Vísir - 24.12.1939, Blaðsíða 17

Vísir - 24.12.1939, Blaðsíða 17
VlSIR 11 DIMITR IVANOV Saoa frd Búlgaríu. Jólanótt Höfundur þessarar sögu er Elin-Pelin, sem tók sér kjörorðið Dimitr' Ibanov, f. 1878 nálægt Sofia, af alþýðufólki kominn. Hann var sveita- kennari og skildi vel kjör bænda og sveitafólks yfirleitt og er hann fór að skrifa sveitalífssögur frá Húlgaríu vakti hann brátt mikla at- hygli á sér, og þykja sveitalífslýsingar hans afburða góðar. Fyrsta smásagnasafn hans kom út 1904. Frá 1904 var hann forstjóri Skóla- safnsins í Sofia. Eftir það gaf hann út nýtt smásagnasafn og jók það mjög hróður hans. 1Ð höfum nógan tíma, herra minn, yfrið nóg- an tíma. ViÖ verðum komnir i áfangastað fyrir myrkur. Þorpið er þarna — við rætur hæðarinnar beint fram- undan. Sjáið þér það ekki? Þeg- ar við erum komnir yfir hálsinn fer það að styttast, — þá er að að eins yfir slétluna að fara, svo að það má heita, að við séum bráðum komnir.“ Ekillinn, sveitapiltur um tví- lugt, sveiflaði keyrinu, sló í klárana og mælti til þeirra hvatningarorðum: „Áfram nú, áfram, herrar mínir!“ Þetta var kátur piltur og Iiressilcgur, en nokkuð þrár og átti til að fara sér hægt, eins og ekki var ótítt um sveitafólk- ið á þessum slóðum. Og klárarnir hertu ganginn, en vegurinn var blautur, og vagnlijólin voru annað veifið liálf í kafi i aurnum, sem slett- ist í allar áttir, en vagnskriflið skrölti og gjögti. Þetta var á aðfangadag jóla og það hafði verið úrkomusamt seinustu tvær til þrjár vikurnár og vegir allir erfiðir yfirferðar og ekki mundi betra taka við, er út í mýrlendið kæmi. En pilturinn lét þetta ekki á sig fá, hann kallaði glaðlega til kláranna ,lét fara vel um sig i sætinu, ýtti húfunni aftur i hnakkann og fór að söngla gamla þjóðvísu. „Hvað heitirðu, piltur minn?“ sagði maður sá, sem sat í aftur- sætinu, allhrokalega. Hann var maður gildvaxinn og sællegur og klæddur yfirhöfn úr úlfa- skinnum. Pilturinn svaraði engu og hélt áfram söngli sínu. „Hæ, strákur,“ kallaði sá gildvaxni hörkulega. irforingi og tveir óbreýttir her- menn gættu þess, að Þjóðverj- arnir kæmi ekki of nærri okkar skotgröfum......Að kveldi þess dags — þriðja í jólum — vor- um við leystir af verði. Við lét- um þá, sem við tóku af okkur, vita hvernig samkomulagið hefði verið við fjandrnennina, ef þá langaði til þess gð rabbg VÍð þá. lögreglufulltrúans. „Hvað er nú?“, spurði piltur- inn og leit um öxl. „Hvað heitirðu?“, sagði eg. „Ertu heyrnarlaus ?“ „O-nei. Eg heiti Ondra.“ „Ondra, ha? Drjúgur, karlinn, eins og fleiri hérna á landsbygð- inni, og kannske lyginn og und- irförull líka. Eg þekki þig og þína líka. Gamlir kunningar allir, ef svo mætti segja — úr lögregluréttinum, ha, ha! Og Iivað þið sveitamennirnir getið verið sakleysislegir, þegar þið eruð að bera af ykkur sakir. Eins og lömb. En úlfar í sauð- argærum — það er það, sem þið eruð. Og þið vogið ykkur að reyna að gabba sjálfan dómar- ann.“ „Við erum bara bændagrey,“ sagði pilturinn, „og við erum rægðir og logið upp á okkur. Og það er af tómri einfeldni, ef við blekkjum einhvern — eða út úr neyð, því að hér er mesta basl á öllum.“ „Basl, einfeldni! Ekki vantar afsakanirnar. Þú ert alveg eins og kunningjarnir úr lögreglu- réttinum. En ef við, sem eigum að gæta laganna, erum víðs fjarri, vantar ekki að þið séuð nógu borubrattir og gerið allan fjandann, sem ykkur dettur í hug. Og svo drekkið þið úr ykk- ur alt vit, ef færi gefst.“ „Þér lialdið þó ekki, að það sé velgengni, sem stígur okkur til höfuðsins, herra minn?“ læddi Ondra út úr sér. „Eða að við höfum úr of miklu að spila. Nei, það er nú öðru nær. Og þér segið, að bændurnir drekki úr sér alt vit. O, sei, sei, nei. Þeir gera það ckki af þvi, að ]>eir lumi á gulli, heldur af því, að þeir eru snauðir, og ef þeir bragða vín, liggur vel á þeim, og ]>eir gleyma dægurstritinu. •Tá, þelta getið þér nú skrifað bak við evrað, herra minn.