Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 52
50 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
Upplýsingatæknihópur VFÍ og TFÍ
Meðal félagsmanna Verkfræðingafélags Islands og annarra verkfræðinga hefur verið
vaxandi áhugi á að félagið sinni meira fagleg'ri umræðu um upplýsingatækni en verið hefur.
Heitið upplýsingatækni tekur m.a. yfir vélbúnað og hugbúnað tölva og er því afar yfir-
gripsmikið. Fjöldi verkfræðinga starfar nú að upplýsingatækni með ýmsum hætti og margir
sem starfa að þessum málum eru félagar í VFI, þótt þeir séu ekki verkfræðingar. Hugmyndin
að stofnun hóps um upplýsingatækni á vegum VFI er vafalaust ekki ný af nálinni, en fonn-
lega var kallað til fyrsta fundar í Verkfræðingahúsi 15. september 2000. Að þessum hópi
hafa einkum komið verkfræðingar og félagar í VFI, en hann hefúr staðið öðrum opinn, sem
áhuga hafa, og hefur það fremur orðið til að styrkja starfsemi hans. Sérstaklega er vert að
geta stuðnings RVFÍ við stofnun hópsins og með samstarfi félagsins við alþjóðlega félagið
IEEE standa vonir til að fagleg umljöllun um upplýsingatæknimál eflist á komandi misserum.
A fyrstu starfsmánuðum hópsins hafa viðfangsefni hans einkum snúið að hugbúnaðar-
gerð, sem ræðst m.a. af því að umsvif og margbreytileiki hugbúnaðargerðar í atvinnulífí hér-
lendis er orðinn umtalsverður og hefúr verið um nokkurt skeið. Sá hópur fólks sem þykir
eðlilegt að VFI sinni í auknum mæli faglegri umræðu um hugbúnaðargerð er orðinn stór og
fer ört stækkandi. Þar má bæði telja verkfræðinga (jafnt utan VFI sem innan) og Ijölmarga
félagsmenn sem ekki eru verkfræðingar, en hafa menntun eða stunda atvinnu sem tengist
hugbúnaðargerð. Aðferðafræði við hugbúnaðargerð hefur verið í mótun og er víða að færast
í formlegri farveg en verið hefur. Hugbúnaðargerð er því verðugt og yfirgripsmikið við-
fangsefni sem á erindi við verkfræðinga og félaga VFI. Kennsla í hugbúnaðargerð er enn í
mótun. Ymsir skólar kenna hugbúnaðargerð, með mismunandi móti, og markmið mennt-
unarinnar eru mismunandi. Þá má benda á að tölvunarfræði Háskóla Islands var flutt úr
raunvísindadeild í verkfræðideild haustið 2000.
Þriðjudaginn 14. nóvember 2000 stóð hópurinn fyrir síðdegisráðstefnu á Grand Hótel,
sem bar yfirskriftina „Aðferðafræði og stjórnun við hugbúnaðargerð“ og var haldin í nafni
VFI og TFI. Auk inngangs og lokaerinda voru fluttir tíu stuttir fyrirlestrar um ýmsar leiðir
við hönnun hugbúnaðar. Fullyrða má að ráðstefnan hafi tekist með prýði, hana sóttu yfir 100
manns og hún var aðstandendum góð kynning.
Þá hefúr upplýsingatæknihópurinn komið saman til þess að leggja fram hugmyndir að
efni í þemablað Verktækni um hugbúnaðarmál, sem er í vinnslu, og önnur ráðstefna er í
umræóunni.
Hópurinn, sem telur um 28 manns, hefur ekki reglulega fundartíma en notar Netið og
póstlista talsvert til samskipta og kemur saman eftir þöríúm. Hópurinn hefur ekki enn fonnlega
stjórn og heíúr Kristinn Andersen, varaformaður VFI, tekið að sér að leiða starf hans til
þessa. Meðal mikilvægustu verkefna hópsins er efling hans með því að virkja fleiri til þess
að leiða starfíð. Nýir þátttakendur eru velkomnir og bent á að hafa samband við undir-
ritaðan.
Kristinn Andersen
formaður Upplýsingatæknincfndar VFÍ
Siðanefnd VFÍ
Siðanefnd starfsársins var skipuð eftirtöldum mönnum: Vífill Oddsson formaður,
Guðmundur G. Þórarinsson, Jóhann Már Maríusson, Karl Ómar Jónsson og Pétur
Stefánsson.
Siðanefnd er skipuð fimm iyrrverandi formönnum VFÍ. Hver maður situr í nefndinni í
fimm ár og síðasta árið sem formaður.