SIGURÐUR KJARTANSSON. GLEÐILEG JÓL! Bókaversl. Þór. B. Þorlákssonar. T - - “’V GLEÐILEG JÓL' pyottahúsið Grýtq, ----------------------------U, henni. Manstu ekki að við vor- um eánmitt að tala um það í morgun, hvað hún væri falleg og þú óskaðir, að þú fengir eina slíka körfu frá einhverjum leynilegum aðdáanda. — Ó-jú — nú man eg það. Hún kostaði tuttugu og þrjár og fimtíu. — Já. — Eg seldi hana, — þvi mið- ur. Lína andvarpaði mæðulega. —- Og það er ekki nokkur von að eg sjái hana framar í lífinu. Sá, sem keypti hana er vist harðtrúlofaður. — Þekkirðu hann? O-já, ætli maður kannist ekki við Daníel Guðmundsson lögfræðing. — Segirðu að hann heiti Daníel? spurði Anna óttaslegin. Verra gat það ekki verið. — Undirskriftin á bréfinu var bara D. — Hann ætlar víst að’ gefa kærustunni körfuna, í það minsta bað hann mig fyrst að senda körfuna til ungfrú Ingu Péturs á Vesturmel. En svo hætti hann við það, og bað mig að senda hana á Suðurbraut eitthvað. Hann ætlar auðvitað að fara sjálfur með körfuna til hennar, og það finst mér líka rétt hjá honum. En hvað varð- ar þig eiginlega um þetta? I staðinn fyrir að svara, hljóp Anna inn í fatageymsluna, þreif kápu sína og þaut út, áð- ur en Lína fengi ráðrúm fyrir athugasemdir sinar. — Hvað gengur að Önnu? spurði Heiðav — Hún gerir mann forvitinn? — Veit ekki, spurðu blómst- urpottinn þann arna frekar en mig, sagði Lína og ypti öxlum. Þegar Anna kom út, vafði hún kápunni að sér, dró hatt- inn dálítið niður í annan vang- ann og hljóp svo af stað. Hún hoppaði upp í strætisvagn, sem í þessu nam staðar á gatnamót- um. Við Suðurbraut fór hún úr bilnum og fann eftir dáhtla stund húsið, þar sem Daníel lögfræðingur bjó. í því hún studdi á dyrabjölluna kom ein- hver hlaupandi upp tröppurnar og staðnæmdist við hliðina á henni. Er hún leit við, sá hún mann standa við hliðina á sér. Það var hár og karlmannlega vax- inn ungur maður. Hárið, sem gægðist framundan hattinum, var svart og gljáandi, augun dökk og biðjandi, nefið beint, munnurinn óvenju rjóður og fagur, hakan hvöss. Alt þetta sá Anna i einni s\1p- an og án þeas aS gera sér grein áiiwðwppi, flngu um þugá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.