Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 33
Félagsmál VFÍ/TFÍ 31
Jóhannes sagði að það nýjasta í málefnum Tækniskóla íslands væri að SVRÍ hefði boðið
ráðherra að reka Tækniskólann. Hann kvaðst hafa rætt við formann SVRÍ, Kolbein
Kristinsson, sem tjáði formanni TFÍ að þeir myndu, ef til þess kæmi að SVRI tæki að sér
rekstur Tækniskólans, hafa TFI mcð í umræðunni og undirbúningnum að stofnun skólans.
TFI gerðist einnig stofnaðili að hagsmunafélagi um eflingu verkfræði- og tækni-
fræðináms á Islandi sumarið 2000. Að því félagi standa Samtök iðnaðarins, Háskóli Islands,
Tækniskóli íslands, Háskólinn á Akureyri og Verkfræðingafélag íslands. TFÍ tekur sem fyrr
þátt í stjórn og rekstri Endurmenntunarstofnunar Háskóla íslands.
Jóhannes ræddi þá skrýtnu stöðu sem menntunarmál TFI og VFI væru komin í þar sem
menn með þriggja ára tækninám frá HÍ fengju inngöngu i VFÍ en eklci inngöngu í TFÍ.
Félagar í TFÍ sem hafa þriggja og hálfs árs háskólanám að baki fá hins vegar ckki félagsaðild
að VFÍ.
Jóhannes sagði að samrekstur TFI og VFI væri kominn í nokkuð fast form, þó mætti gera
enn betur og kvaðst hann þá eiga við rekstur heimasíðu og samstarf flciri faghópa innan
félaganna. Síðast en ekki síst telur hann að félögin þurfi að marka sér skýrari stefnu í mennt-
unarmálum tæknifræðinga og vcrkfræðinga. .lóhannes sagði að ekki hefði verið formlegt
samstarf við Stéttarfélag verkfræðinga í kjaramálum á liðnu ári þó menn hafi skipst á
upplýsingum og skoðunum á óforntlegum fundum.
Formaður félagsins horfir björtum augum til framtíðar félagsins og starfsumhverfis
tæknifræðinga. Það er mikil eftirspurn eftir tæknifræðingum í atvinnulífinu. Jóhannes sagði
að ef hún yrði of mikil væri hætta á að að aðrar stéttir gengju í störf tæknifræðinga. Því telur
formaðurinn að það þurfí að gæta þess að halda þessum málum í jafnvægi og kynna vel
námsframboð og störf tæknifræðinga. A síðasta ári gerðust 48 tæknifræðingar aðilar að
félaginu og er það líklega besti mælikvarðinn á árangur í starfi félagsins. Nær allir nýút-
skrifaðir tæknifræðingar gerast aðilar að félaginu. Þá hefur ungfélögum fjölgað mikið í
félaginu því á síðasta ári gengu 19 ungfélagar, nemendur í Tækniskóla Islands, í félagið.
Ur stjórn eiga að ganga að þessu sinni, auk formanns, Anna Guðrún Gylfadóttir og
Bergþór Þormóðsson. Jóhannes vildi fyrir hönd sina og stjómar TFI þakka þeim árangursríkt
samstarf. Þá vildi hann og þakka starfsfólki og öllum þeim tjölda sjálfboðaliða sem starfa lyrir
félagið gott samstarf. Jóhannes kvað félagið án þeirra ekki vera það félag sem það er í dag.
Kristján Karlsson spurði formanninn unt hvaða upphæðir væri að ræða í samningunum
við ráðuneytið að því er varðar þjónustusamninginn og aðra samninga, t.d. þróunarsamning.
Svo og hvaða aðrir samningar hefðu verið í viðræðunum um Tækniskóla íslands. Jóhannes
kvaðst ekki hafa neina tölu um þjónustusamninginn.
Auk þjónustusamnings var rætt um þróunarsamning, kennslu nemenda og húsnæðis-
málin, sem væru mjög mismunandi eftir námsgreinum. Jóhannes taldi að þjónustu-
samningurinn kostaði örfáa tugi milljóna, 10-30 milljónir. Hann sagði að ráðuneytið hefði
ekki verið tilbúið að borga fyrir þróunarsamning sem væri hugsaður til þess t.d. að útbúa
námskrár o.fl. og ekki hefði verið búið að semja um rannsóknasamning. Jóhannes sagði að
það væri sitt mat að það væri kappsmál Samtaka iðnaðarins að hlúa að Tækniskóla Islands
og að undirbúningsfélagið væri alltaf tilbúið til að helja viðræður við ráðuneytið að nýju ef
afstaða ráðuneytisins breyttist.
Rcikningar ársins 2000 og fjárhagsáætlun næsta árs
Logi Kristjánsson las upp ársreikninga félagsins árið 2000 og skýrði þá. Rekstrartekjur voru
alls kr. 12.228.769 og rekstrargjöld alls kr. 8.030.138, hagnaður af aðalstarfseminni því kr.
4.198.631. Aðrar tekjur og gjöld voru alls kr.-6.124.158 og tekjur umfram (gjöld) án ljár-
magnsliða kr. -1.925.527 og tap ársins var því kr. 1.704.902. Skammtímakröfur eru kr.