“ „Fari i logandi, ef eg held ekki, að þú hafir bragðað á ein- hverju, piltur sæll. En þú ert of ungur — þér er ekki sprottin grön. Og eg á að skrifa það, sem þú sagðir, bak við eyrað, ha? Tja, þið hafið sannarlega kjaftinn fyrir ncðan nefið, sveitadurgarnir.“ „Þér skrifið það, herra minn, bak við eyrað — eða í vasabók- ina yðar — sælir eru þeir, sem þá list kunna, ekki kunnum við — sveitadurgarnir — að lesa eða skrifa.“ Athygli Ondra beindist aftur að hestunum. „Áfram, áfram, herrar min- ir,“ kallaði liann til þeirra. En það var eitthvað liik á klárunum, eins og jafnvel þeir væri orðnir liugsi. Gildvaxni maðurinn bretti upp kragann á loðskikkjunni og hallaði sér aftur. Hann var hugsi á svip og var sexn liann gleymdi Ondra í svip og fei-ða- laginu. Krákugrey seltist á grein á eina trénu, sem sjáanlegt var fi’á veginum, og ]>að brakaði í greininni, er krákan settist á hana, og glápti á ferðalangana athugulum augum.Hún var lika hugsi, að því er virtist. Alt var eitthvað svo grátt og dumh- ungslegt og farið að skyggja þar á ofan. Það var ekki kyn- legt, þótt menn og skepnur yrði dálítið leitt í skapi. IJtlilið var sannarlega ekkert jólalegt. t hvaða átt sem litið var voru gráleit, æðandi stormský, en ef litið var beint í loft upp var hvolfið blátt og heiðið, en á jörðu niðri svartur aurinn framundan, en til beggja hliða í fjarskanum mátti líta skugga- legar liæðir og skóga, þorp og læki, og er út á mýrlendið kom hvarvetna polla og tjarnir, sem í kvöldhúminu mintu á köld, starandi draugsaugu. En áfram var haldið og seint sóttist fei’ðin. Vagnskriflið virtist skríða eftir aurblautum veginum eins og onnur, sem fer allur í hlykkjum, og það skrölti svo á- mátlega i vagninum, að það fór að fara i taugarnar á lagagætin- um, sem í vagninum sat, og hann gat ekki lengur dulið ó- þolinmæði sina. „Hvaða bölvað skrólt er þetta?“ kallaði hann til ekils- ins. „Það er bara skrúfa, sem losnað hefir, og fjöl, sem dingl- ar svona fram og aftur —° „Þú ert ekki eins nxildll gi'æn- ingi og eg hélt,“ flýtti sá gild- vaxni sér að segja, því að hann bjóst við einhverri óþarfri at- hugasemd frá Ondi’a, ef hann héldi áfram. „Nógu hygginn til þess að leika á stelpui’nar, ha, ha. Já, þið kvongist ungir hér — fallegum stúlkum." Og sá gildvaxni bi’etti niður kragann og bjóst til þess að halda áfranx að gera að gamni sínu. „O-jæja, þær giftu ei-u nú ekki lil að forakta,“ sagði Ondra. „Hvað sem þér segið eru þær skárri. Eg veit hvað eg er að tala um. En meðal annara oi’ða, herra minn, livert er er- indi yðar í þorpið?“ Ondra leit um öxl og horfði rannsakandi augum á hinn búlduleita farþega sinn. „Þér eruð vafalaust í embætt- iserindum?“ bætti hann við, er hinn svaraði engu. „Vitanlega. Einn af þessum liygnu náungum hérna í þorp- inu lék á mig, en í þetta skifti skal cg ldekkja á honunx. Eg lxefi skjal hérna i vasanum, pilt- ur sæll, og xxú sleppur haixn ekki. Eg konxst á snoðir um, að liann væri ekki allur, þar seixi lxanxx er séður, þrjóturixxxx sá arna — og í kvöld skal haxxxx fá að kenna á því, þótt það sé aðfangadagskvöld. Hanxx skal nximxast míix og þessai’a jóla, að mér heilunx og lifandi. Og ekki þar með lxúið — hér skal verða svo unx lxnútana búið, að þið lærið allir af, og liættið að gabba yfii’völdin, þvi að það kalla eg það, drengur xxiinn, að gabba yfirvöldin. Þið svíkið kaupmenniixa, þið svíkið okkur borgarbúa yfii'leitt; þið seljið okkur skemd egg og nxyglað smjör. Exx lxíðið þið bara við, ]>ið skuluð ekki gabba yfirvöld- in oftar. Við kunnunx tökin á vkkur. Það, senx þið þurfið, er að kenna á svipuólinni — rúss- neskri hnútasvipu — það er eina kenslualxaldið, sem dugar. Allir eruð þið drykkfeldir, xxrg- ur skríll. Þið gx-eiðið ekki skatt þið svikið rikið. Og við, hin- ir sönnu föðurlandsvinir, verð- um að grciða það, sem þiQ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.