Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Qupperneq 67
Félagsmál VFÍ/TFÍ 65
Engjateignum og að lóð nr. 9. Hann er um 300 fermetrar að stærð og keypti VFÍ 18 fermetra
til viðbótar til að eignast allan hluta A í húsinu.
Félagið verður 90 ára á árinu 2002 og er stefnt að því að halda veglega afmælishátíð 2.
febrúar. Haldnar verða tvær alþjóðlegar ráðstefnur og tæknidagar verða á sínum stað. Ráðist
verður í útgáfú ritraðar, sem hefst á 90 ára afmælinu og lýkur með 100 ára afmælisriti tíu
árum síðar. Fonnaður þakkaði stjórn og framkvæmdastjóra samstarfið á árinu.
Reikningsskil: Logi Kristjánsson framkvæmdastjóri skýrði reikninga félagssjóðs, en þeir
lágu frammi á fundinum. Rekstrartekjur voru um 15,2 m.kr. og tap varð á rekstri félagsins á
árinu að fjárhæð um 0,5 m.kr. Framlag hússjóðs til reksturs félagsins er áfram 500.000 kr. á
ári og leigutekjur af Engjateigi 7 voru um 1,3 m.kr. á árinu. Eigið fé félagssjóðs er nú um
12,3 milljónir króna.
Logi skýrði því næst reikninga hússjóðs VFÍ. Rekstrartekjur voru um 12,3 m.kr. og tap
varð á rekstri hússjóðsins að fjárhæð 2,7 m.kr. Eigið fé hússjóðsins er um 45,6 m.kr.
Vífill Oddsson, félagslegur skoðunarmaður, tók til máls og sagði félagsstarfið hafa verið
blómlegt á árinu. Fagnaði hann því átaki sem stjórnin gerði í fjölgun félaga og fjölgun
faghópa innan félagsins. Þá gerði hann að umtalsefni góðan árangur af Engjateigi 7,
Verktækni og Árbók VFÍ. Þá taldi hann skrifstofúna vel rekna og innheimtumál í góðu lagi.
Útgjöld hússjóðs væru heldur meiri en gert hafi verið ráð fyrir, en standi eftir sem áður
traustum fótum eins og fram hefúr komið.
Helgi Hjálmarsson spurði hvort mikið væri um að félagið fengi beiðni um umsagnir um
frumvörp til laga og reglugerðir. Formaður kvað svo vera og sagði að undirhópar innan
félagsins ynnu svör fyrir stjómina, sem síðan fjallaði um málið og afgreiddi umsagnirnar.
Fleiri fyrirspurnir komu ekki fram.
Fundarstjóri bar upp til samþykktar skýrslu stjórnar og reikninga félagsins og voru bæði
samþykkt samhljóða.
Lagabreytingar: Formaður kynnti tillögur stjómar að breytingum á félagsgjöldum, annars
vegar vegna eldri félaga og hins vegar vegna þátttöku félagsmanna í öðrum fagfélögum
erlendis. Engar umræður urðu um breytingatillögurnar, en þær vom eftirfarandi:
30. grein: „Félagsmenn eldri en 70 ára greiði einn tíunda af fúllu félagsgjaldi.
Félagsmenn eldri en 65 ára, sem hætt hafa störfum, greiði einn tíunda af félagsgjaldi“.
31. grein: Á eftir fyrstu málsgrein komi ný málsgrein. „Stjóm félagsins er heimilt að
veita allt að 10% afslátt af félagsgjöldum þeirra félagsmanna sem era í erlendum verk-
fræðingafélögum, ef gerður hefur verið samningur um gagnkvæman afslátt á milli VFI og
viðkomandi félags.“
Breytingar á 30. grein vora samþykktar með öllum greiddum atkvæðum að einu undan-
skildu. Breytingar á 31. grein voru samþykktar samhljóða.
Lög félagsins með áorðnum breytingum borin upp í heild sinni og samþykkt samhljóða.
Fjárhagsáætlun og ákvörðun fólagsgjalda: Formaður útskýrði fjárhagsáætlun næsta árs
og benti m.a. á tekjulið að ljárhæð 4 m.kr. sem eru leigutekjur af Engjateigi 7, en þær era
um íjóröungur af rekstrartekjum félagsins. Hann benti á að Ijarfundabúnaður kostaði meira
en gert hafi verið ráð fyrir, og teknar era frá 1,2 m.kr. vegna afmælishátíðar í tilefni 90 ára
afmælis félagsins á árinu. Gert er ráð fyrir að rekstrartekjur og rekstrargjöld standi nokkuð
á jöfnu. Þá er gerð tillaga að óbreyttu félagsgjaldi, 19.000 kr. Stjórnin leggur til að þeir
félagar í VFÍ, sem einnig era í SV fái 2.000 kr. afslátt miðað við fullt félagsgjald. Þeir sem
greiða lægra árgjald fái hlutfallslega lægri afslátt.
Fjárhagsáætlun var samþykkt samhljóða, svo og tillaga að félagsgjöldum.