Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 48
46 ÁrbókVFÍ/TFÍ 1999/2000
1.2.3 Skýrslur fastanefnda og deilda VFÍ
starfsárið 2000/2001
Skýrlur eftirtalinna fastanefnda og deilda er að finna í kafla um sameiginlegan rekstur
TFÍ/VFÍ: Kynningamefnd VFÍ/TFÍ, Mennt, íslandssnefnd FEANI, Eftirlitsnefnd FEANI á
íslandi, Endurmenntunar- og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ og SV og Útgáfunefnd VFÍ/TFÍ.
Menntamálanefnd VFÍ
Skipan nefndarinnar og fundir: Menntamálancfnd VFI var á starfsárinu skipuð eftirtöldum
mönnum: Steindór Guðmundsson formaður, Gunnar Guðni Tómasson ritari, Fjóla G. Sig-
tryggsdóttir, Pétur K. Maack, Ragnhildur Geirsdóttir og Þórður Flelgason.
Fjóla G. Sigtryggsdóttir er formaður ENSÍM-nefndar VFÍ, TFÍ og SV, og situr hún jafn-
framt í menntamálanefndinni. Fjóla situr í stjórn Endurmenntunarstofnunar HI sem fulltrúi
VFÍ.
Um hlutverk og verkefni menntamálanefndar er ijallað í 19. grein félagslaga VFI.
Menntamálanefnd hélt alls 12 fundi á starfsárinu, og voru þeir fundir nr. 203-214.
Venjulegur fundartími er annar fimmtudagur hvers mánaðar. Auk þess var m.a. haldinn
fundur með stjórn VFI og deildarforseta og skorarformönnum Verkfræðideildar Háskóla
íslands, þar sem íjallað var um námið við deildina. Einnig var haldinn fundur með vísinda-
nefnd Verkfræðideildar um sama mál, einkum MS-nám hjá þeim sem hafa annars konar
grunnnám en BS-verkfræðipróf frá Háskóla Islands.
Umsóknir til félagsins: Umsóknir um inngöngu í félagið og leyfi til að kalla sig verk-
fræðing voru sem hér segir á starfsárinu. Til samanburðar eru umsóknir síðustu ára:
Starfsár: 00-01 99-00 98-99 97-98 96-97 95-96 94-95
Umsóknir um inngöngu í félagið: 65 34 18 21 24 49 76
Umsóknir um starfsheitið: 60 41 36 29 24 49 69
Umsóknir um ungfélagaaðild: 0 0 1 0 1 6 3
Umsóknir alls 125 75 55 50 49 104 148
Af 65 umsóknum um inngöngu í félagið voru 55 umsóknir samþykktar, tveimur var
hafnað og umijöllun um sjö er ekki lokið, en ein umsókn var afturkölluð. Af 60 umsóknum
um starfs-heitið voru 47 umsókn samþykktar, sex var hafnað og umljöllun um fímm er ekki
lokið, en tvær umsóknir voru afturkallaðar. Þeir einstaklingar sem mælt var með að fái leyfi
til aó kalla sig verkfræðing og/eða fengu samþykkta inngöngu í félagið voru alls 73 talsins.
Heildarfjöldi umsókna var nokkru meiri en árið áður og mun meiri en þrjú næstu árin þar
á undan. Auk þessara umsókna bárust nefndinni 11 formlegar fyrirspurnir, m.a. nokkrar frá
SV vegna manna frá ljarlægum löndum sem sækja um atvinnu- og dvalarleyfí hérlendis.
Samtals Ijallaði nefndin um umsóknir og iyrirspurnir frá 91 einstaklingi.
Endurskoðun á reglum VFI um inngöngu í félagið: Menntamálanefnd afgreiddi tillögu
að nýjum reglum um inngöngu í félagið og tillögu að nýjum reglum um starfsheitið verk-
fræðingur til stjómar VFI á starfsárinu 1997-1998. Reglurnar um starfsheitið voru
samþykktar og síðan auglýstar í Stjórnartíðindum i desember 1999.
Nýjar reglur um inngöngu í félagið reynd-ust hins vegar vera umdeildari. Fékk mennta-
málanefnd það verkefni frá stjórn VFI haustið 1999 að endurskoða tillögumar frá 1998 og