Vísir - 24.12.1939, Blaðsíða 7
29. ár.
Iteykjavík, sunnudaginn 24. desember 1939.
72 síður.
|W&VERSU MJÖG er alt á hverfanda lweli, það eru
flokkardrættir og dægurþras, dýrtíð og erfiðleik-
ar og þrotlaus harátta og þrotlaus breyting, sem enginn
veit í rauninni hvert stefnir.
Og veruleikinn, sem við mörgum hlasir — og e. t. v.
flestum er hræðilega kaldur, svo kaldur að mörgum
finnst hann smátt og smátt kæla þái sjádfa, kuldinn verð-
ur að vana. Þannig verður að mæta lífinu, segja menn,
því þannig e r lífið.
Þelta er tímans hjól, þannig snerist það áður og þann-
ig smjst það enn.
En í allri þessari síbreytilegu og þrotlausu rás, er eitt,
sem liefir slaðið stöðugl um aldirnar: Ii eil ö g j ó l.
Klukkurnar hringdu þau inn, þegar Reykjavik var lítið
þorp og þá varð heilagt; og klukkurnar hringdu þau inn
eftir að Reykjavík varð nýtískubær og þá varð heilagt.
Og hvort sem vér förum í þröngu víkurnar norður á
Ströndum eða gistum lágreistan bæ djúpt í dalbotni,
hvcrt sem vér förum um byggt ból, —: á jólum verður
alstaðar lieilagt.
Um borg og bygð, um strörnl og dal er þá hlustað á
rödd Guðs. Það er mikilfengleg stund, því það er ekki
néma í þetta eina sinn á árinu, sem öll þjóðin hlust-
ar eftir rödd Guðs. Og lwílikur fagnaðarboðskapur frá
herra himins og jarðar: Yður er í dag frelsari
fæddur. Frelsari frá öllu hinu illa, frá synd og eymd,
frá lygi og hræsni, frá sérgæsku og ábyrgðarleysi, frá
hugleysi og hiki og tvístran, frá öllu því, sem lamar yð-
ur og hræðir, er þér horfið inn í hugskot yðar — f r á
öllu þ v í, s e m hefir g r e y p t fangamark t o r-
t ry g n i n n a r o g k u I d á n s i n n í líf d a g a n n a.
Þetta er boðskapur jólanna, og þetta er fagnaðarefni
þeirra: Yður er frelsari fæddur — frái þessu öllu — Krist-
ur Drottinn. Og sjá, hann er lind Guðs lifandi máttar,
sem fær gjört yður styrka, gefið yður nýtt líf og heim-
inum nýja ásýnd.
Hví skyldi ekki færast yfir friður og djúp gleði á jól-
um við slíkan boðskap, slíkt boð frá Guði sjálfum. Jú,
þá verða strengir hjartans viðkvæmari, þá færist nær hið
helga, háa, en færist fjær hið lága. Þá þýðast lindir sam-
úðarinnar og kærleikurinn breiðir úr sér. Þá er sem tjald
sé dregið frá og menn sjái inn i hið fyrirheitna, kenni
ilm Guðs rikis, — og ný gleði gripur hjörtun og menn
syngja:
„Sé drottni dýrð“.
Þannig eru jólin, en síðan er sem aftur sé dregið for-
tjald fyrir. Togstreytan hefst á ný, baráttan, tortrygnin,
k u l d i n n. Skipum er sökt, borgir eru brendar, svipa
hins illa lemur þjóðirnar.
Frá þessu áttum vér kost á að frelsast fyrir kraft Drott-
ins Jesú, gjöf jólanna, e f h o nu m h e f ð i í a l v ö r u
v e ri ð v c i 11 v i ð t a k a.
Og vér minnumst þessara orða:
„Og Ijósið skín í myrkrinu
og myrkrið meðtók það ekki“.
Hversu lengi? spyrjum vér. IJversu lengi þolir heim-
urinn það, að „Ijósinu“ sé hafnað?
Hugleiðum þessa spurningu á þessum jólum. Hugleið-
um hana í einlægni frammi fyrir auglili Drottins — og
biðjum hann þess, að oss mcgi veitast sönn jól og sönn
jólagleði.
G a r ð a r S v a v a r s s o n.