Vísir - 24.12.1939, Page 7

Vísir - 24.12.1939, Page 7
29. ár. Iteykjavík, sunnudaginn 24. desember 1939. 72 síður. |W&VERSU MJÖG er alt á hverfanda lweli, það eru flokkardrættir og dægurþras, dýrtíð og erfiðleik- ar og þrotlaus harátta og þrotlaus breyting, sem enginn veit í rauninni hvert stefnir. Og veruleikinn, sem við mörgum hlasir — og e. t. v. flestum er hræðilega kaldur, svo kaldur að mörgum finnst hann smátt og smátt kæla þái sjádfa, kuldinn verð- ur að vana. Þannig verður að mæta lífinu, segja menn, því þannig e r lífið. Þelta er tímans hjól, þannig snerist það áður og þann- ig smjst það enn. En í allri þessari síbreytilegu og þrotlausu rás, er eitt, sem liefir slaðið stöðugl um aldirnar: Ii eil ö g j ó l. Klukkurnar hringdu þau inn, þegar Reykjavik var lítið þorp og þá varð heilagt; og klukkurnar hringdu þau inn eftir að Reykjavík varð nýtískubær og þá varð heilagt. Og hvort sem vér förum í þröngu víkurnar norður á Ströndum eða gistum lágreistan bæ djúpt í dalbotni, hvcrt sem vér förum um byggt ból, —: á jólum verður alstaðar lieilagt. Um borg og bygð, um strörnl og dal er þá hlustað á rödd Guðs. Það er mikilfengleg stund, því það er ekki néma í þetta eina sinn á árinu, sem öll þjóðin hlust- ar eftir rödd Guðs. Og lwílikur fagnaðarboðskapur frá herra himins og jarðar: Yður er í dag frelsari fæddur. Frelsari frá öllu hinu illa, frá synd og eymd, frá lygi og hræsni, frá sérgæsku og ábyrgðarleysi, frá hugleysi og hiki og tvístran, frá öllu því, sem lamar yð- ur og hræðir, er þér horfið inn í hugskot yðar — f r á öllu þ v í, s e m hefir g r e y p t fangamark t o r- t ry g n i n n a r o g k u I d á n s i n n í líf d a g a n n a. Þetta er boðskapur jólanna, og þetta er fagnaðarefni þeirra: Yður er frelsari fæddur — frái þessu öllu — Krist- ur Drottinn. Og sjá, hann er lind Guðs lifandi máttar, sem fær gjört yður styrka, gefið yður nýtt líf og heim- inum nýja ásýnd. Hví skyldi ekki færast yfir friður og djúp gleði á jól- um við slíkan boðskap, slíkt boð frá Guði sjálfum. Jú, þá verða strengir hjartans viðkvæmari, þá færist nær hið helga, háa, en færist fjær hið lága. Þá þýðast lindir sam- úðarinnar og kærleikurinn breiðir úr sér. Þá er sem tjald sé dregið frá og menn sjái inn i hið fyrirheitna, kenni ilm Guðs rikis, — og ný gleði gripur hjörtun og menn syngja: „Sé drottni dýrð“. Þannig eru jólin, en síðan er sem aftur sé dregið for- tjald fyrir. Togstreytan hefst á ný, baráttan, tortrygnin, k u l d i n n. Skipum er sökt, borgir eru brendar, svipa hins illa lemur þjóðirnar. Frá þessu áttum vér kost á að frelsast fyrir kraft Drott- ins Jesú, gjöf jólanna, e f h o nu m h e f ð i í a l v ö r u v e ri ð v c i 11 v i ð t a k a. Og vér minnumst þessara orða: „Og Ijósið skín í myrkrinu og myrkrið meðtók það ekki“. Hversu lengi? spyrjum vér. IJversu lengi þolir heim- urinn það, að „Ijósinu“ sé hafnað? Hugleiðum þessa spurningu á þessum jólum. Hugleið- um hana í einlægni frammi fyrir auglili Drottins — og biðjum hann þess, að oss mcgi veitast sönn jól og sönn jólagleði. G a r ð a r S v a v a r s s o n.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.