Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 56
54 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
Allt frá 1982 hefur dr. Halldór Halldórsson málfræðingur starfað á vegum íslenskrar mál-
nefndar með orðanefndinni sem ráðunautur um málfar. Hann andaðist 5. apríl 2000. Hann
sótti 556 fundi í báðum vinnuhópum og vann milli funda með formanni að undirbúningi
mála. Mikil eindrægni var í samstarfi Halldórs Halldórssonar og Orðanefndar. Nefndin fór
í öllu að ráðum hans varðandi rithátt, orðafar og málnotkun. Mikilvægust var hugkvæmni
hans við smíði nýyrða. Halldór hafði ekki á móti því að taka upp erlenda orðstofna, ef þurfa
þótti. I reynd fór þó svo að nefndinni og honum tókst að leysa úr hverjum slíkum vanda með
íslenskum orðstofnum á þann hátt, sem öllum var að skapi. Auðfundið var að Halldóri
Halldórssyni féll vel samstarfíð við verkfræðingana. Við söknum góðs vinar.
Svo sem fyrr er getið starfar Orðanefnd byggingarverkfræðinga í tveimur hópum, A og B.
Vinniihópur A: Bragi Þorsteinsson ráðgjafarverkfræðingur, Einar B. Pálsson, prófessor
emeritus, Eymundur Runólfsson, yfírverkfræðingur hjá Vegagerðinni, Guttormur
Þormar, fyrrv. yfirverkfræðingur, Olafur Jensson, fyrrv. yfirverkfræðingur, Páll
Flygenring, fyrrv. ráðuneytisstjóri og Sigmundur Freysteinsson yfirverkfræðingur.
Vinnuhópurinn hélt 24 fundi árið 2000, að venju síðdegis á þriðjudögum í húsakynnum
Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68. Enn sem fyrr á Orðancfnd Landsvirkjun þökk að gjalda
fyrir gestrisni, Vegagerðinni fyrir aðstoð við fundahaldiö og Verkfræðidcild Háskóla Islands
fyrir margháttaða fyrirgreiðslu.
Var fýrst og fremst unnið að því að búa íðorðasafn um fráveitur, úrgangsumsýslu,
umhverfismál og mengun undir útgáfu. Nefndin hefur unnið að íðorðasafni um fráveitur frá
ársbyrjun 1982. Þá hafði Iðntæknistofnun óskað þess að orðanefndin semdi íðorðaskrá fyrir
nýjan staðal, IST 68, um fráveitulagnir í húsum og lóðum. síðan hefur verið stöðug þörf á
framhaldi þeirrar vinnu, svo sem vegna námsefnis í Háskóla íslands, örrar tækniþróunar,
löggjafar um umhverfísmál og vegna þátttöku íslands í evrópsku efiiahagssamstarfi, en það
leiðir af sér miklar skyldur og ný hugtök á sviði umhverfismála, sem er að finna í erlendum
reglum. Umhverfisráðuneytið er meðal þeirra sem samráð hefúr verið haft við.
íðorðasafnið, sem nú á að gefa út, er því mun víðtækara en áður var ráðgert; það er nær
því að vera yfirlit um umhverfístækni á sviði byggingarverkfræði. Vinnan við það hefúr
staðið lcngi. Margt þarf því að samræma innbyrðis og að því hefur starf orðanefndarinnar
einkum beinst á nýliðnu ári.
Vinnuhópurinn hafði í árslok 2000 haldið 662 fundi frá upphafi, 1980.
Vinnuhópur B: Bjarni Bessason, dósent í Háskóla Islands, Einar B. Pálsson, prófessor
emeritus, Olafur Jensson, fyrrv. yfirverkfræðingur, Ragnar Sigbjörnsson, prófessor í
Háskóla Islands og Sigurður Erlingsson, prófessor í Háskóla íslands.
Þessi hópur hefur einkum unnið á sviði aflfræði og jarðeðlisfræði. Nefndarmenn enr
flestir háskólakennarar og fundir eru haldnir í Verkfræðistofnun Háskóla íslands. Vegna
mikilla anna á sviði vinnuhóps A gafst ekki ráðrúm til að halda formlega fúndi í vinnuhópi
B á árinu 2000. En ýmis íðorðamál komu þar til umræðu meðal nefndarmanna. I vinnuhópi
B hafa alls verið haldnir 128 fundir frá stofnun hans 1988.
Orðanefnd byggingarverkfræðinga hefur því haldið samtals 790 fundi frá stofnun hennar
til ársloka 2000. Margir gestir hafa komið á þessa fundi til ráðuneytis nefndinni.
Orðanefndin á hlut að því að í Verktækni, mánaðarriti Verkfræðingafélags Islands og
Tæknifræðingafélags Islands er vettvangur, svonefndur Orðabelgur, fýrir greinar um nýyrði
og málfar á sviði tækninnar.
Orðanefnd byggingarverkfræöinga
Einar B. Pálsson formaður