Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 139
2.6
Nýsköpun og þróunarmál
Rannsóknir og nýsköpun í atvinnulífinu er flókið samspil fyrirtækja, einstaklinga, ijárfesta,
sjóða, ráðuneyta, rannsókna- og menntastofnana. Samantekt á útgjöldum til þessa
málaflokks sem hlutfall af þjóðarframleiðslu er ein leið til þess að fylgjast með grósku í
þessari starfsemi.
Annað hvert ár tekur Rannís santan þessi útgjöld hér á landi, m.a. til samanburðar við
önnur lönd. Heildarútgjöld til rannsókna- og þróunarmála voru 13,5 milljarðar króna árið
1999. þetta svarar til um 2% af vergri framleiðslu. Til samanburðar var þetta hlutfall 1,72%
árið 1997 þegar sams konar könnun var gerð. Islensk fyrirtæki standa fýrir 43,5% af þessum
útgjölduni en opinberar rannsóknastofnanir og menntastofnanir á háskólastigi samtals
56,5%. Árið 1997 voru þessi hlutföll 40% fyrirtæki og 60% opinberar stofnanir. Fyrirtækin
hafa þannig haldið áfram að auka hlutdeild sína í rannsókna- og þróunarstarfseminni.
Samanburður við önnur OECD-ríki sýnir að ísland hefur á síðustu árum heldur verið að
færast ofar á lista í útgjöldum til rannsókna- og þróunarstarfsemi sent hlutfall af þjóðar-
tekjum. íslcndingar eru þó undir meðaltali OECD-ríkjanna og t.d. ekki nema hálfdrættingar
á við Svía sem tróna á toppnum. bað er því ljóst að íslendingar mega hvergi slaka á í þessum
efnum ef þeir vilja vera samanburðarhæfír við nágrannaþjóðir sínar.
Nýsköpunarsjóður
Nýsköpunarsjóður atvinnulifsins hefur nú starfað fjórða ár og er því að ná vissum þroska í
starfsemi sinni. Á árinu 2000 barst Stofnsjóði NSA 131 umsókn vegna fjárfestingaþátttöku
en 89 árið á undan. Hér er því um verulega aukningu að ræða eftir nokkra fækkun næsta ár
á undan. Samtals var ráðstafað til 34 verkefna 576 milljónum króna samanborið við 623,5
milljónir árið áður.
Starfsemi þróunarsviðs NSA, sem áður hét Stofnsjóður-Styrkir, skiptist í átaksverkefni,
sprota og frumkvöðlahreiður. Á árinu 2000 var ráðstafað 55 milljónum króna frá Stofnsjóði
í þennan þátt en jafnstórt framlag kom frá Vöruþróunar- og markaðsdeildinni (VÖMA) eða
alls um 110 milljónir króna. Innan þessa sviðs voru fjölmörg átaksverkefni í samstarfi við
Iðntæknistofnun íslands, Útflutningsráð, Byggðastofnun og Rannsóknarþjónustu
Háskólans. Þá kemur sjóðurinn að Samstarfsvettvangi sjávarútvegs og iðnaðar, Heilbrigðis-
tæknivettvangi, Sanistarfsvettvangi um íslenska markaðssókn í þróunarlöndum, auk ýmissa
sérverkefna, s.s. Auður í krafti kvenna, Nýsköpun 2000 og fjölda smærri verkefna.
Fyrir utan framangreinda samfjármögnun Vöruþróunar- og markaðsdeildar með
Þróunarsviði NSA vcitti deildin 18,5 milljónir í styrki til fyrirtækja og félaga á árinu 2000.
Þannig hefúr verulega verið dregið úr styrkjum en stuðningur frernur veittur í formi áhættu-
lána sem Stofnsjóður fjármagnar. VÖMA tekur hins vegar þátt í áhættunni lil jal'ns við